Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Síða 2
2 Fréttir Helgarblað 23.–28. apríl 2014
50% afsláttur af nammibarnum
alla föstudaga og laugardaga
Ódýrasti
ísinn í
hverfinu!
Söluturn
Ísbúð
Vídeóleiga
Réttarholtsvegi 1 • 108 Reykjavík • Sími 553 5424
Kúlan
KÚLAN KLIKKAR EKKI
CIA seilist til
áhrifa á Íslandi
Creative Associates hefur komið að áróðursstarfsemi á Kúbu, Pakistan og í Afganistan
B
andaríska leyniþjónustan
CIA hefur reynt að seilast til
áhrifa á Íslandi á þessu ári í
gegnum íslenska aðila. Þetta
segir Íslendingur sem DV
ræddi við sem búsettur er hér á landi.
Fyrirtækið sem hafði samband við
manninn heitir Creative Associates.
Maðurinn fékk fyrir skömmu
tölvupóst frá Creative Associ-
ates, sem meðal annars hefur ver-
ið bendlað við öryggisþjónustufyrir-
tækið Blackwater, og var beðinn um
að gerast tengiliður þess á Íslandi.
Fyrirtækið kvaðst hafa hug á því að
hefja starfsemi á Íslandi, nánar til-
tekið að halda námskeið hér á landi
fyrir Mið-Austurlandabúa sem ætl-
uðu sér að flytja til Bandaríkjanna.
Að sögn samtakanna, eftir því sem
maðurinn segir, er auðveldara að fá
leyfi fyrir þetta fólk til að dvelja hér
á landi en að fá sambærilegt leyfi í
Bandaríkjunum.
Runnu á hann tvær grímur
Að sögn mannsins þá virtust pen-
ingar ekki vera vandamál þegar hon-
um var boðin vinnan fyrir Creative
Associates. Hann lýsti því yfir að
hann þyrfti að fá greidd laun fyrir
vinnu sína og var honum sendur
samningur í kjölfarið. Samningurinn
var mjög ítarlegur og kvað á um ríkan
trúnað við vinnuveitandann.
Tvær grímur byrjuðu hins vegar
að renna á manninn, sérstaklega eft-
ir að hann kynnti sér starfsemi Cr-
eative Associates en fyrirtækið hefur
margoft verið bendlað við starfsemi
sem erlendar leyniþjónustur, og sam-
starfsaðilar þeirra, vinna gjarnan.
Í erlendum fréttamiðlum hef-
ur til dæmis komið fram að Creati-
ve Associates hafi verið með starf-
semi í Afganistan og Pakistan og er
nafn þess oft tengt við Blackwater,
fyrirtæki sem Dick Cheney, fyrrver-
andi varaforseti Bandaríkjanna, stýr-
ir. Í einni fréttinni segir til dæmis um
Creative Associates að það sé „nokk-
uð augljóslega tengt CIA“.
Áróðursstarfsemi á Kúbu
Í byrjun þessa mánaðar voru svo
sagðar fréttir af því að Creative
Associates hefði staðið fyrir stofn-
un kúbverskrar útgáfu af samskipta-
miðlinum Twitter á Kúbu. Þessi
samskiptamiðill hét ZunZuneo.
Samkvæmt erlendum fréttum frá því
í byrjun mánaðarins var markmiðið
að opna samskiptamiðilinn og með
tímanum að reyna að grafa undan yf-
irvöldum í Havana með ýmiss konar
upplýsingum og reyna að stuðla að
aukinni lýðræðisvakningu á meðal
íbúa eyjarinnar. Þegar mest lét not-
uðu um 40 þúsund Kúbverjar síðuna.
Í gögnum um stofnun þessa sam-
skiptamiðils sem vísað var til í er-
lendum fjölmiðlum sagði meðal
annars: „Ekki mun verða minnst með
nokkrum hætti á aðkomu banda-
rískra yfirvalda.“ Í erlendum fréttum
var sagt að aðkoma Creative Associ-
ates að stofnun þessa samskiptamið-
ils á Kúbu minnti óþyrmilega á kalda
stríðið. Fyrirtækið er jafnframt gjarn-
an kennt við „soft power“ en með því
er vísað til þess að það notar upp-
lýsingar og ýmiss konar áróður til
að ganga erinda bandarískra stjórn-
valda erlendis.
Maðurinn sem DV ræddi við um
tilraun Creative Associates til að ráða
hann í vinnu segist ekki vita af hverju
fyrirtækið hafi viljað ráða hann til
starfa eða af hverju fyrirtækið hafi
áhuga á Íslandi. n
Tengslin við Blackwater
og CIA Creative Associates
hefur oft verið bendlað við
Blackwater, öryggisfyrirtæki
sem Dick Cheney, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna,
stýrir. Ekki er vitað af hverju
fyrirtækið vildi seilast til
áhrifa á Íslandi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Ekki mun verða
minnst með
nokkrum hætti á aðkomu
bandarískra yfirvalda.
É
g fékk því aðstoð við að setja
traktor og jeppa í veg fyrir rör-
in í þeim tilgangi að tefja fyrir,“
segir í tölvupósti frá Kristjáni
Þórðarsyni, frænda Ingibjargar Krist-
jánsdóttur, þar sem hann ræðir um
deilurnar sem komnar eru upp vegna
framkvæmda í landi Ingibjargar og
Ólafs Ólafssonar fjárfestis í Miðhrauni
á Snæfellsnesi.
Nágrannar Ingibjargar og Ólafs,
Sigurður Hreinsson og Bryndís Guð-
mundsdóttir, hafa hafið lagnafram-
kvæmdir á jörð þeirra og gengur
deilan út á hvort þau hafi aflað tilskil-
inna leyfa eða ekki. Sigurður og Bryn-
dís telja sig í fullum rétti en ekki Ólafur
og Ingibjörg.
Tölvupóstur um deiluna hefur
gengið á milli íbúa í hreppnum þar
sem rætt er um málið og hefur lög-
reglan verið kölluð til oftar en einu
sinni, meðal annars á þriðjudaginn.
DV.is hefur fjallað um deiluna síðustu
daga.
Í tölvupósti Kristjáns segir orð-
rétt: „Á fimmtudagsmorgun var búið
að draga jeppann burtu með jarð-
ýtu og virtist hann hafa orðið fyrir
tjóni. Ég fór því að mynda aðstæð-
ur og skoða mögulegar skemmdir. Sú
aðgerð virtist fara fyrir brjóstið á Sig-
urði og mönnum hans. Þar sem ég
stóð við vegkantinn kom hann keyr-
andi á jeppanum sínum í átt að mér -
mjög ógnandi. Ég hélt á símanum og
var með myndbandsupptöku í gangi
þegar hann keyrði bílinn það nálægt
mér að hann rakst utan í mig. Auðvit-
að varð ég skelkaður en benti Sigurði
strax á að ég hefði náð þessu á mynd-
band og myndi kæra hann fyrir atvik-
ið. Það næsta sem ég vissi var að það
veittst aftan að mér og einhver reyndi
að hrinda mér.“
Umrædd deila virðist því hvergi
nærri vera leyst og er hún farin að líkj-
ast fæðardeilum í Íslendingasögunum
þar sem komið hefur til skemmdar-
verka og handalögmála. n ingi@dv.s
„Einhver reyndi að hrinda mér“
Deilurnar í Miðhrauni á Snæfellsnesi
Kennir munaðar-
lausum í Afríku
„Malaika-stúlkurnar mættar til
okkar til að fara á ströndina og
brasa með okkur í dag. Þær eru svo
spenntar fyrir sólgleraugum enda
sjá þær okkur alltaf með slíkt á nef-
inu,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir,
baráttukona og skólafrömuður, en
hún er stödd í Tansaníu þar sem
hún og unnusta hennar, Lilja Sig-
urðardóttir, reka heimili fyrir mun-
aðarlausar stúlkur ásamt fleirum.
Ár er síðan Margrét Pála
stofnaði heimilið sem er í Dar es
Saleem. Þar býr mágkona hennar,
Þorgerður Sigurðardóttir, og svili
sem eru með henni í verkefninu
auk nokkurra Hjallastefnuskóla.
Yfir verkefninu vakir verndar-
engillinn Mariam Twahir, móðir
svila Margrétar Pálu. Í viðtali við
DV lýsti Margrét Pála yfir hugsjón
sinni. „Það er rík hugsun að baki
því að stofna stúlknaheimili. Við
ákváðum að taka stúlknaheimili,
það er eins og sagt hefur verið, ef
þú menntar dreng þá menntar þú
karlmann. Ef þú menntar stúlku,
þá menntar þú heila fjölskyldu.
Ef kona er menntuð, þá mun hún
mennta börnin sín og hún mun
byggja upp samfélag. Svo er hitt,
að stúlkur þurfa meiri stuðning.“ Í
þetta sinn njóta þrettán stúlkur á
aldrinum 5–14 ára stuðnings Mar-
grétar Pálu og til stendur að kenna
þeim á tölvur.
Margrét Pála hefur hingað til
farið í skemmri ferðir til Afríku
en hefur lýst yfir draum sínum að
flytja þangað alfarið.
„Ef ég fengi elskuna mína hana
Lilju og dóttur mína með tengda-
soninn og öll börnin með mér þá
væri ég til í að flytja til Tansaníu
á morgun. Á meðan það er ekki,
þá læt ég mér duga að fara í styttri
heimsóknir. Ég mun án efa búa
þarna í einhverja mánuði í fram-
tíðinni. Þessar stelpur eru allar
komnar inn í hjartað mitt. Þaðan
fer ekkert barn sem ég hef annast.
Þau eru öll þar.“
Ekki bara Al-Thani Ólafur Ólafsson
stendur ekki bara í ströngu fyrir dómstólum
heldur líka í Miðhrauni á Snæfellsnesi þar
sem nágrannaerjur hafa leitt til afskipta
lögreglu. Mynd SIgTRygguR ARI
Útgáfa DV
Vegna sumardagsins fyrsta
á fimmtudag kemur í dag út
veglegt helgarblað DV. Blaðið
kemur næst út þriðjudaginn
29. apríl. DV óskar lesendum
gleðilegs sumars og þakkar
ánægjulega samfylgd í vetur.