Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 24
Helgarblað 23.–28. apríl 201424 Fréttir Erlent Vilja fjölga sér Í ranir íhuga nú að herða lög um fóstureyðingar á sama tíma og lagt verður bann á að karl- ar gangist undir ófrjósemis- aðgerðir eins og sáðgangsrof. Ástæðan er sú að íranska þjóðin er að eldast hratt og eiga þessar tvær aðgerðir að skila sér í aukn- um mannfjölda þegar fram í sækir. U-beygja Um tuttugu ár eru síðan yfirvöld í Íran hófu aðgerðir til að stemma stigu við mannfjölgun í landinu. Þá var brugðið á það ráð að niður- greiða ófrjósemisaðgerðir hjá körlum og dreifa smokkum frítt til landsmanna. Nú stendur til að taka u-beygju í þessum efnum. Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerkur Írans, hefur beitt sér fyrir breytingum á stefnu Írana undan- farin misseri. Á síðasta ári gagn- rýndi hann stefnu landsins, sagði hana „stælingu“ á stefnu vest- rænna ríkja. Hinn 74 ára leiðtogi hvatti um leið yfirvöld til að vinna markvisst að því að yngja þjóðina og tvöfalda fjölda landsmanna, úr 77 milljónum í 150 milljónir. Áhrif Khamenei mikil Íranska þingið, þar sem íhalds- menn eru í miklum meirihluta, samþykkti á dögunum að taka bann við ófrjósemisaðgerðum til efnislegrar meðferðar í þinginu. Við sama tilefni var samþykkt að taka til efnislegrar meðferðar að refsa þeim sem „hvetja til fóstur- eyðinga eða notkunar getnaðar- varna“. Fars-fréttaveitan, sem er að hluta ríkisrekin, sagði frá því á dögunum að yfirgnæfandi meirihluti þingmanna hefði sam- þykkt að taka málin til umræðu. Breska blaðið Guardian segir frá því að vegna þess hve áhrifamikill Khamenei er á meðal íhalds- manna í þinginu séu yfirgnæfandi líkur á að þessar breytingar verði að lögum. „Þjóð eldri borgara“ „Ef við höldum áfram á sömu braut verðum við þjóð eldri borg- ara í ekki svo fjarlægri framtíð,“ sagði Khamenei í október síðast- liðnum og spurði: „Af hverju kjósa sum hjón að eignast bara eitt eða tvö börn? Af hverju forðast þau að eignast börn? Ástæðuna þarf að skoða,“ sagði hann. Khamenei hefur áður látið þessa skoðun sína í ljós, að Írön- um þurfi að fjölga. Þannig hef- ur hann hvatt yfirvöld til að byrja á að hætta eða minnka niður- greiðslu vegna ófrjósemisaðgerða. Í forsetatíð Mahmouds Ahmedi- nejad var hjónum jafnvel lofað frí- um gullmyntum ef þau eignuðust fleiri börn. Áhyggjur af mæðradauða Í samtali við Guardian segir mannréttindafrömuðurinn Kami- ar Alaei, sem nam meðal annars við Harvard-háskóla og sat í fang- elsi fyrir baráttu sína gegn út- breiðslu HIV, að hann hafi áhyggj- ur af þessari stefnubreytingu. Segist Kamiar hafa áhyggjur af því að konum sem látast við barns- burð muni fjölga sem og óæski- legum fæðingum. Hann segir að samdráttur í fólksfjölgun megi rekja til félagslegra, hagfræði- legra og menningarlegra þátta, en ekki beint til þeirrar stefnu- breytingu sem varð fyrir tuttugu árum. Hann bendir á að þrátt fyrir orð Khamenei að þjóðin sé að eld- ast séu Íran ung þjóð. Þannig séu 70 prósent af landsmönnum und- ir 35 ára og um helmingurinn sé á aldrinum 20 til 30 ára. n Íranir vilja banna ófrjósemisaðgerðir karla og herða lög um fóstureyðingar Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is „Ef við höldum áfram á sömu braut verðum við þjóð eldri borgara í ekki svo fjarlægri framtíð. Vill fjölgun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti klerkur Írana, vill að Írön- um fjölgi úr 77 milljónum í 150 milljónir. Mynd rEUtErS Ósammála Kamiar Alaei segist hafa áhyggjur af mæðradauða og ótímabærum fæðingum verði breytingarnar að veruleika. F orstjóri og stofnandi vinsæl- ustu samfélagsmiðlasíðu Rúss- lands hefur verið hrakinn á brott úr fyrirtækinu og er síðunni nú stjórnað af bandamönnum Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands. Samfélags- miðillinn VKontakte hefur gjarnan verið kallaður „rússneska facebookið“ og er næstvinsælasti samfélagsmiðill- inn í Evrópu á eftir Facebook. „Í rússnesku samhengi var eitthvað þessu líkt óhjákvæmilegt, en ég er ánægður að við entumst í sjö og hálft ár,“ segir Pavel Durov, fráfarandi for- stjóri. Stjórnvöld í Rússlandi hafa mikla stjórn á sjónvarpi og prentmiðlum en tjáningarfrelsi hefur hingað til ver- ið meira á netinu. Það virðist nú vera að breytast en eftir mótmælaherferðir gegn Pútín árið 2011 hefur aðhald ver- ið hert. Durov var þá beðinn af rúss- neskum stjórnvöldum um að loka síð- um á samfélagsmiðlinum sem væri stjórnað af aðgerðasinnum. Hann varð ekki við þeirri beiðni. Eftir margra ára baráttu og póli- tísk átök hefur Durov gefist upp á að berjast fyrir frelsi notenda og vernd persónuupplýsinga. Hann hefur selt sinn síðasta hlut í rússneska samfé- lagsmiðlinum. Ríkasti maður Rússlands, Alisher Usmanov, hefur nú völdin í fyrirtæk- inu en hann er náinn bandamaður Rússlandsforseta. Talið er að fyrirtæk- ið verði nú ekki eins sjálfstætt, en árið 2011 rak óligarkinn Usmanov tvo yfir- menn af dagblaði í sinni eigu fyrir að birta myndir sem sagðar voru gegn Pútín Rússlandsforseta. n salka@dv.is Tekur yfir samfélagsmiðla Aðhald með netinu eykst í Rússlandi Sjö ára alelda úti á götu Skoskur drengur látinn eftir að hafa leikið sér með bensín Sjö ára drengur sem fannst illa brenndur á götum Aberdeen- borgar í Skotlandi á föstudag er látinn af völdum áverka sinna. Preston Flores hljóp „alelda“ út á götu eftir að föt hans voru þakin bensíni sem kviknaði í, en lögreglan segir ekki neitt benda til þess að einhver hafi viljandi kveikt í honum. „Hann var fjölskyldu sinni allt. Hans verður sárt saknað og hann verður ætíð elskað- ur. Preston var sérstakur ungur drengur og missirinn hefur rifið fjölskyldu okkar í sundur,“ sagði fjölskylda hans í yfirlýsingu. Skelfingu lostnir sjónarvott- ar lýstu því hvernig hann hljóp alelda út á götu, en vegfarend- ur reyndu að hjálpa með því að hella vatni yfir hann. Preston hafði verið að leik með tveimur öðrum börnum, en að sögn íbúa á svæðinu virt- ist sem börnin væru að leita að einhverju stuttu áður en harm- leikurinn varð. „Ég sá eitt þeirra með ílát, eins konar vatns- brúsa,“ segir íbúinn við Daily Mail. Nokkrum mínútum síðar var drengurinn alelda. „Brjálæðisleg og rándýr“ Ítölsk yfirvöld komu þúsund flóttamönnum til bjargar á tveimur sólarhringum. Stjórn- málamenn gagnrýna harð- lega þann kostnað sem hlýst af björgunaraðgerðunum, en daglega er flóttafólki bjargað úr sjónum við strendur Ítal- íu. Mánaðarlegur kostnaður af slíkum björgunaraðgerðum eru níu milljónir evra, en um er að ræða ítalskt björgunar- átak, sem miðar að því að koma sem flestum til bjargar sem koma að ströndum Ítalíu og forða þannig slysum. Hægri- menn á Ítalíu segja kostnaðinn ekki forsvaranlegan og segja að björgunin sé bæði „brjálæðisleg og rándýr“. Áður var algengt að flóttafólk drukknaði þegar það reyndi að komast á land, en með björgunaraðgerðun- um hefur verið hægt að bjarga fjölmörgum einstaklingum sem svo sækja um ríkisborgararétt eða dvalarleyfi í Evrópu. Pavel durov Hrakinn frá völdum fyrir að hygla stjórnvöldum ekki nægilega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.