Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 23.–28. apríl 201416 Fréttir
Fullur vörubíll af rusli
fjarlægður úr rjóðrinu
Í
byrjun apríl var fjarlægt úr rjóðri
rétt við BSÍ gríðarlegt magn af
heimilissorpi. „Þetta fyllti vöru
bíl, þetta var það mikið, sex til
átta rúmmetrar,“ segir Jón Halldór
Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykja
víkurborgar. Í rjóðrinu hafði heimilis
laus kona haft aðsetur um nokkurt
skeið en konan er haldin söfnunar
áráttu sem felst í því að hún safnar
heimilissorpi.
Fengu ábendingar um ruslið
DV fjallaði um konuna í rjóðrinu
í ágúst á síðasta ári. Þá hafði hún
haldið þar til í eitt til tvö ár og mik
ið magn heimilissorps var á svæð
inu. Það sást þó ekki frá götunni þar
sem trén földu það. Þegar inn í rjóðrið
var komið blasti þó við heil ruslaver
öld, alls kyns litaðir plastpokar, fullir
af heimilissorpi. Konan hafði einnig
komið sér upp eins konar fleti þar
sem hún svaf umkringd ruslinu.
Þegar ruslið var tekið hinn 4. apr
íl síðastliðinn var neðsti hluti trjánna
einnig sagaður þannig að ekki er hægt
að hafa skjól inni í rjóðrinu lengur.
Konan er því ekki lengur þar.
Jón Halldór segir að farið hafi verið
í hreinsunina vegna þess að þeim hafi
borist ábendingar um að það væri
gríðarlegt magn af rusli á svæðinu.
„Það höfðu borist ábendingar frá íbú
um sem höfðu séð þetta rusl þarna,“
segir Jón Halldór. Hann segir starfs
menn hverfisstöðvarinnar sem sáu
um að hreinsa rjóðrið ekki hafa vitað
af því að kona héldi til þarna.
Klipptu til að komast að
Hann segir þá hafa mætt snemma
um morguninn og byrjað að hreinsa
ruslið. Eftir því sem þeir hafi far
ið lengra inn í rjóðrið hafi þeir orðið
varir við konuna. „Þeir héldu að hún
þyrfti kannski aðstoð og þess vegna
hafði verkstjóri samband við lögreglu
sem kom á staðinn,“ segir Jón Halldór.
Hann segir konuna hafa sagt þeim
að hún ætti þessa poka en þeir gert
henni ljóst að þeir þyrftu að hreinsa
þetta rusl. „Í kjölfarið kom lögregla
og ræddi við konuna og þeir héldu
hreinsuninni áfram. Þeir áttu ekki í
frekari samskiptum við hana,“ segir
Jón Halldór spurður út í hreinsun
ina. Hann segir þá hafa skilið eftir
það sem teldist til persónulegra eigna
konunnar, svefnpoka og annað.
Við hreinsunarstarfið klipptu
starfsmenn hverfisstöðvarinnar
einnig neðstu greinar trjánna í rjóðr
inu og því er ekki lengur skjól þar. Jón
Halldór segir það ekki hafa verið gert
til þess að koma í veg fyrir að kon
an héldi þar til heldur hafi þær verið
klipptar til þess að koma ruslinu út úr
rjóðrinu. „Til þess að geta athafnað sig
þarna þurftu þeir að taka einhverjar
greinar og ákváðu svo að snyrta þetta
betur. Þeir þurftu að lyfta ruslinu upp
á vörubíl með tæki,“ segir hann.
Gert að flytja úr íbúð sinni
Ekki er vitað hvar konan hefst við
núna en líklega er hún einhvers stað
ar á vergangi.
Forsaga hennar er löng. Konan
bjó áður í lítilli íbúð í miðbæ Reykja
víkur. Árið 2011 var henni gert, með
úrskurði frá Héraðsdómi Reykjavík
ur, að selja sinn eignarhlut í húsinu
en fyrir dómsúrskurðinn hafði henni
verið meinað að búa í húsinu í nokk
ur ár. Í tæplega þrjátíu ár safnaði hún
heimilissorpi í íbúðina, inni
á sameiginlegum gangi í
húsinu og á lóð hússins.
Eðli málsins samkvæmt
fylgdi söfnuninni mikil
ólykt sem og meindýr sem
einnig fóru inn í hinar íbúð
ir hússins. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli
um að hún skyldi hætta að safna
rusli varð konan ekki við þeim beiðn
um. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,
byggingarfulltrúi, borgarlæknir, land
læknisembættið og aðrir opinberir
aðilar höfðu þá þurft að hafa afskipti
af konunni. Húsfélagið í húsinu hafði
ítrekað skorað á hana að láta af söfn
uninni og sinna eðlilegu viðhaldi, án
árangurs. Því fór svo að henni var gert
að selja sinn eignarhlut.
Íbúðin var tæmd árið 2000, þá
voru bornir út úr henni 170 rusla
pokar en íbúðin var um 30 fermetrar.
Eftir að ruslið hafði verið borið út
kom í ljós að íbúðin var gjörsamlega
ónýt, veggir og gólf gegnsósa og íbúð
in óíbúðarhæf. Eftir það hélt konan
þó áfram að bera rusl í íbúðina þótt
hún mætti ekki búa þar.
Skapaði sér sína eigin ruslaveröld
Eftir að konan flutti úr íbúðinni fékk
hún íbúð frá Félagsmálastofnun gegn
því að hún yrði undir eftirliti. En hún
stoppaði stutt þar við þar sem hún
hélt áfram uppteknum hætti, safn
aði rusli í íbúðina og var að lokum
borin þaðan út. Síðan þá hafði hún
að mestu hafst við í rjóðrinu þar sem
hún fékk yfirleitt að vera í friði og
hafði skapað sér þar sína eigin rusla
veröld. Þar til að ruslið var hreinsað í
burtu í byrjun vikunnar, enda á borg
arlóð.
Þegar DV ræddi við konuna síð
asta sumar sagðist hún bara vilja
fá að vera í friði. Hún hefði efni á
að leigja sér íbúð en fengi ekki leigt
meðal annars vegna fréttaflutnings af
málum hennar, sem hún sagði stór
lega ýktan. Hún sagði einnig að það
væri óþarfi fyrir fólk að skipta sér af
henni, því hún gæti séð um sig sjálf.
Hún nýtir sér stundum úrræði
borgarinnar fyrir heimilislaust fólk en
mál hennar er ólíkt þeirra flestum þar
sem hún er ekki í neyslu eins og flestir
þeir sem eru heimilislausir.
Smáhýsi kemur til greina
Í fyrrnefndri umfjöllun sagði Þorleifur
Gunnlaugsson varaborgarfulltrúi það
ótækt að konan svæfi úti og vildi að
hún fengi einstaklingsmiðað úrræði
sem myndi henta henni. Hann taldi
það skyldu borgarinnar að útvega
henni húsaskjól og stakk upp á að hún
fengi smáhýsi líkt og þau sem eru úti á
Granda. „Það sem ég hef lagt til er að
það verði sett upp færanlegt hús eins
og er úti á Granda. Það yrði þá fylgst
með því ef hún væri að safna og ruslið
þá tekið inni á milli,“ sagði Þorleifur í
fyrrnefndri umfjöllun. Fjögur hús eru
úti á Granda en þau eru hugsuð sem
búsetuúrræði fyrir heimilislausa sem
glíma við fíknivandamál.
Sigtryggur Jónsson, fram
kvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar
Miðborgar og Hlíða, segist ekki geta
tjáð sig um mál einstaklinga en segir
það vel geta komið til greina að konan
fái smáhýsi. „Þessi smáhýsi eru ekki
endilega bara ætluð fyrir fólk í neyslu
og ég vil fá fleiri einingar. Þannig að
það gæti komið til greina,“ segir hann
en ítrekar að hann geti ekki tjáð sig
um einstaka mál. n
n Hafði safnað ótrúlegu magni af heimilissorpi n Söguðu neðstu greinarnar burt
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„ Í kjölfarið
kom lög-
regla og ræddi við
konuna og þeir
héldu hreinsuninni
áfram.
Ekki skjól lengur Konan hefur ekki skjól í rjóðrinu lengur eftir að trjágreinarnar voru
sagaðar burt og ruslið tekið.
Rjóðrið Ruslið var hreinsað úr rjóðrinu og neðstu greinar trjánna sagaðar í burtu.
Konan í rjóðrinu
Þarna sést konan
labba inn í rjóðrið
þegar blaðamaður
DV og ljósmyndari
hittu hana þar í
ágúst á síðasta ári.
Allt í drasli Hreinsað var út úr íbúð sem konan bjó í árið 2000. Þá voru bornir út 170 svartir ruslapokar.