Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 23.–28. apríl 201446 Lífsstíll 1. Vigdís Finnbogadóttirfyrrverandi forseti n „Ein merkasta konan frá landnámi. Lét ekki segja sér fyrir verkum og vann kosningabaráttu sem fáir höfðu trú á að hún gæti gert. Þjónaði lýðveldinu af stakri fagmennsku í 16 ár og er og verður í huga okkar um aldir alda.“ n „Ég dáist enn að henni frá því um árið. Alger nagli og ÓMG virðingin sem hún fær frá mér þegar maður sér viðtöl og fleira úr sjónvarpinu frá því þegar hún var í sinni kosningabaráttu.“ n „Brautryðjandi kvenna. Kona að smokra sér inn í karlaheim helvítis. Svo var hún ein af þeim fyrstu sem ættleiddi barn án maka.“ n „Ég held að ég þurfi ekki að nefna alla þá já- kvæðu strauma og hvatningu sem hún hefur sent ungum konum á Íslandi með því að vera okkar ástsælasti þjóðhöfðingi.“ n „Fyrsti kvenforseti heims sem segir okkur að einhvern tímann er allt fyrst, og hvers vegna ekki lítið land eins og Ísland sem ríður á vaðið? Einstök, hefur þennan þokka. Þú berð einhvern veginn virðingu fyrir henni, sama hvað.“ 2.–3. Aníta Hinriksdóttiríþróttakona n „Hógvær, dugleg og hæfileikarík íþróttakona.“ n „Einbeittur dugnaðarforkur og frábær fyrir- mynd fyrir ungmenni þessa lands. Vonarstjarna sem án efa mun láta meira að sér kveða í fram- tíðinni á hlaupabrautinni.“ n „Heilbrigð sál í hraustum líkama. Aníta hef- ur náð mjög langt í sinni íþróttagrein þrátt fyrir ungan aldur. Hún virðist hafa mikið keppnisskap og vera hógvær á sama tíma. Það er ekki öllum gefið. Góð fyrirmynd fyrir annað íþróttafólk.“ 2.–3. Páll Óskar Hjálmtýssontónlistarmaður n „Lífsglaður reglumaður og frábær fyrirmynd á allan hátt. Það segir mikið um innri styrk hans að hafa komist út úr vítahring eineltis upp í að verða stórstjarna.“ n „Fyrir utan alla hæfileikana þá er hann frábær fyrir- mynd í því að standa með sjálfum sér, þora að vera sá sem hann er, játa veikleika sína og sýna styrkinn. Svo er hann líka hlý og góð manneskja sem sýnir öllum væntumþykju og virðingu sem eiga við hann samskipti.“ n „Hefur ekki sukkað yfir sig.“ DV leitaði til fjölda málsmetandi álitsgjafa í leitinni að bestu fyrirmynd landsins. Margir komust á blað en álitsgjafar blaðsins eru sammála um að frú Vigdís Finnbogadóttir sé best til þess fallin að hljóta nafnbótina Besta fyrirmynd Íslands. indiana@dv.is Vigdís er besta fyrirmyndin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.