Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 10
Helgarblað 23.–28. apríl 201410 Fréttir M ér finnst þetta bara svaka­ legt,“ segir móðir átta ára drengs sem sat uppi með sextán þúsund króna skuld hjá innheimtufyrirtækinu Motus vegna bókar sem hann fékk að láni á bókasafninu. DV greindi frá því á dögunum að dæmi séu um að innheimtufyrirtæki sendi fjárkröf­ ur á ólögráða börn þrátt fyrir að það sé skýrt brot á lögum. Margrét María Sigurðardóttir, hjá skrifstofu umboðs­ manns barna, sagði alltaf óheimilt að beina innheimtu að börnum. Það væri skýrt í lögræðislögum að börn megi ekki stofna til skulda. Móðir drengsins segist ekki skilja hvernig innheimtufyrirtæki geti rukk­ að barn sem er fætt árið 2005 enda eigi ólögráða einstaklingar ekki að geta stofnað til skulda samkvæmt lög­ um. „Þetta er náttúrlega bara fárán­ legt, ég meina, ég fylgi honum í skól­ ann á morgnana og sæki hann aftur seinni partinn, hann er bara átta ára,“ segir móðirin í samtali við DV. Dreng­ urinn var í vettvangsferð á bókasafn­ inu með skólafélögum sínum þegar honum var meinað að fá bók að láni. Hann var miður sín yfir því að geta ekki valið sér bók eins og hinir krakk­ arnir. Síðar kom í ljós að ástæðan var stökkbreytt skuld á kennitölu hans sem lá inni hjá Motus. „Alveg fáránlegt“ Móðir drengsins taldi fyrst að um ein­ hvern misskilning væri að ræða þar sem hún hefði þegar greitt skuld sína við bókasafnið. Hún hringdi í Motus og bað starfsmann þar um að athuga hvort þar lægi inni einhver skuld á hennar nafni: „En þá er engin krafa á mínu nafni og mér fannst þetta voðalega skrítið allt saman. Ég sagði henni að ég væri búin að gera upp við bókasafnið.“ Þá spurði starfsmaðurinn hins vegar hver kennitala stráksins væri. Móðurinni var nokkuð brugðið við þetta. „Mér fannst það náttúrlega alveg fáránlegt. Ég gaf henni upp kennitöluna hans og þá kom í ljós að það var krafa á honum upp á ein­ hverjar sextán þúsund krónur.“ Hún segist hafa fundið sig knúna til þess að greiða skuldina strax með sím­ greiðslu. „Ég gerði það svo að næst þegar hann færi með skólafélögun­ um sínum á bókasafnið gæti hann tekið bók.“ Fleiri börn rukkuð Eins og DV greindi frá fyrr í mánuðin­ um fékk Ólafur Þ. Ólafsson rukk­ un frá Motus vegna meintra skulda sem sonur hans, Ólafur Erick Ólafs­ son Foelsche, átti að hafa stofnað til þegar hann var fimmtán og sautján ára. Ólafur gagnrýndi fyrirtæk­ ið harkalega í samtali við DV. „Mér finnst þetta bara ófyrirleitið, þeir vita að þetta er lögbrot og eru einfaldlega að fara gegn betri vitund.“ Hrafnkell Sigtryggsson, verk­ efnastjóri hjá Motus, sagði hins vegar að verklagsreglur hjá fyrirtækinu væru skýrar. „Við sendum ekki inn­ heimtubréf á ólögráða einstaklinga. Í þeim tilfellum sem reikningar eru gefnir út á ólögráða einstaklinga, en það gera ýmsir aðilar, bæði einka­ aðilar og opinberir, er forsvarsmanni hins ólögráða sent bréfið vegna hans. Séu dæmi um annað eru það mistök.“ Ólafur ræddi við umboðsmann barna í kjölfarið. Þar fékk hann þau skilaboð að þetta væri ekki einsdæmi en DV þekkir fleiri dæmi þess að ólögráða einstaklingar séu rukkaðir af innheimtufyrirtækjum. Hjá um­ boðsmanni barna fengust þær upp­ lýsingar að embættið hefði vissulega fengið sambærilegar ábendingar. Þá stefndi embættið á að senda almenna ábendingu til allra innheimtufyrir­ tækja til að minna á gildandi lög. Móður misboðið Móðir drengsins sem DV ræðir nú við segist ekki hafa tilkynnt málið til umboðsmanns barna. „Ég tek nú yf­ irleitt ekki þátt í neinu svona,“ segir konan sem vill ekki koma fram und­ ir nafni. Staðreyndin sé hins vegar sú að innheimtufyrirtækið hafi al­ gjörlega misboðið henni. „Ég ætla ekki einu sinni að lýsa því hvernig mér leið,“ segir hún en tekur fram að henni hafi blöskrað algerlega: „Hann er fæddur árið 2005.“ Í 5. kafla lögræðislaga númer 71 frá árinu 1997 eru ákvæði er varða fjárræði og meðferð fjármuna barna og unglinga. Samkvæmt lögunum er ófjárráða barni óheimilt að stofna til skulda. Þá kemur fram í lögunum að löggerningar ólögráða manns bindi hann ekki og því sé einstaklingum og lögaðilum með öllu óheimilt að beina kröfu að barni til innheimtu skulda heldur skuli beina innheimtu hennar til forsjáraðila barnsins. Geri fyrirtækið hins vegar samning við ófjárráða einstakling, án samþykk­ is forsjáraðila, tekur það þá áhættu að fá ekki greiðslu samkvæmt samn­ ingnum. n Motus rukkaði átta ára strák Fékk ekki bók í vettvangsferð vegna krafna innheimtufyrirtækisins Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Fékk ekki bók Átta ára drengur þurfti frá að hverfa þegar hann bað um bók að láni á bókasafninu vegna krafna á hendur honum sem lágu inni hjá innheimtufyrirtækinu Motus. Mynd Sigtryggur Ari „Þeir vita að þetta er lögbrot og eru einfaldlega að fara gegn betri vitund. Æstur og ógn- aði lögreglu- mönnum Einn maður gisti fangageymsl­ ur lögreglunnar á Akranesi sök­ um ölvunar. Hafði lögregla ver­ ið kölluð til að skemmtistað þar sem maður væri æstur og ógnandi í hegðun. Þegar lög­ reglu bar að garði réðist mað­ urinn að lögreglubifreiðinni og lamdi hana utan og ógnaði svo lögreglumönnunum sem höfðu komið á vettvang. Var hann því handtekinn og færður í fanga­ klefa þar sem hann svaf úr sér mestu vímuna. Tveir ökumenn voru stöðv­ aðir um helgina grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar reyndist vera undir áhrif­ um kannabisefna en hinn var undir áhrifum kókaíns og am­ fetamíns. Báðir voru þeir hand­ teknir og sleppt að lokinni töku blóðsýna og skýrslutökur. Missti sig í gleðinni Ungur ökumaður missti sig ör­ lítið í gleðinni, eins og það er orð­ að í tilkynningu frá lögreglunni á Akranesi, eftir að hafa fengið bíl­ próf. Í tilkynningu lögreglu kem­ ur fram að ökumaðurinn ungi hafi tekið einn fagnaðarhring á áhorfendasvæðinu á íþrótta­ vellinum á Jaðarsbökkum á lítilli jeppabifreið. Ekki urðu miklar skemmdir af tiltækinu en öku­ maðurinn má hins vegar búast við að þurfa að bæta það tjón sem hann olli. Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is Óskum öllum landsmönnum gleðilegs sumars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.