Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 23.–28. apríl 201446 Lífsstíll
1. Vigdís Finnbogadóttirfyrrverandi forseti
n „Ein merkasta konan frá landnámi. Lét ekki
segja sér fyrir verkum og vann kosningabaráttu
sem fáir höfðu trú á að hún gæti gert. Þjónaði
lýðveldinu af stakri fagmennsku í 16 ár og er og
verður í huga okkar um aldir alda.“
n „Ég dáist enn að henni frá því um árið. Alger
nagli og ÓMG virðingin sem hún fær frá mér
þegar maður sér viðtöl og fleira úr sjónvarpinu
frá því þegar hún var í sinni kosningabaráttu.“
n „Brautryðjandi kvenna. Kona að smokra sér
inn í karlaheim helvítis. Svo var hún ein af þeim
fyrstu sem ættleiddi barn án maka.“
n „Ég held að ég þurfi ekki að nefna alla þá já-
kvæðu strauma og hvatningu sem hún hefur
sent ungum konum á Íslandi með því að vera
okkar ástsælasti þjóðhöfðingi.“
n „Fyrsti kvenforseti heims sem segir okkur að
einhvern tímann er allt fyrst, og hvers vegna
ekki lítið land eins og Ísland sem ríður á vaðið?
Einstök, hefur þennan þokka. Þú berð einhvern
veginn virðingu fyrir henni, sama hvað.“
2.–3. Aníta Hinriksdóttiríþróttakona
n „Hógvær, dugleg og hæfileikarík íþróttakona.“
n „Einbeittur dugnaðarforkur og frábær fyrir-
mynd fyrir ungmenni þessa lands. Vonarstjarna
sem án efa mun láta meira að sér kveða í fram-
tíðinni á hlaupabrautinni.“
n „Heilbrigð sál í hraustum líkama. Aníta hef-
ur náð mjög langt í sinni íþróttagrein þrátt fyrir
ungan aldur. Hún virðist hafa mikið keppnisskap
og vera hógvær á sama tíma. Það er ekki öllum
gefið. Góð fyrirmynd fyrir annað íþróttafólk.“
2.–3. Páll Óskar Hjálmtýssontónlistarmaður
n „Lífsglaður reglumaður og frábær fyrirmynd á allan
hátt. Það segir mikið um innri styrk hans að hafa komist
út úr vítahring eineltis upp í að verða stórstjarna.“
n „Fyrir utan alla hæfileikana þá er hann frábær fyrir-
mynd í því að standa með sjálfum sér, þora að vera sá
sem hann er, játa veikleika sína og sýna styrkinn. Svo
er hann líka hlý og góð manneskja sem sýnir öllum
væntumþykju og virðingu sem eiga við hann samskipti.“
n „Hefur ekki sukkað yfir sig.“
DV leitaði til fjölda málsmetandi
álitsgjafa í leitinni að bestu fyrirmynd
landsins. Margir komust á blað en
álitsgjafar blaðsins eru sammála um
að frú Vigdís Finnbogadóttir
sé best til þess fallin að hljóta
nafnbótina Besta fyrirmynd Íslands.
indiana@dv.is
Vigdís er besta fyrirmyndin