Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 23.–28. apríl 20144 Fréttir
Ræður tvo vini sína
sem framkvæmdastjóra
n Forstjóri Símans hyglar vinum n Mikil samkeppni á símamarkaði
O
rri Hauksson, forstjóri
Símans, hefur ráðið tvo
af sínum nánustu vinum
sem framkvæmdastjóra
hjá fyrirtækinu eftir að
hann tók við starfi sínu. Um er að
ræða þá Magnús Ragnarsson, fyrr-
verandi sjónvarpsstjóra á Skjánum
og aðstoðarmann Illuga Gunnars-
sonar, og Gunnar Fjalar Helgason,
fjárfesti og hluthafa í vogunarsjóðn-
um Boreas Capital.
Orri Hauksson var ráðinn for-
stjóri Símans í febrúar á þessu ári
eftir að hafa verið framkvæmdastjóri
móðurfélagsins Skipta frá því í
október á síðasta ári. Hann var áður
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins og var ráðning hans til Skipta
niðurstaða í ferli þar sem Helgi
Magnússon, stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna og fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, og Höskuldur Ólafs-
son, bankastjóri Arion, tókust á um
hver yrði næsti forstjóri Símans.
Helgi vildi Orra í starfið en Höskuld-
ur reyndi að koma því til leiðar að
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Arion banka, yrði
næsti forstjóri félagsins.
Í eigu lífeyrissjóða
Ráðningin á Orra var því niður-
staðan í valdabaráttu á milli tveggja
máttugustu hluthafa Símans. Arion
banki á rúm 38 prósent í Skiptum
og Lífeyrissjóður verslunarmanna á
rúm 13 prósent. Helgi Magnússon
hafði því betur í baráttunni um for-
stjórastólinn. Þar kann að spila inn í
að flestir hluthafar Skipta eru lífeyr-
issjóðir en Helgi Magnússon er einn
valdamesti maðurinn innan lífeyris-
sjóðakerfisins. Orri Hauksson er því,
ef svo má segja, forstjóri Símans í
skjóli íslenskra lífeyrissjóða.
Eigendur íslenskra lífeyrissjóða
eru sjóðsfélagar þeirra og því má
segja að lífeyrissjóðirnir séu í eigu
þjóðarinnar. Stjórnendur og starfs-
menn lífeyrissjóðanna eru því í
vinnu fyrir sjóðsfélagana, þjóðina.
Orri Hauksson virðist hins vegar vera
að útdeila gæðum, hálaunastörfum í
fyrirtæki sem eru að miklu leyti í eigu
lífeyrissjóða, til vina sinna.
Tengslin við Björgólf Thor
Orri Hauksson er fyrrverandi starfs-
maður símafyrirtækis Björgólfs
Thors Björgólfssonar, Nova, og eru
þeir góðir vinir. DV greindi með-
al annars frá ferðalagi sem þeir fóru
í um Bandaríkin í ágúst árið 2009.
Þá fóru þeir saman á mótorhjólahá-
tíð í bænum Sturgis í Suður-Dakóta
í Bandaríkjunum en Björgólfur Thor
átti þá hlutabréf í mótorhjólafyrir-
tækinu Indian.
Orri hefur því reynslu af síma-
markaðinum á Íslandi frá öðru fyr-
irtæki hér á landi. Markaðshlutdeild
Nova hefur aukist mikið hér á landi
á liðnum árum, ekki síst hjá yngri
farsímanotendum, og er fyrirtækið
nú með 31 prósents markaðshlut-
deild á móti 36 prósenta markaðs-
hlutdeildar Símans og 27 prósenta
markaðshlutdeildar Vodafone.
Nú er svo komið að Orri er
orðinn forstjóri þessa stærsta síma-
fyrirtækis landsins og er í beinni
samkeppni við Björgólf. Athygli
vekur að Gunnar Fjalar Helgason
tengist einnig Björgólfi Thor í gegn-
um vogunarsjóðinn Boreas Capital.
Sjóðirnir var meðal annars í eigu
Gunnars Fjalars og einnig æsku-
vinar Björgólfs Thors, Franks Pitts.
Boreas Capital var meðal annars
hluthafi í fjárfestingarbanka Björg-
ólfs, Straumi-Burðarási, og fékk
lánafyrirgreiðslu í Landsbanka
hans, auk þess sem eignir vogunar-
sjóðsins voru vistaðar hjá Lands-
bankanum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Ráðningin á
Orra var því niður-
staðan í valdabaráttu á
milli tveggja máttugustu
hluthafa Símans.
Þ
etta var rosalegur skellur fyrir
mig. Þetta var kjarnorkuslys á
mínum ferli,“ segir Páll Bragi
Kristjónsson, fyrrverandi
forstjóri Eddu-útgáfu, um förgun
fyrsta upplags Thorsara-bókarinn-
ar árið 2005 í bókinni Hamskiptun-
um: Þegar allt varð falt á Íslandi eftir
Inga F. Vilhjálmsson.
Í bókinni ræðir Páll Bragi um
förgun bókarinnar en í henni var
kafli um hjónaband eiginkonu
Björgólfs Guðmundssonar, Þóru
Hallgrímsson, og bandaríska nas-
istans, George Lincoln Rockwells.
Björgólfur var eigandi Eddu-útgáfu
árið 2005 og var Páll Bragi forstjóri
fyrirtækisins vegna áralangrar vin-
áttu þeirra. Í bókinni segir Páll Bragi
að hann hafi hins vegar tekið ein-
hliða ákvörðun um að farga fyrsta
upplagi hennar og að Björgólfur
hafi ekki komið þar nærri. Hann
segir að kaflinn um hjónabandið
hafi lent inni í bókinni án þess að
hann hefði vitað af því og að mark-
miðið með bókinni hefði aldrei ver-
ið að fjalla sérstaklega um barna-
börn Thors Jensen, aðeins börn
hans. Kaflinn um Þóru, barnabarn
Thors, hafi því ekki átt heima í bók-
inni.
Miðað við orð Páls Braga þá
greip hann til þess ráðs að farga
fyrsta upplagi bókarinnar þegar
hann komst að því að umfjöllunin
hafði ratað inn í bókina. Svo segir
Páll Bragi: „Hvernig átti ég að vera
frumkvöðull í því að rifja upp ein-
hver viðkvæmnismál gagnvart Þóru
Hallgrímsson? Þannig að ég átti
ekkert val. Ég sé alls ekki eftir þessu
þar sem ég hefði ekki getað litið í
spegil ef ég hefði verið ábyrgur fyr-
ir þessum texta. Þetta er gríðarlega
vondur blettur í mínu lífi þannig
að ég hef ekkert verið að rifja þetta
upp.“ n ritstjorn@dv.is
„Kjarnorkuslys á mínum ferli“
Páll Bragi Kristjónsson opnar sig um förgun Thorsarabókarinnar
Fróðleg staða Orri Hauksson stýrir
nú stærsta símafyrirtæki landsins og
hefur ráðið tvo vini sína þangað, eftir
að hafa starfað hjá Nova, símafyrir-
tæki Björgólfs Thors Björgólfssonar.
20 prósent
vilja nýjan
hægriflokk
Nýtt framboð Evrópusinnaðra
hægrimanna er í startholunum en
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2 eru
20,7 prósent sem segja mjög eða
frekar líklegt að þeir myndu kjósa
nýja framboðið.
Framboðið myndi sennilega
sækja fylgi sitt til Samfylkingar og
Bjartrar framtíðar í stað þess að
taka fylgi af Sjálfstæðisflokknum.
34 prósent þeirra sem seinast kusu
Samfylkinguna segja það mjög
eða frekar líklegt að þeir myndu
kjósa framboðið samanborið við
einungis 15,7 prósent þeirra sem
kusu Sjálfstæðisflokkinn.
Benedikt Jóhannesson og
Sveinn Andri Sveinsson eru meðal
þeirra sem standa að undirbún-
ingi framboðsins. Þorsteinn Páls-
son, fyrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur jafnframt
verið bendlaður við framboðið en
hann vill ekki staðfesta aðkomu
sína að undirbúningnum.
Hrafnseyri
verður nettengd
Samningar hafa náðst milli
menntamálaráðuneytisins og
tölvufyrirtækisins Snerpu þess
efnis að Snerpa tengi ljósleiðara
á Hrafnseyri í Arnarfirði. BB.is
greinir frá en síðastliðið haust
tók Snerpa í notkun ljósleiðara
Orkufjarskipta frá Tjaldanesi í
Mjólká og nú hafa náðst samn-
ingar um að tengja Hrafnseyri inn
á þessa nýju leið.
Það mun taka tíma að koma
á tengingunni, líklega verður
það ekki fyrr en undir lok maí.
4–6 vikna afgreiðslufrestur er á
nauðsynlegu efni frá birgjum og
svo þarf að leggja ljósleiðarana.
Með tengingunni má ætla að nýir
möguleikar verði til varðandi ráð-
stefnuhald og námskeiðahald á
Hrafnseyri, þar sem skortur hefur
verið á góðu netsambandi.
„Skellur“ Páll Bragi greinir frá því að
kaflinn um hjónaband Þóru Hallgrímsson,
eiginkonu Björgólfs Guðmundssonar, og
George Lincoln Rockwells hafi verið skellur
fyrir sig.