Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 6
6 Fréttir Helgarblað 23.–28. apríl 2014
H
ætta skapaðist þegar sprengi-
efni sem nota átti við ganga-
gerð í Vaðlaheiðargöngum
rataði í þvottahús Grand
þvottar fyrir skemmstu.
Sprengiefnið sem um ræðir var í vös-
unum á vinnugöllum starfsmanna
og fannst ekki fyrr en búið var að þvo
flíkurnar. Því er ljóst að illa hefði get-
að farið þegar það veltist um í þvotta-
vélinni.
„Það voru þrjár rauðar stangir í
vösunum á göllunum,“ segir eigandi
Grand þvottar, þvottahússins sem
sér um að þrífa vinnugalla ganga-
gerðarmanna í Vaðlaheiðargöngum,
í samtali við DV. Hann segist hafa sett
sprengiefnið í fötu eftir að það fannst
og beðið eftir að yfirmaður frá verk-
takanum kæmi og sækti það. „Hann
sagðist ætla að fara með það til vinnu-
mannanna og sýna þeim hvað gæti
leynst í vösunum á vinnugöllunum,“
segir hann.
Samkvæmt heimildum DV er
meðferð sprengiefna mjög ábótavant
á svæðinu og er atvikið úr þvottahús-
inu aðeins eitt af því sem nefnt er til
sögunnar.
„Sá sem sótti efnið sagði við mig
að láta efnið vera og vera ekki að
lemja í það. Það væri hættulegt og við
vorum í raun heppin að ekkert kom
fyrir,“ segir eigandi þvottahússins.
Keyra með efni á þjóðvegi eitt
Sérstakur jeppi er notaður til að fara
með sprengiefni á milli staða innan
vinnusvæðisins, en samkvæmt heim-
ildum DV er þó stundum farið á hon-
um í vinnubúðirnar sem eru í um
hálfs kílómetra fjarlægð frá vinnu-
svæðinu. Til þess að komast þangað
þarf að fara niður á þjóðveg eitt og á
palli jeppans hafa verið hvellhettur
og annar sprengibúnaður þegar far-
ið er niður í vinnubúðir. Miðað við
orð yfirmannsins sem sótti sprengi-
efnið í þvottahúsið getur slíkt ver-
ið stórhættulegt, því þótt notast þurfi
við rafmagn til að sprengja hvell-
hettur þá getur högg einnig orsakað
sprengingu. Ekki þyrfti því að spyrja
að leikslokum, færi svo að jeppinn
myndi lenda í árekstri á þeim stutta
kafla sem fara þarf á þjóðvegi eitt.
Tekið á öryggismálum
Vinnureglum var breytt í kjölfarið á
fundi Vinnueftirlitsins, verkkaupa og
verktaka. Meira virðist þó þurfa til,
því samkvæmt heimildum DV lenti
vanur sprengjumaður í því að vera
að undirbúa sprengingu þegar ann-
ar setti hana af stað. Maðurinn var
staddur nokkra tugi metra frá stafnin-
um og var að tengja rafmagnsleiðslur
þegar sprengingin varð, en hann gaf
merki um að leiðslan væri tengd en
gafst þó ekki tími til að koma sér í al-
mennilegt skjól.
Verkalýðsfélagið Eining-Iðja og
Vinnueftirlitið hafa þurft að taka á ör-
yggismálum í göngunum. „Auðvitað
geta alltaf orðið einhver frávik og þá er
unnið í því strax. Við höfum ekki feng-
ið kvartanir áður vegna þess að menn
hafi verið óundirbúnir í göngunum
þegar sprengt er,“ segir Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar-Iðju.
„Samvinnan hefur verið ljómandi
góð. Búið er að breyta viðvörunar-
kerfinu og menn eiga að fá viðvörun
þegar sprengt er,“ segir Björn.
Sprengdu á Hilmar
Í síðustu viku fjallaði DV um Hilmar
Brynjólfsson, sem starfaði sem úti-
maður við gangagerðina. Hann hætti
eftir að hafa lent í því í þriðja sinn að
vera inni í göngunum þegar sprengt
er. „Eftir að þetta gerðist í annað sinn
þá lét ég yfirmann minn vita að ef
þetta gerðist í þriðja sinn þá liti ég á
það sem uppsögn,“ segir Hilmar, sem
tilkynnti sjálfur um atvikið til Vinnu-
eftirlitsins. Samstarfsmaður Hilmars
staðfestir frásögn hans og segist sjálf-
ur hafa lent tvisvar sinnum í því sama,
en hann var einnig í göngunum á
sama tíma og Hilmar þegar síðasta at-
vik af þessu tagi kom upp á. n
Sprengiefni
„Við vorum í
raun heppin
að ekkert kom fyrir
n Kom frá Vaðlaheiðargöngum n Hefði getað sprungið
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
í þvottahúSi
Borað fyrir sprengiefni
Sprengiefni fór með vinnugöllum
á þvottahús sem þjónustar verk-
takana í Vaðlaheiðargöngum.
H
éraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Sigurjón Jónsson og Arn-
dísi Arnardóttur í mánaðarfang-
elsi, skilorðsbundið til tveggja
ára, fyrir fjársvik í IKEA. Nánar tiltekið
fyrir þær sakir að hafa hinn 7. október
blekkt starfsmann við afgreiðslukassa í
IKEA til að afgreiða borðgrind að verð-
mæti 89.950 gegn greiðslu 3.650. Það
eru þau sökuð um að hafa gert með því
að koma fyrir eða nýta sér strikamerki
hliðareiningu, að verðmæti 3.650 kr.
Bæði neituðu þau sök þrátt fyrir að
greidd hafi verið sátt í einkamáli sem
IKEA höfðaði. Auk fangelsisdómsins
þurfa þau að greiða málskostnað sinn,
hvort um sig 313 þúsund krónur, en
einnig þurfa þau að greiða óskipt 125
þúsund krónur í málskostnað sem
kom til á meðan rannsókn málsins
stóð yfir.
Sigurjón sagði í aðalmeðferð máls-
ins að hann hefði ekki viljað greiða
sættir, en faðir hans hefði á endanum
greitt upphæðina til þess að koma í
veg fyrir dýrt dómsmál.
Sigurjón og Arndís segjast hafa
keypt borðgrindina í afmælisgjöf
handa vini sínum. Þeim fannst ekki
skjóta skökku við að svo stórt húsgagn
kostaði 3.650 krónur. Vininum fannst
þó gjöfin helst til of rausnarleg. En
fram kom að hann vildi skila henni og
aðeins viljað þiggja átta þúsund króna
gjafabréf.
Þótt verðmunurinn sé mikill segist
Arndís ekki hafa áttað sig á honum og
bar við minnisleysi og því að á þessum
tíma hafi hún verið ólétt.
Áður hafði hálfbróðir Sigurjóns,
héraðsdómslögmaðurinn Snorri
Vidal, og kærasta hans, Sigurbjörg
Þorvaldsdóttir, játað greiðlega á sig
sök í IKEA-málinu. Þau voru dæmd
til tveggja mánaða skilorðsbundinn-
ar fangelsisrefsingar fyrir þjófnaðinn
en þau stálu vörum kerfisbundið úr
IKEA með því að færa á milli strika-
merki á vörum og skila þeim. Brot-
in sem dæmt var fyrir áttu sér stað á
tímabilinu 1.–30. september 2012, og
eru alls fimm talsins. n
simon@dv.is
Skilorð í Ikea-máli
Bar fyrir sig minnisleysi og óléttu
Sumarveður
næstu daga
Ef veðurspár ganga eftir fá lands-
menn smjörþefinn af því sem
koma skal í sumar. Í dag, mið-
vikudag, gæti hitinn farið upp í 14
gráður á höfuðborgarsvæðinu en
gert er ráð fyrir að léttskýjað verði
víðast hvar á landinu. Samkvæmt
Veðurstofu Íslands verður hitinn
á bilinu 10 til 15 stig víða annars
staðar á landinu.
Þrátt fyrir sólríkju og sæmi-
legan veðurhita má gera ráð fyr-
ir því að vindur verði þónokkur,
einna helst suðvestanlands. Þá
má gera ráð fyrir því að hiti verði
lægstur á Suðausturlandi og yst á
Norðausturlandi.
Segja má að um eiginlega
hitabylgju sé að ræða, þar sem
meðalhiti í Reykjavík í apríl er að-
eins tæpar þrjú stig.
Tvær íkveikjur
„Þetta er tilviljun, geri ég fast-
lega ráð fyrir,“ segir Viðar Þor-
leifsson, aðalvarðstjóri Slökkvi-
liðs Akureyrar, en gerð var tilraun
til að kveikja í húsnæði Verk-
menntaskólans á Akureyri að
kvöldi annars í páskum. Þetta er
önnur íkveikjan á Akureyri með
skömmu millibili, en reynt var
að kveikja í Akureyrarkirkju fyr-
ir páska. Íkveikjan í kirkjunni er
enn óupplýst en brennuvargurinn
sem ætlaði sér að kveikja í skólan-
um hefur verið handsamaður.
Lögreglu og slökkviliði barst
tilkynning seint um kvöld að eld-
ur logaði við skólann. Rusli hafði
verið hrúgað við eitt húshornið og
eldur borinn að. Lögreglan á Ak-
ureyri handtók stúlku á átjánda
ári sem játaði á sig verknaðinn án
þess að gefa skýringu á hegðun
sinni. En skyldu fregnir af íkveikj-
um leiða af sér fleiri íkveikjur?
„Það hefur oft áhrif. Það er ekkert
algilt þó í þeim efnum og ég veit
það ekki hvað vakir fyrir fólki sem
gerir svona. Ég ætla hreinlega að
vona að þetta endurtaki sig ekki.“
Sættir í einkamáli Einkamál IKEA gegn
sakborningum var leyst með sátt.