Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Síða 8
Helgarblað 23.–28. apríl 20148 Fréttir
E
ggjum var kastað í hús fjöl-
skyldu barns sem varð að sögn
fyrir einelti kennara í Grindavík.
DV hefur greint frá máli manns-
ins en hann er sakaður um að beita
mörg börn einelti í starfi sínu sem
kennari við grunnskólann.
Stefán Karl Stefánsson leikari hef-
ur látið málið sig varða en hann er
fyrrverandi formaður Regnboga-
barna, samtaka sem stofnuð voru
gegn einelti. „Það hefur fólk haft sam-
band við mig frá Grindavík, bæði fólk
sem á börn í skólanum núna og fólk
sem var í skólanum fyrir þrjátíu árum
síðan. Og allt þar á milli.“
Stefán Karl var í viðtali við
Harmageddon á X-inu 97,7 í morgun
þar sem hann greindi frá því að fólk
skiptist í fylkingar vegna málefna
kennarans í Grindavík. „Það varð
önnur fjölskyldan fyrir því í nótt að
húsið þeirra var eggjað. Fjölskylda
fórnarlambs þessa manns. En það er
ekkert á vegum þessa manns. Þetta
eru eflaust einhverjir vitleysingar í
Grindavík sem hafa tekið sig til og
grýtt eggjum í húsið.“
Stefán Karl segir málið ekki snúast
um einn kennara í skólanum. „Þetta
snýst bara ekkert um einhvern einn
kennara – þetta er miklu flóknara mál
en það. En umræðan hefur snúist um
einn stakan kennara sem hefur verið
að leggja í einelti. Það hafa verið gerð-
ar rannsóknir, rannsóknir óháðra sál-
fræðinga, sem taka af allan vafa að
um einelti er að ræða.“
Segir Stefán að börn hafi ver-
ið með „líkamleg einkenni“ vegna
vanlíðanar. „Þetta hefur gengið svo
langt að foreldrar eru að taka börnin
úr skólanum vegna líkamlegra ein-
kenna sem hafa komið í ljós vegna
andlegrar vanlíðanar barnanna. Samt
heldur maðurinn áfram að kenna.“
„Það má segja að það sé ekkert
gert. Þetta er bara því miður mjög al-
gengt og þetta einskorðast ekkert við
Grindavík. Tillögurnar sem koma frá
skólastjórnendum er að kennarinn
sé bara færður innar í ganginn,“ segir
Stefán Karl enn fremur. n
simon@dv.is
Eggjum kastað í húsið
Barn sem varð fyrir einelti kennara tekið fyrir af „vitleysingum“
Fengu tíu milljarða
króna fyrir Stálskip
n Eiga um 13 milljarða eignir n Kvótinn seldur á 8 milljarða
H
jónin Guðrún Lárusdóttir og
Ágúst Sigurðsson standa eft-
ir með um þrettán milljarða
króna eftir að hafa selt eignir
útgerðarfélagsins Stálskipa í
byrjun ársins. Söluverðið á aflaheim-
ildum félagsins var um átta milljarðar
króna og söluverðið á togara félags-
ins, Þór, var um 1.900 milljónir. Þetta
herma heimildir DV.
Fyrir söluna áttu Stálskip um þrjá
milljarða króna inni á bankabók og
þar sem eignir félagsins voru seldar út
úr félaginu þá bætist söluhagnaður-
inn við þær eignir sem fyrir voru inni í
félaginu. Eftir standa umræddir millj-
arðar inni á bankareikningi félagsins
auk söluhagnaðar upp á um tíu millj-
arða. Skuldir Stálskipa voru takmark-
aðar enda höfðu þau hjónin rekið
Stálskip af þekktri ráðdeildarsemi frá
árinu 1970.
Í samtali við DV vill Ágúst ekki
staðfesta þær tölur um söluverðið á
Stálskipum sem birtar eru hér. Ágúst
segir: „Þú ert frá Dagblaðinu já. Við
tölum ekki við DV af því þið farið alltaf
með rangar fréttir og reynið að skíta
okkur út.“ DV hefur hins vegar tvær
heimildir fyrir þessum tölum.
Félög Samherja keyptu
Félögin sem keyptu aflaheimildir
Stálskipa eru tengd útgerðarrisanum
Samherja. Um var að ræða Síldar-
vinnsluna, Gjögur og Útgerðarfélag
Akureyringa. Samherji á Útgerðarfé-
lag Akureyringa og er stærsti hluthafi
Síldarvinnslunnar. Samherji ræður
orðið, beint eða óbeint, yfir mestum
aflaheimildum íslenskra útgerðarfé-
laga þótt beint eignarhald félagsins á
aflaheimildum sé ekki það mesta —
HB Grandi er stærsti einstaki kvóta-
eigandi á Íslandi.
Um miðbik árs í fyrra sagði Ágúst
í samtali við DV að þau hjónin væru
orðin þreytt á því ati sem fylgdi rekstri
Stálskipa. Þá höfðu ýmsir aðilar haft
samband við þau með það fyrir aug-
um að kaupa útgerðina. Sagði Ágúst
að þau Guðrún væru orðin öldruð og
að þau gætu ekki rekið útgerðina mik-
ið lengur. „Maður veit ekki hvenær
kallið kemur. Það getur komið á
morgun eða hinn. Maður bara veit
það ekki.“
Stálskip ætlar í kjölfarið að ein-
beita sér að fjárfestingarstarfsemi
enda er félagið heldur betur fjársterkt:
Á um 13 milljarða króna eignir.
Kvótinn seldur á átta milljarða
Salan á Stálskipum sýnir mjög vel
stöðuna í íslenskum sjávarútvegi.
Stálskip átti ekki þann kvóta sem fé-
lagið seldi fyrir um átta milljarða
króna heldur hafði félagið aðeins ráð-
stöfunarrétt yfir honum vegna veiði-
reynslu félagsins. Eigendur Stálskipa
voru sannarlega búnir að eiga og reka
fyrirtækið lengi og reka það vel. Þau
höfðu hins vegar tekið sér ríflegan
arð út úr fyrirtækinu í gegnum árin,
líkt og margir aðrir eigendur sjávarút-
vegsfyrirtækja. Til að mynda tóku þau
158 milljónir króna út úr fyrirtækinu í
fyrra vegna rekstrarársins.
Eigendurnir hafa því fengið arð út
úr félaginu á meðan þeir ráku það;
drjúgan arð sem nemur margföldum
árslaunum venjulegra launamanna.
Til viðbótar við þetta byggði félagið
upp sterka eiginfjárstöðu vegna hagn-
aðar af fiskveiðum sem ekki var tekinn
út úr félaginu. Svo seldu eigendurnir
aflaheimildir félagsins ofan á þessa
fjármuni, arðinn og það eigið fé sem
var inni í fyrirtækinu. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Tíu milljarða sala Guðrún
Lárusdóttir og eiginmaður hennar
seldu eignir Stálskipa á tíu millj-
arða króna. Mynd VIðSKIpTablaðIð
„Maður veit
ekki hvenær
kallið kemur
Flogaveikilyf á
Litla-Hrauni
Fangaverðir á Litla-Hrauni fundu
um 100 Rivotril-töflur á heim-
sóknargesti á föstudaginn langa.
Gesturinn var handtekinn og
mun mál hans fá venjubundna
afgreiðslu. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá lögreglunni á
Selfossi um verkefni páskahelg-
arinnar. Lyfið sem um ræðir er
skráð flogaveikilyf, en er þó að
mestu notað gegn kvíða. Í of-
skömmtum veldur lyfið mikilli
vímu.
Féll af hestbaki
og brotnaði
Ungur maður beinbrotnaði er
hann féll af hestbaki í Ölfusi
skömmu eftir hádegi föstudags-
ins langa. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá lögreglunni á Sel-
fossi. Maðurinn var í hóp með
öðrum er slysið varð. Hann
var fluttur með sjúkrabifreið á
heilsugæsluna á Selfossi þar sem
gert var að meiðslum hans.
Aðfaranótt mánudags, annars
í páskum, voru unnin skemmdar-
verk á BMW-fólksbifreið sem
stóð við Gagnheiði á Selfossi.
Einhver lagði á sig að sparka í
vinstri afturhurð bifreiðarinn-
ar, brjóta vinstra afturljós, brjóta
af hliðarspegli vinstra megin og
rispa skottlok. Ef einhver veit
hver þarna var að verki er sá
beðinn að koma upplýsingum til
lögreglu í síma 480 1010.
Greiddi 100
þúsund á
staðnum
Erlendur ferðamaður var staðinn
að ofsaakstri á Suðurlandsvegi
um páskahelgina en bifreið
mannsins mældist á 154 kíló-
metra hraða. Í tilkynningu frá
lögreglu kemur fram að maður-
inn hafi greitt sekt sína, tæpar
hundrað þúsund krónur, á staðn-
um.
Í heild voru nítján ökumenn
kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi
lögreglunnar á Selfossi. Tveir
voru kærðir fyrir fíkniefnaakstur
og einn fyrir að aka sviptur öku-
réttindum. Var þetta í þriðja sinn
sem sá er kærður fyrir slíkt brot.
Eggjakast „Það varð önn-
ur fjölskyldan fyrir því í nótt
að húsið þeirra var eggjað,“
sagði Stefán Karl.