Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 15
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Fréttir 15 n Gerðu heimildarmynd um meðferðarúrræði n Hefur fylgst með baráttu litlu systur hún væri búin að gefast upp og væri tilbúin til þess að taka því ef hann myndi deyja. Ég var ekki tilbúin til þess að sleppa tökum á honum og sat ein uppi með ábyrgðina. Svo þegar hann fór loks í með­ ferð þá fékk hann ekki að fara þangað sem hann vildi fara held­ ur var hann sendur aftur í úrræði sem hann vildi ekki fara í og taldi ekki henta sér. Þannig að hann fór aftur út eftir nokkra daga og aftur í neyslu.“ Finna fyrir fordómum Þær segja mikilvægt að fylgja þessum börnum mun betur eft­ ir en nú er gert. Börnin þurfi líka að fá tækifæri til þess að snúa við blaðinu. „Við berum ábyrgð gagn­ vart þessu unga fólki. Það hjálp­ ar ekki að tala niður til þeirra eða gera lítið úr þeim. Unga fólkið sem við töluðum við sagðist hafa mætt fordómum sem gerðu því erfitt fyrir að koma undir sig fót­ unum,“ segir Sædís. Laufey bendir á að það vilji enginn enda í þessari stöðu. „Það fæðist enginn með það markmið í lífinu að verða dópisti sextán ára. Það er litið á vímuefnaneyt­ endur sömu augum og glæpa­ menn. Ein stelpan sem við töluð­ um við sagði að hún hefði komið úr meðferð með betra sjálfstraust en áður. Það reyndist henni hins vegar erfitt að fá vinnu því það höfðu birst fréttir af afglöpum hennar í neyslu. Með tímanum missti hún vonina og fór aftur í sama gamla farið. Fólk var búið að ákveða að hún væri bara dópisti og aumingi vegna fortíðarinnar, í stað þess að gefa henni tækifæri og hjálpa henni að koma undir sig fótunum. Það er mikilvægt að við förum að viðurkenna þessi vandamál sem vandamál. Að þetta sé ekki afgreitt sem einhver óþægindi eða leiðindi.“ n Eyða meira en Íslendingar í útlöndum n Jákvæð þróun í kortaviðskiptum n Ferðamenn strauja kortin sem aldrei fyrr K ortavelta útlendinga hér á landi í mars síðastliðnum nam 6.744 milljónum króna, sem er 29 prósent hærri fjár­ hæð í krónum talið en þeir eyddu í mars í fyrra. Þetta kemur fram í töl­ um sem Seðlabanki Íslands birti í síðustu viku og Greining Íslands­ banka vitnar til á vef sínum. Á sama tíma nam kortavelta Ís­ lendinga í útlöndum 6.221 milljón króna og var kortaveltujöfnuður, sem er kortavelta útlendinga hér á landi að frádreginni kortaveltu Ís­ lendinga í útlöndum, þar með já­ kvæður um 523 milljónir króna. Í frétt Greiningar Íslandsbanka kem­ ur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem útlendingar eyða meiru hér á landi en Íslendingar í útlöndum í mars­ mánuði. Til samanburðar má nefna að í mars í fyrra var kortaveltujöfn­ uður neikvæður um 617 milljónir króna og árið þar á undan neikvæð­ ur um 1.879 milljónir króna. „Ofan­ greind þróun er framhald af þeirri þróun sem átti sér stað á fyrstu tveimur mánuðum ársins, og hafa erlendir ferðamenn náð að strauja kortin sín fyrir rúma 18,4 milljarða króna nú á fyrsta fjórðungi ársins. Á sama tímabili nemur kortavelta Ís­ lendinga í útlöndum 17,7 milljörð­ um króna og er kortaveltujöfnuður jákvæður um sem nemur 708 millj­ ónum króna.“ Greining Íslandsbanka segir að vart þurfi að benda á að hér sé um afar jákvæða þróun að ræða, ekki síst í ljósi þess að netviðskipti Ís­ lendinga telji orðið ansi drjúgt í kortanotkun þeirra á erlendri grundu. „Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikilvæg þessi þróun er fyrir gjaldeyrisflæði til og frá landinu, sér í lagi þar sem verðþróun á útflutn­ ingsvörum Íslands var óhagstæð á síðasta ári.“ n einar@dv.is Ferðamenn Erlendir ferðamenn eyddu meira í marsmánuði hér á landi en Íslendingar í útlöndum. Það hefur ekki gerst áður í marsmánuði. Morðingi Hinriks loksins fyrir dómi n Jermaine segist hafa skotið í sjálfsvörn n Ættingjar segja biðina erfiða Þ etta hefur verið ómann­ eskjuleg bið,“ segir aðstand­ andi Kristjáns Hinriks Þórs­ sonar, sem lést í skotárás í Tulsa í Bandaríkjunum laugardaginn 8. september 2012. Réttarhöld yfir morðingja Hinriks, eins og hann var alltaf kallaður, hófust á mánudag þegar valdir voru kviðdómendur en sjálf réttarhöldin og vitnaleiðslur hefjast í dag, miðvikudag. „Þetta hefur hvílt mjög þungt á okkur. Hann kemur auðvitað aldrei aftur en þetta eru síðustu kaflarnir í þessu máli,“ segir fjölskyldumeð­ limurinn í samtali við DV. Hann seg­ ist kvíða réttarhöldunum og býst við því að þetta verði erfitt ferli. Skaut tíu sinnum Hinrik lést, sem áður sagði, í skotárás sem gerð var á bifreið þar sem hann var farþegi. Bílstjóri bifreiðarinnar, John White, lést einnig í skotárásinni. Hinrik var aðeins átján ára gamall og átti að útskrifast úr bandarískum menntaskóla vorið 2013. Jermaine Jackson, sem er 19 ára gamall, hefur játað að hafa orðið Hinrik og John að bana. Fyrst ját­ aði hann en kvaðst ósakhæfur vegna geðrænna erfiðleika. Hann hefur nú breytt vörn sinni og segist hafa skot­ ið á bílinn í sjálfsvörn, en alls skaut hann tíu skotum. „Þetta var þannig að þeir mættu honum þegar þeir voru að keyra frá heimili Hinriks út á bensínstöð,“ segir aðstandandinn. „Jermaine fannst þeir keyra eitthvað nálægt sér, of nálægt. Jermaine elti þá þess vegna hlaupandi og þegar þeir voru komnir nærri bensínstöð­ inni hleypti hann af tíu sinnum.“ Hann segist eiga erfitt með að skilja hvernig hægt sé að bera við sjálfsvörn við þessar aðstæður. „Það er fimm mínútna hlaup hið minnsta að bensínstöðinni. Ég skil ekki þessa vörn,“ segir hann. Miklar tafir Málið hefur tafist nú í langan tíma. Jermaine var handtekinn hinn 12. september 2012 en hann hafði þá reynt að flýja yfir til Arkansas, sem er næsta ríki við Oklahoma. Hann mun hafa fengið peninga frá móður sinni, hafa rakað sig og fór huldu höfði um tíma. Móður Jermaine snerist hins vegar hugur og lét son sinn vita að hún myndi sjálf vísa lögreglunni á hann ef hann gæfi sig ekki fram. Hann var handtekinn og ákærð­ ur fyrir morðið. Málið hefur dregist töluvert og hefur fjölskyldan beðið lengi eftir því að aðalmeðferð þess hefjist. „Hann hefur fengið alla þá fresti sem hann fær,“ segir aðstand­ andinn. Hann segist kvíða því að sitja í réttarsalnum. „Ég hef aldrei setið dómsmál. Þarna verður maður líka að halda ró sinni, má ekki gráta eða láta í sér heyra sama hvað geng­ ur á því það getur haft áhrif á kvið­ dóminn. Þetta verður ekki auðvelt en okkur finnst mikilvægt að vera þarna,“ segir hann. Hinrik átti talvert stóra fjölskyldu í Bandaríkjunum sem ætlar að fylgj­ ast með og mun móðir hans með­ al annars bera vitni. Aðstandandi Hinriks segir saksóknara hafa ver­ ið duglegan að veita fjölskyldunni upplýsingar en líkur eru á því að saksóknarinn muni krefjast þess að Jermaine Jackson sitji af sér tvo lífs­ tíðardóma án skilorðs. Fái hann slík­ an dóm verður hann í fangelsi það sem eftir er. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Kristján Hinrik Hinrik var farþegi í bifreið sem Jermaine Jackson hóf skotárás á. Jermaine Jackson Aðstandendur Hinriks segja biðina hafa ver- ið erfiða, Jackson hafi fengið alla þá fresti sem mögulegt var að veita honum. „Þetta hefur hvílt mjög þungt á okkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.