Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 22
Helgarblað 23.–28. apríl 201422 Fréttir Erlent
Dæmdur Butler segist skammast sín.
Veiddi upp eigið þvag með gosflösku
James Carroll Butler hafði fengið nóg af samstarfsfélaga sínum
J
ames Carroll Butler, borgar
verkamaður í Culpeper
County í Virginíu í Bandaríkj
unum, var að eigin sögn illa
fyrir kallaður og ósáttur við sam
starfsfélaga sinn þegar hann greip
til þess ráðs að blanda eigin hlandi
út í kaffi kollegans. Verknaðurinn
hefur nú, fimm árum síðar, kostað
hann meira en hálfa milljón króna.
Butler, 53 ára, var fyrir dómi
hinn 7. apríl dæmdur til að greiða
Michael Utz, fyrrverandi sam
starfsfélaga sínum, fimm þúsund
dollara í bætur fyrir athæfi sitt.
Báðir unnu þeir hjá borginni,
reyndar ekki í sömu deild. Af óljós
um ástæðum var Butler mjög í nöp
við vélvirkjann Utz. Í mars árið
2009 hafði gremjan náð nýjum
hæðum, að því er Daily Progress
greinir frá. Butler hafði brugðið sér
á salernið og ákvað þar að ná sér
niðri á Utz. Hann veiddi hland sitt
upp úr klósettinu með gosflösku
og hellti því í kaffiílát Utz. Svo beið
hann og vonaðist til þess að Utz
drykki hlandið.
Butler varð ekki að ósk sinni.
Utz sá að í drykkjarílátinu var ekki
kaffi, heldur gulleitur vökvi. Hann
tilkynnti atvikið til yfirmanna
sinna, sem sendu sýni í rannsókn.
Sú rannsókn leiddi að sjálfsögðu
til þess að okkar maður varð einn
grunaður. Fljótlega eftir að það
kom í ljós fór Utz í mál svo Butler
var kominn með réttarstöðu sak
bornings. „Ég gerði vinnufélaga
mínum svolítið sem ég skammast
mín mikið fyrir,“ skrifaði Butler í
bréfi til dómsins – en hann hafði
ekki kjark til að mæta þangað í
eigin persónu. Í bréfinu bar hann
fyrir sig álagi, bæði heima fyrir og í
vinnunni. „Ég dauðskammast mín
fyrir þessa heimskulegu og barna
legu framkomu.“
Utz krafðist ígildi liðlega 80
milljóna króna í bætur, en varð
ekki kápan úr því klæðinu. Butler
var þó dæmdur til fangelsisvistar
í einn mánuð og til að greiða sem
svarar til 560 þúsunda króna.
Hann hugsar sig líklega tvisvar um
næst. n
baldur@dv.is
Kapphlaup
við tímann
Þ
að styttist með hverjum
deginum í að heimsmeist
aramótið í knattspyrnu
hefjist en flautað verður til
leiks í Brasilíu hinn 12. júní.
Þrátt fyrir að tæpir tveir mánuðir
séu í fyrsta leik eiga mótshaldarar
eftir að leggja lokahönd á fjölmarga
keppnisleikvanga. Seinagangur
heimamanna hefur komið þeim
í heimsfréttirnar og hvísla áhrifa
menn innan knattspyrnuheimsins
því sín á milli að mistök hafi verið
gerð með því að gera Brasilíumenn
að mótshöldurum.
Stuðningur minnkar
„Álfukeppnin [sem haldin var í Bras
ilíu í fyrra] hefur sýnt fram á hvað
er í vændum,“ segir Mario Zagallo,
fyrrverandi landsliðsþjálfari Bras
ilíu, fullur eftirvæntingar. „Ég er ekki
í nokkrum vafa um að við munum
hýsa glæsilegasta heimsmeistaramót
fyrr og síðar.“
Óhætt er að segja að ummæli
Zagallo séu á skjön við álit almenn
ings. Í könnun dagblaðsins Folha de
Sao Paulo kemur fram að aðeins 48
prósent heimamanna styðji við bakið
á mótshöldurum og þeim mýmörg
um framkvæmdum sem eftir eru.
Árið 2008, þegar Brasilía var valið
til þess að halda keppnina, fögnuðu
79 prósent heimamanna niðurstöð
unni. Stuðningurinn hefur því hríð
fallið.
Kostnaðurinn þrefalt hærri
Undanfarna mánuði hafa þúsund
ir Brasilíumanna mótmælt miklum
kostnaði vegna keppninnar. Á sama
tíma og sjúkrahús og skólar eru með
lítið fé á milli handanna er pening
um kastað til vegna framkvæmdanna
fyrir HM – í byggingar sem munu ef
til vill ekki nýtast eftir keppnina. For
seti FIFA, Sepp Blatter, hefur sagst
áhyggjufullur vegna ástandsins í
Brasilíu en vonar að öldurnar lægi
þegar keppnin hefst.
Rétt rúmir 400 milljarðar króna
hafa farið í framkvæmdir á tólf
keppnisleikvöngum og greiða skatt
greiðendur stærstan hluta upp
hæðarinnar. Áætlaður kostnaður
vegna framkvæmdanna var þrefalt
lægri þegar þær hófust og auk þess
lofuðu yfirvöld því að féð myndi
koma frá einkaaðilum.
Endurbætur á eftir áætlun
Vinnu fyrir mótið var hætt tímabund
ið í marsmánuði þegar áttundi verka
maðurinn lét lífið frá því að fram
kvæmdirnar hófust. Sjö hafa látist í
slysum og einn þeirra út af hjartaá
falli. Það er þó ekki einungis í Brasilíu
þar sem verkamenn hafa týnt lífi sínu
í undirbúningi fyrir heimsmeistara
mótið. Níu hundruð verkamenn hafa
dáið við byggingarvinnu fyrir mótið
sem fer fram í Katar árið 2022.
Yfirvöld í Brasilíu eru ekki að
eins á eftir áætlun þegar kemur að
byggingu leikvanganna. Endurbæt
ur á samgöngumannvirkjum, eins
og flugvöllum og lestarstöðvum, eru
á eftir áætlun. Búist er við tæplega
milljón gestum á meðan keppninni
stendur og er ljóst að klárist endur
bæturnar ekki muni það valda mik
illi örtröð og óþægindum fyrir ferða
menn.
Gleðin aldrei langt undan
Brasilíumenn eru þekktir fyrir óþrjót
andi áhuga sinn á knattspyrnu. Þrátt
fyrir mótmælin og seinagang yfir
valda er gleðin aldrei langt undan og
er spennan fyrir mótinu í algleym
ingi. „Brasilíubúar munu gleyma öll
um heimsins vandamálum þegar
mótið hefst,“ segir Caio Lopes, 23
ára gamall heimamaður, í samtali
við BBC. Það breytir því þó ekki að
peningunum hefði getað verið betur
varið, með meira skipulagi og agaðri
vinnubrögðum. n
n undirbúningur fyrir hm í Brasilíu á eftir áætlun n almenningur ósáttur
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
„Brasilíubúar munu
gleyma öllum
heimsins vandamálum
þegar mótið hefst.
Engar áhyggjur Zagallo, fyrrum landsliðs-
þjálfari Brasilíu, er einn fárra heimamanna
sem er bjartsýnn fyrir HM sem er í vændum.
Allt á eftir áætlun Tólf leikvangar
voru byggðir fyrir Heimsmeistara-
mótið. Fæstir þeirra eru fulltilbúnir.
Leiklistartímar
rógburður
Þeir sem segja Oscar Pistorius
hafa farið í leiklistartíma, áður
en hann bar vitni í réttarhöldum
yfir honum, eru að ljúga, segir
fjölskylda spretthlauparans. Það
sé illgjarnt og ósanngjarnt að
segja slíkt. Pistorius hefur verið
ákærður fyrir að myrða kærustu
sína, Reevu Steenkamp, í febrú
ar í fyrra. Fjölmiðlar greindu frá
því fyrir páska að Pistorius hefði
farið í leiklistarkennslu til þess að
undirbúa sig fyrir réttarhöldin.
Hann heldur fram sakleysi sínu
og segist ekki hafa myrt Steen
kamp. Hann var sagður hafa
undirbúið sig andlega með leik
listartímum til þess að vera meira
sannfærandi í vitnastúkunni.
Þetta er rangt, segir fjölskylda
hans, sem segir þetta vera „upp
spuna“. Pistorius hafi komið til
dyranna eins og hann er klæddur.
Harmur hans hafi verið ósvikinn.
Laun hækkuð
um 20 prósent
Evo Morales, forseti Bólivíu, hef
ur tilkynnt að lágmarkslaun verði
hækkuð um tuttugu prósent í
landinu. Verkalýðsfélög hafa
keppst við að lofa þessa ákvörðun
forsetans á meðan aðilar vinnu
markaðarins eru ósáttir. „Hér
hefur orðið hagvöxtur og þess
vegna hækkum við lágmarks
launin um tuttugu prósent,“ sagði
Morales. Verðbólga í Bólivíu er
6,5 prósent og því eru launa
hækkanirnar vel umfram hana.
Frá árinu 2006, þegar Morales
tók við embætti forseta, hefur
verg þjóðarframleiðsla Bólivíu
þrefaldast og var 27 milljarðar
Bandaríkjadala árið 2012.
hefur búið
í helli í ár
Nítján ára norsk stúlka frá Vest
urNoregi hefur hafist við í helli
síðastliðið ár með lítið annað en
svefnpoka. Stúlkan sem um ræð
ir heitir Ida Beate Loken en hún
ákvað í maí á síðasta ári að gera
þessa tilraun til að minnka „áhrif
sín á náttúruna“ eins og hún orð
ar það.
„Það er miklu skemmtilegra
að hafast við hérna,“ segir hún en
eins og gefur að skilja þarf hún að
hafa býsna góðan svefnpoka til
að komast í gegnum vetrarhörk
una sem oft ríkir í Noregi.