Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 25
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Fréttir Erlent 25 Greiða fúlgur fyrir falskar niðurstöður E inkalæknastofur í Afríkurík- inu Úganda selja skjól- stæðingum sínum fölsuð heilbrigðisvottorð und- ir borðið sem sýna að þeir séu ekki smitaðir af HIV. Þetta gera HIV-smitaðir einstaklingar til að eiga meiri möguleika á að fá vinnu. Hefði ekki fengið vinnu Catherine Byaruhanga, fréttamað- ur BBC í Afríku, fjallaði ítarlega um málið á dögunum. Hún og kollegar hennar hjá BBC vörðu nokkrum vikum í Afríkuríkinu til að rannsaka málið. Á ferð sinni um landið hitti Catherine meðal annars unga HIV- smitaða konu, sem er ein þeirra fjölmörgu sem hafa keypt sér falskt heilbrigðisvottorð. „Ég varð að sýna fram á að ég væri ekki smituð. Ef ég hefði látið verðandi vinnuveitand- ann hafa rétt heilbrigðisvottorð hefði ég aldrei fengið vinnu,“ seg- ir unga konan sem kölluð er Sarah. Sarah er einstæð móðir og þarf á vinnu að halda til að geta dregið björg í bú. „Ég þarf á peningunum að halda. Ég þarf þetta starf fyrir barnið mitt,“ segir konan sem kem- ur ekki fram undir réttu nafni af ótta við að missa vinnuna. 12 af 15 gáfu falskt vottorð Í Úganda eru HIV-smitaðir litn- ir hornauga. Fréttamenn BBC fóru í leynilegan leiðangur á einka- læknastofur höfuðborgarinn- ar, Kampala, þóttust vera HIV- smitaðir og beindu því til lækna að þeir þyrftu á fölsku vottorði að halda til að sýna í atvinnuleit sinni. Í Kampala eru hundruð lítilla einkarekinna læknastofa. Það er skemmst frá því að segja að af fimmtán læknastofum sem heimsóttar voru reyndust tólf vera reiðubúnar að láta af hendi falskar niðurstöður. Á einni læknastofunni var meinatæknir tregur til að láta falskar niðurstöður af hendi. Út- skýrði hann að hann ætti á hættu að fara í fangelsi ef upp um hann kæmist. Að lokum féllst hann þó á að láta niðurstöðurnar af hendi gegn greiðslu sem samsvarar 2.300 krónur. Meðalmánaðarlaun í Úg- anda eru um 40 þúsund krónur. Í frétt BBC kemur fram að vott- orðin séu eins raunveruleg og þau gerast; með stimpli frá læknastof- unni og undirskrift meinatæknis- ins eða hjúkrunarfræðingsins sem framkvæmdi skoðunina. Góður árangur Úganda Úganda hefur hingað til verið þekkt sem það ríki í Afríku sem náð hefur einna bestum árangri í baráttunni gegn HIV. Fyrir tuttugu árum var einn af hverjum fimm smitaður af HIV í Úganda. Árið 2005 var hlutfall smitaðra aðeins 6,3 prósent en árið 2012 hafði það aukist aftur, eða upp í 7,2 prósent. Þessi aukning hefur orðið til þess að opna augu stjórn- valda fyrir því að baráttunni gegn HIV er hvergi nærri lokið þótt góð- ur árangur hafi náðst. Fólk er hvatt til að láta prófa sig og jafnvel forseti landsins, Yoweri Museveni, og eig- inkona hans, hafa tekið HIV-próf fyrir opnum tjöldum. Hugmyndin er sú að ef, og þegar, fólk kemst að því að það sé HIV-smitað fái það viðeigandi meðferð og fræðslu til að koma í veg fyrir að dreifa sjúk- dómnum. En fordómarnir fyrir sjúkdómnum gera það að verkum að margir eru hræddir við að láta prófa sig. 60 prósent upplifa útskúfun Í könnun sem gerð var af samtökum Úgandamanna með HIV kom fram að um 60 prósent HIV-smitaðra hafa upplifað útskúfun af einhverju tagi vegna sjúkdóms síns. Í umfjöllun BBC kemur fram að af samtölum við HIV-smitaða að dæma vilji vinnu- veitendur ekki ráða HIV-smitaða í vinnu vegna ótta við vinnufram- lag sjúklinga. Vinnuveitendur spyrji sig: Af hverju að ráða HIV-smitað- an einstakling þegar þú getur feng- ið fullkomlega heilbrigðan einstak- ling í vinnu? Kemur ekki á óvart Að lokum kemur fram í umfjöllun BBC að fréttaliðið hafi farið á fund með Ruhakana Rugunda, heilbrigð- isráðherra Úganda, og hann hafi fengið að sjá umfjöllunina. Hann viðurkennir að yfirvöld gætu gert meira til að stöðva útgáfu falskra heilbrigðisvottorða. „Þetta kemur mér ekki á óvart. Engu að síður er þetta áskorun fyrir yfirvöld að horf- ast í augu við vandamálið,“ sagði hann við BBC. Hann sagði enn fremur að lögreglan hafi fengist við einhver mál, en slík mál væru ekki fyrir lögregluna að eiga við. Beindi hann þeim tilmælum til vinnuveit- enda að koma jafnt fram við alla, HIV-smitaða eða ekki. Engin lög eru þó í landinu sem banna útskúfun HIV-smitaðra. Mannréttindasam- tök og samtök HIV-smitaðra óttast þó að aðgerðir yfirvalda í baráttunni gegn HIV gætu aukið á útskúfun og neikvæða umræðu um HIV-smit- aða. Fyrir liggur frumvarp um að refsa þeim sem dreifa sjúkdómnum. 220 milljarðar á áratug Bandaríkin fjármagna að stærstum hluta baráttuna gegn HIV í Úganda, en á undanförnum áratug hefur um tveimur milljörðum Bandaríkja- dala, 220 milljörðum á núverandi gengi, verið varið í hana. Sendi- herra Bandaríkjanna, Scott DeLisi, segir að Úgandamenn hafi sjálfir eftir lit með því að fjármununum sé rétt varið. Hann segist þó ekki geta tryggt það að hluti þeirra hafi runnið til læknastofa, þeirra sömu og gefa út fölsk heilbrigðisvottorð. n „Ef ég hefði látið verðandi vinnu- veitandann hafa rétt heilbrigðisvottorð hefði ég aldrei fengið vinnu. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Læknastofa Tólf af fimmtán læknastofum sem BBC heim- sótti voru reiðubúnar að láta fölsk vottorð af hendi. Kemur ekki á óvart Ruhakana Rugunda heilbrigðisráðherra segir að það komi sér í raun ekki á óvart að hægt sé að nálgast fölsuð læknisvottorð. Tekur yfir samfélagsmiðla Safnar brjósta- höldurum Kínverskur karlmaður, sem hef- ur það einkennilega áhugamál að safna brjóstahöldurum, ætlar að opna safn þar sem haldararn- ir verða til sýnis. Maðurinn sem um ræðir heitir Chen Qingzu og er 45 ára heilbrigðisstarfsmaður. Er hans hlutverk meðal annars að fræða konur um hættur brjóstakrabbameins. Safnið hans er nú um fimm þúsund brjóstahaldarar í öllum regnbogans litum. Þrátt fyrir að eiga stórt og mikið safn er Qingzu hvergi nærri hættur að safna en hann hefur sett markið á tíu þús- und stykki. „Sumum vina minna finnst áhugamál mitt held- ur undarlegt en það finnst mér ekki,“ segir hann. Yfirvöld í þorpinu þar sem Qingzu býr íhugar að láta hann hafa húsnæði undir safnið – án endurgjalds. Fimm dæmdir til að deyja Dómstóll í Sádi-Arabíu hefur dæmt fimm manns til dauða fyr- ir aðild þeirra að þremur sjálfs- morðssprengjuárásunum í höf- uðborginni Riyadh í maí 2003. Þrjátíu og sjö aðrir voru dæmd- ir í þriggja til þrjátíu og fimm ára fangelsi. Alls 39 manns létu lífið í árásunum en markmið árásarmannanna, sem tengdust al-Qaeda, var að koma á óstöðug- leika í landinu. Engar ferðir upp Everest í ár Nepalskir sherpa-leiðsögumenn hafa aflýst öllum ferðum upp Everest það sem eftir er ári eftir mannskæðasta snjóflóð í sögu fjallsins. „Við áttum langan fund í dag og við ákváðum að hætta öllum fjallgöngum út árið til heiðurs fallinna félaga okkar. Allir sherp- ar eru sameinaðir í þessu,“ seg- ir Tulsi Gurung leiðsögumað- ur í samtali við fréttaveitu AFP í grunnbúðum Everest. Þriggja sherpa er enn saknað eftir snjóflóðið. Ingólfur Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir eru um þess- ar mundir í grunnbúðum Ever- est. Til stóð að þau myndu halda á tindinn en snjóflóðið setti strik í reikninginn. Vilborg var að íhuga stöðu sína en Ingólfur var stað- ráðinn í að fara á tindinn. Nú hafa allir sherpar hins vegar aflýst ferðum sínum. n HIV-smitaðir í Úganda útskúfaðir n Fá ekki vinnu og útvega falskt vottorð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.