Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Qupperneq 26
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
26 Umræða Helgarblað 23.–28. apríl 2014
Undir fölsku flaggi
Þ
að er fagnaðarefni ef til verður
nýr hægriflokkur við hlið Sjálf
stæðisflokksins. Þar með yrði
til valkostur fyrir þá sem vilja
annað á hægri vængnum en öfl sem
aðhyllast frændhygli, ríkishyggju og
einangrun. Gamli Sjálfstæðisflokk
urinn hóf undarlega vegferð með til
komu Davíðs Oddssonar á sínum
tíma. Í stað þess að vera frjálslyndur
flokkur allra stétta varð hann þröng
ur sérhagsmunaflokkur þar sem við
völd sátu menn sem aldrei höfðu gert
út á annað en ríkisrekstur sem lifi
brauð. Flokkurinn sem kenndi sig við
öflugt einstaklingsframtak og frelsi
var leiddur að kjötkötlum ríkisins af
mönnum sem aldrei höfðu að neinu
marki komið nálægt einkarekstri.
Sjálfstæðisflokkur Davíðs sigldi
undir fölsku flaggi. Opinber stefna var
að auka frelsi einstaklinga til athafna
og snúa frá ríkisrekstri þar sem slíkt
væri mögulegt. Frelsi einstakling
anna átti að vera í öndvegi og efna
hagur landsins átti að blómgast und
ir þeim gunnfána. Rauði þráðurinn
var sá að ríkið ætti sem minnst að
vasast í rekstri. Þetta var hin yfirlýsta
stefna þegar Sjálfstæðisflokkurinn lét
þjóðarbankann, Landsbanka Íslands,
í hendur lukkuriddurum sem að sögn
höfðu grætt himinháar upphæðir á
bjórverksmiðju ytra. Og hinn stjórn
arflokkurinn, Framsókn, fékk líka
sitt því vildarvinir þess flokks fengu
Búnaðarbankann á silfurfati en sá
banki varð síðar Kaupþing. Báð
ir þessir bankar tóku áhættuflug
ið við einkavæðinguna og urðu
helstu hvatarnir að því stór
slysi sem hrunið varð Íslending
um árið 2008. Flokkur frelsis og
einkaframtaks brást kjósendum
sínum herfilega með því að láta
fjöregg þjóðarinnar í hendur vit
leysinga. Frelsi og heiðarleiki
varð aukaatriði. Einkaframtakið fólst
í því að fara ránshendi um eigur rík
isins.
Það er athyglisvert að skoða for
ystumenn Sjálfstæðisflokksins síð
ustu áratugi. Sá sem er mest áberandi
er Davíð Oddsson. Hann hefur aldrei
komið nálægt einkarekstri í neinni
mynd en alla tíð verið á spena ríkis
ins eða annarra. Ferillinn hófst þar
sem hann stjórnaði sjúkrasamlagi.
Þaðan lá leiðin til Reykjavíkurborgar
og áfram inn á Alþingi og á stól for
sætisráðherra. Þegar pólitískur ferill
hékk á bláþræði skipaði hann sjálf
an sig sem seðlabankastjóra. Eftir
nöturleg starfslok þar tóku eigend
ur Morgunblaðsins hann upp á sína
arma og gerðu að ritstjóra Morgun
blaðsins. Svipaða sögu er að segja af
Geir Haarde, arftaka Davíðs. Engum
sögum fer af því að hann hafi náð að
fóta sig á grundvelli einstaklingsfram
taks í sjálfstæðum rekstri. Þvert á móti
hefur hann verið mestan sinn starfs
aldur á jötu ríkisins. Hann
es Hólmsteinn Giss
urarson er einn
helsti hugmynda
fræðingur Sjálf
stæðisflokksins
á síðari tím
um. Hann hef
ur boðað tæra
frjálshyggju og
hefur undantekn
ingarlaust haf
ið einkafram
takið til
skýjanna. Sjálfur er hann því marki
brenndur að hafa lifað sína starfsævi
að mestu leyti á launum sem tek
in eru af skattfé. Ekkert dæmi er um
að hann hafi reynt sig við atvinnu
rekstur af neinu tagi. Hann trúir á
einkaframtakið en lifir á ríkinu. Sá
forystumanna Sjálfstæðisflokksins
sem hefur komist næst atvinnurekstri
er Bjarni Benediktsson, núverandi
formaður, sem gegndi stjórnarfor
mennsku í eignarhaldsfélagi N1 og
fleiri félögum. Menn geta deilt um ár
angurinn þar en ljóst má vera að hann
fékk smjörþefinn af einkarekstri og
þekkir til sem slíkur. Sú reynsla hefur
þó ekki orðið til þess að hann nái að
stýra flokknum samkvæmt yfirlýstri
stefnu hans. Það er á vakt Bjarna sem
flokkurinn stendur nú á barmi klofn
ings.
Helsti hvatamaður að stofnun Nýja
Sjálfstæðisflokksins er Benedikt Jó
hannesson. Benedikt er þaulreyndur
úr viðskiptalífinu og margt bendir til
þess að hann hafi til þess siðferði
og vilja að ganga um eigur rík
isins með almannahag
að leiðarljósi. Þá hef
ur ekki reynt á annað
en að hann muni virða
lýðræðisreglur og stuðla
að heilbrigðu einstak
lingsframtaki innan þess
ramma
frelsis sem tryggir að menn steli ekki
eða sölsi undir sig eigur almennings.
Það er íslensku samfélagi hollt að
hafa tvo átakapóla til hægri og vinstri.
Heiðarlegir vinstrimenn vilja að ríkis
reksturinn sé sem fyrirferðarmestur
og trúa því að þannig farnist þjóðfé
laginu best. Hægrimenn sem fylgja
hugsjónum sínum eru á þeirri skoðun
að einstaklingar eigi að stjórna og
bera sem mesta ábyrgð í atvinnulíf
inu. Og sumir eru reyndar á því að
nær algjört frelsi og sem minnst eft
irlit eigi að vera til staðar. Hvorug
stefnan gengur upp ein og sér. Far
sælast er að þessir kraftar takist á og
þannig myndist sú blanda sem inni
heldur sjónarmið beggja. Vandinn
er aftur á móti sá að hægra megin
hafa verið menn á
spena ríkisins sem
haldið hafa uppi
fagurgala um frelsi
og einstaklings
framtak. Þessu
verður að breyta.
Það er því fagnað
arefni að fá fram
afl til hægri sem
gerir út á þau gildi
sem boðuð eru. n
Stjörnur Friðriks
Friðrik Pálsson, hótelstjóri á Hót
el Rangá, er á meðal framtaks
sömustu ferðafrömuða á Íslandi.
Mikið vatn hefur
runnið til sjáv
ar síðan hann
var hvað þekkt
astur fyrir að
reka einkahluta
félagið Góðráð
ehf. sem rukkaði
Landssímann heitinn um ráð
gjafarlaun stjórnarformanns
ins. Í seinni tíð hefur Friðrik
rekið Hótel Rangá á Suðurlandi
með glæsibrag. Það nýjasta í
rekstri hans er sérstakt stjörnu
skoðunarhús þar sem hægt er
að renna af þakinu og horfa til
himins.
Endurkoma Hjartar
Fréttamaðurinn öflugi, Hjörtur
Hjartarson á Stöð 2, hefur átt erf
iða tíma á köflum eftir útistöður
við vinnufélaga.
Fyrst stóð hann
í ströngu eftir að
hafa tekist á við
Eddu Sif Páls-
dóttur íþrótta
fréttamann þar
sem þau störfuðu
saman á Ríkisútvarpinu. Hann
var í framhaldinu rekinn en fékk
vinnu á Stöð 2. Þar varð uppá
koma á dögunum þegar honum
mislíkaði við samstarfsmann og
tók í hann. Hjörtur fékk áminn
ingu og ákvað að taka á sínum
málum sem hann gerði. Um
liðna helgi sneri hann aftur sem
nýr og betri maður á Stöð 2,
áhorfendum til ánægju.
Gildruklettar Benedikts
Eitt af fyrirtækjunum sem fékk
há lán í Sparisjóði Keflavíkur
heitir Gildruklettar ehf. og
var meðal annars í eigu Einars
Sveinssonar fjárfestis og Bene-
dikts Jóhannessonar, eiganda
útgáfufélagsins
Heims. Félagið
varð gjaldþrota
og þurfti Lands
bankinn að af
skrifa um 650
milljónir króna
hjá fyrirtækinu
í fyrra. Í ljósi þessara tengsla
Benedikts við Sparisjóðinn í
Keflavík vakti nokkra athygli í
fyrra þegar sonur sparisjóðs
stjórans í Keflavík, Sverrir Geir-
mundsson, var ráðinn í stjórn
arstöðu hjá Heimi þrátt fyrir
takmarkaða reynslu af útgáfu
starfsemi.
Vinur Þórólfs
Ekki er einhugur meðal fram
sóknarmanna í Reykjavík um að
Guðni Ágústsson verði oddviti
flokksins í komandi sveitastjórn
arkosningum.
Eitt af því sem
sumir fram
sóknarmenn fetta
fingur út í eru
tengsl Guðna við
Þórólf Gíslason,
kaupfélagsstjóra
á Sauðárkróki. Ráðherrann fyrr
verandi fékk framkvæmdastjóra
starf hjá Samtökum afurða
stöðva í mjólkuriðnaði þegar
hann hætti þingmennsku.
Kaupfélag Þórólfs er einn valda
mesti aðilinn í samtökunum í
gegnum eignarhald sitt í Mjólk
ursamsölunni. Góð vinátta er
milli Guðna og Þórólfs. Stuðn
ingsmenn Guðna telja þó fráleitt
að það hafi áhrif á getu Guðna
til að starfa að borgarmálum í
Reykjavík.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari
„Hann
trúir á
einkaframtakið
en lifir á ríkinu
Börnunum líður vel saman
og þá gengur þetta vel
Ég óttast
lítið
Magnús Scheving stendur á tímamótum. - DV
Það yrði
hræðilegt
Nanna Elísa Jakobsdóttir nemi segir verkfall setja allt úr skorðum. - DVÁrni Svanur Daníelsson og Kristín Tómasdóttir eiga sex börn samtals. - DV
Barnaborgin Reykjavík
F
átt skiptir okkur foreldra
meira máli en að geta veitt
börnum okkar hamingjuríka
æsku og sjá þau vaxa og
dafna. Reykjavíkurborg er á
margan hátt fyrirmyndarstaður fyr
ir barnafjölskyldur, enda búum við
að góðum skólum, fjölbreyttu frí
stundastarfi, heilbrigðu borgarum
hverfi og þéttu öryggis og stuðn
ingsneti ef eitthvað bjátar á. Við
erum því að mörgu leyti afar lánsöm.
Getum gert betur
En við getum gert enn betur og í
mínum huga skiptir fátt meira máli í
stjórnmálum dagsins, en einmitt það
að gera borgina okkar að enn betri
stað fyrir börn og barnafjölskyldur.
Þannig borg viljum við sem bjóðum
okkur fram fyrir XS í Reykjavík og
þess vegna ætlum við að forgangs
raða málefnum barnafjölskyldna á
næsta kjörtímabili.
Við ætlum að efla stuðning við
barnafjölskyldur og tryggja að for
eldrum standi til boða ráðgjöf og
fræðsla sem taki mið af ólíkum
þörfum og aldursskeiðum barna.
Öll börn eiga að njóta sín í skólun
um, þeim á að líða vel og ganga vel í
námi. Það er borgarkerfisins að laga
sig að börnunum en ekki að laga
börnin að kerfinu.
Fjölga rýmum
Við ætlum að fjölga leikskólarým
um fyrir fjölskyldur með ung börn.
Við ætlum að hækka frístundastyrk
með hverju barni í 50 þúsund krón
ur á kjörtímabilinu og taka upp sam
ræmdan systkinaafslátt á milli leik
skóla og frístundaheimila.
Við ætlum að stytta „vinnudag“
barna með samþættingu frístunda
og skólastarfs og stuðla um leið að
fleiri samverustundum fjölskyldna.
Við ætlum að tryggja að hollar og
ódýrar skólamáltíðir standi leik og
grunnskólabörnum til boða óháð
efnahag.
Minna skutl
Við ætlum líka að minnka skutlið og
efla enn frekar hinn svokallaða frí
stundastrætó. Við viljum einnig eyða
þeirri óvissu sem bíður margra ungra
fjölskyldna þegar fæðingarorlofi for
eldra lýkur og á næsta kjörtímabili
ætlum við að taka markviss skref við
að brúa bilið milli fæðingarorlofs og
þar til börn komast inn á leikskóla.
Undir forystu Dags B. Eggertsson
ar ætlar XS að tryggja að í Reykjavík
verði áfram komið ríkulega til móts
við barnafjölskyldur þannig að þær
geti treyst því að þar sé hagstæðast
að búa fyrir barnafjölskyldur. n
Heiða Björg Hilmisdóttir
skipar 6. sæti á lista XS í Reykjavík.
Kjallari
MyND SiGTRyGGuR ARi