Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 36
Helgarblað 23.–28. apríl 201436 Neytendur
V
ið tökum þau páskaegg sem
ekki seljast í búðunum til
baka og endurvinnum þau
eins og mögulegt er. Lág-
mörkum sóun eins og við mögu-
lega getum,“ segir Kristján Geir
Gunnarsson, markaðsstjóri Nóa
Síríus, spurður um hvað verði um af-
gangspáskaegg að loknum páskum.
„Við bræðum súkkulaðið upp og
notum það í okkar framleiðslu og
höfum okkar ferla í því,“ en vinnslan
er ekki ólík því að páskaeggjafram-
leiðslunni fyrir páskana sé snúið
við. „Þetta er svo lítið magn að þetta
er ekki neitt neitt. Þetta er miklu
minna en fólk heldur því við reynum
að stýra okkar framleiðslu þannig að
það kemur alltaf bara mjög lítið til
baka,“ segir hann.
Kristján Geir segir sölutölur ekki
liggja fyrir eftir páskana en hann
telur að salan hafi verið svipuð og í
fyrra.
Í bragðprófi DV á páskaeggjum
fyrir þessi jól var hreint súkkulaði-
egg frá Nóa Síríus í fyrsta sæti. Krist-
ján Geir segir þau algengust. „Egg
númer 4 og egg númer 5 eru þau
sem við seljum mest af,“ segir hann.
Súkkulaðið í eggjunum er
rjómasúkkulaði frá Nóa Síríus og því
er það notað í framleiðsluna eftir að
hafa verið brætt upp.
Kristján Geir segir að vel stýrt
gæðaeftirlit fylgist með því að þau
egg sem eru endurunnin með þess-
um hætti séu í lagi. „Ef við sjáum að
það er ekki í lagi þá förgum við því.
En það sem fer í gegnum nálaraug-
að fer áfram,“ segir hann. n
fifa@dv.is
Páskaeggin endurunnin hjá Nóa
Reyna að stýra vinnslunni þannig að lítill afgangur sé
Tímaleysi
kostar
Með því að bíða fram á síð-
ustu stundu með að kaupa inn
missa neytendur af tækifærum
til að gera góð kaup og skynsam-
leg. Vefsíða US News tók saman
nokkur atriði þar sem frestun
kostar fólk háar fjárhæðir sem
forsjálni myndi spara.
n Hátíðarvörur
Með því að bíða fram á sprengi-
dag með að kaupa öskudags-
búninga eða Þorláksmessu með
að kaupa jólagjafir er miklu lík-
legra að enda með því að greiða
uppsprengt verð fyrir vörurn-
ar. Ef fólk hins vegar skipuleggur
þessar hátíðir með ársfyrirvara
er hægt að spara háar fjárhæðir
með því að kaupa vörurnar á út-
sölu strax að hátíðum loknum.
n Árstíðabundnar vörur
Það gildir það sama um árstíða-
bundnar vörur eins og hátíðar-
vörurnar. Bestu kaupin eru gerð á
útsölum strax að loknu tímabil-
inu. Þannig er best
að kaupa skíði
á vorin og
tjöld og grill á
haustin. Hér
er ágætt að
hugsa alltaf
hálft ár fram í
tímann.
n Skottúrar
Stutt stopp í hverfisverslunum og
sjoppum til þess eins að kaupa
tannkrem eða klósettpappír geta
hæglega kostað skildinginn því
þegar inn í verslunina er kom-
ið er margt sem freistar. Til að
koma í veg fyrir slíkar gildrur er
best að skipu-
leggja stórinn-
kaup fram
í tímann
um leið og
birgðastaða
heimilisins
minnkar.
n Hraðsendingar
Það getur tekið sinn tíma að bíða
eftir póstsendingum en þar sem
hraðsendingar eru mjög dýrar
er best að gera netinnkaup ekki
of seint þannig að hefðbundinn
sendingartími dugi.
n Hraðþjónusta
Hraðþjónusta er ekki bara tengd
verslun því hraðþjónusta til
dæmis á vegabréfi, hreinsun eða
tölvuviðgerð kostar sitt. Frekar
en að eyða háum fjárhæðum í
hraðþjónustu er gott að reyna að
sjá fyrir með nægum fyrirvara að
þjónustunnar sé þörf og panta
hana í tíma.
n Dýrar samgöngur
Með því að gefa sér ekki nægan
tíma í ferðir eykst kostnaður við
þær töluvert. Þannig væri hægt
að spara sér háan leigubíla-
kostnað með því að gefa sér tíma
í almenningssamgöngur. Þeir
sem keyra hratt og
stressað eyða
líka miklu
meira bens-
íni og slíta
bílvélinni
hraðar en
þeir sem taka
nægan tíma.
Páskaegg Eggið er
brætt upp aftur og notað
í framleiðslu Nóa Síríus.
MynD Sigtryggur Ari JóHAnneSSon
Verðsamanburður
Hjólbarðaskipti
Verkstæði Fólksbíll (stálfelgur) Fólksbíll (álfelgur) Jepplingur Jeppi 30"-32" Jeppi 33"-35"
Dekkverk 5000 5000 6000 7000 8000
Sólning 5990 6490 7992 8991 10430
Gúmmívinnustofan 6650 7500 8750 11450 12150
Max 1 6738 7299 7861 12353 13570
Hjólb.verkst.Grafarvogs 6816 7468 8980 11420 11996
N1 5980-6880 7590 8780 11380 12880
Dekkverk ódýrast í
hjólbarðaskiptum
Ólöglegt að keyra á nagladekkjum eftir 15. apríl
D
ekkverk býður ódýrustu
dekkjaskiptinguna af þeim
verkstæðum sem DV leitaði
til með verðkönnun á dekkja-
skiptingum. Þar kostar 5.000
krónur að skipta um dekk á fólksbíl
en dýrast er það hjá Hjólbarðaverk-
stæði Grafarvogs, 6.816 krónur og hjá
N1 þar sem stærri fólksbíladekk kosta
6.880 krónur. Algengast er að það kosti
milli 6.000 og 7.000 krónur að skipta
um dekk á fólksbíl með stálfelgum.
Það kostar heldur meira ef bíllinn er
á álfelgum og munar þar um 500–800
krónum.
Leitað var eftir upplýsingum sím-
leiðis hjá nokkrum hjólbarðaverk-
stæðum en mjög erfitt er að nálgast
þessar upplýsingar á vefnum. Einung-
is eitt verkstæði, Nesdekk, neitaði að
gefa upplýsingar gegnum síma og bar
við mikilli traffík.
Hjá N1 fengust þær upplýsingar að
ásókn í dekkjaskiptingar hefði farið að
aukast fyrir svona tveimur vikum og
líklegt væri að síðustu viðskiptavinirn-
ir væru að láta skipta um miðjan maí.
Hjá Sólningu bjuggust starfsmenn
við því að fyrsti stóri dagurinn yrði í
gær, þriðjudag, en það þýðir að við-
skiptavinir geta þurft að bíða eftir af-
greiðslu. Venjulega tekur um það bil
20–25 mínútur að skipta um dekk á
venjulegum fólksbíl. n
Hjólbarðaverkstæði
Um það bil 20 mínútur
tekur að skipta um dekk á
venjulegum fólksbíl.
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Nagladekk bönnuð
15. apríl–1. nóvember
Yfir sumartímann er bannað að aka á negldum vetrardekkjum. Sektir við
því að aka á nagladekkjum á tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember er 5.000
kr. Ef negldu dekkin eru auk þess orðin slitin eða skemmd og því háskaleg til aksturs,
þá er heimilt að sekta ökumann um allt að 5.000 kr. á hvert ónýtt nagladekk sem undir
bílnum er. Af vef FÍB.