Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Side 44
Helgarblað 23.–28. apríl 201444 Lífsstíll
Skápur Þessi skápur er kannski gam-
all en það er allt eins líklegt að hann sé
nýmálaður.
Kaffipokar
á rúðurnar
Það getur verið leiðindaverk að
þrífa glugga, sérstaklega ef fólk
á ekki réttu græjurnar. Tuskur
og pappír vilja skilja eftir för á
rúðunni og þá er ekkert unnið
með pússningunni.
Lengi hefur verið mælt með
notkun dagblaða til að pússa
glugga en deilt er um hvort með
þeim eigi eingöngu að nota vatn
eða líka sérstök gluggahreinsiefni.
Ókosturinn við dagblöðin er
hins vegar sá að hendurnar verða
oft kámugar af prentsvertu sem
er heldur hvimleitt, sérstaklega ef
fólk á til að gleyma sér og snerta
veggi og innanstokksmuni.
Þá eru kaffipokar þjóðráð, þeir
skilja ekki eftir rákir á rúðunum
heldur skila þeim glansandi fín-
um, án þess að káma fingurna.
Matarolía í
stað terpentínu
Það getur verið erfitt að ná máln-
ingu af höndunum á sér, sérstak-
lega þegar notuð er olíumáln-
ing því þá dugir ekki vatn og sápa
eins og með vatnsleysanlega
málningu.
Terpentína getur dugað vel til
að ná málningunni burt en hún
er algjört eitur fyrir umhverfið og
þurrkar auk þess húðina.
Gott ráð er þess vegna að
nudda hendurnar með matarolíu
en hún leysir upp málninguna án
nokkurra vandræða. Sumir hafa
einnig notað smjör, smjörlíki eða
barnaolíu í þessum tilgangi en
ef blettirnir eru mjög fastir getur
verið sniðugt að bæta teskeið af
salti í lófann líka og nudda vel.
Til að ná olíunni af höndunum
er svo gott að nota uppþvottalög.
Þreyta málningu með vaselíni
S
litin málning á húsgögn-
um hefur verið mjög í tísku
undanfarið og ekki einung-
is hefur fólk leitað að göml-
um og illa förnum húsgögnum á
mörkuðum heldur hafa nýleg hús-
gögn beinlínis verið gerð göm-
ul með því að rispa málningu af
brúnum og hornum.
Þetta útlit hefur verið kallað
„shabby chic“ á ensku en fellur
líklega helst undir það sem kall-
að hefur verið rómantískur sveita-
stíll. Yfirleitt eru það húsgögn úr
tré sem eru endurunnin á þennan
hátt en það er um að gera að leyfa
hugmyndafluginu að njóta sín.
Ef húsgagnið er úr ljósum við
eru brúnir og horn og þeir staðir
þar sem málningin á að mást mál-
aðir í dekkri lit áður en málað er
með aðallitnum. Aðalliturinn er
oft hvítur eða einhver útgáfa af
honum en það er ekki síður fallegt
að mála húsgögnin í einhverjum
rómantískum eða jafnvel skærum
lit.
Margir kjósa að nota matta
málningu eða kalkmálningu til
að mála með því það er auðvelt
að búa til máða áferð með henni.
Horn og brúnir eru svo pússuð
með miðlungsgrófum sandpappír
eða stálull þangað til dökki litur-
inn kemur í gegn. Eftir að ákjósan-
legri áferð er náð er svo borið vax
á skápinn.
Önnur aðferð er að bera va-
selín á brúnir og horn áður en
skápurinn er málaður en þá renn-
ur málningin auðveldlega af þeim
stöðum þegar þeir eru stroknir
með tusku. n
fifa@dv.is
Sjúskað útlit á húsgögnum hefur verið í tísku
Snagar úr hrífuhaus
n Endurnýting alltaf vinsælli n Nýr tilgangur með gömlum hlutum
E
ndurvinnsla og endurnýting eru alltaf að verða
vinsælli enda umhverfissóðaskapur undanfar-
inna áratuga að koma harkalega í hausinn á okk-
ur. Þannig flæðir allt í húsgögnum og húsbúnaði
sem enginn vill nota, á meðan eru fjöldafram-
leidd fleiri og fleiri.
Sniðug hönnun byggist oft á endurvinnslu gamalla
hugmynda eða því að sjá ný not fyrir það sem fyrir er.
Margar leiðir eru til að finna hlutum nýjan tilgang og hér
á síðunni má sjá nokkur dæmi um útsjónarsemi í þess-
um tilgangi.
Oft þarf nefnilega fátt annað en hugmyndaflugið og
mögulega málningu til að lífga upp á gamla og leiðinlega
hluti. n fifa@dv.is
Blómaker Bíldekk sem blómaker voru nokkuð vinsæl
fyrir nokkrum áratugum en eru að koma hvellsterk inn aftur í
hippagarðana. Hér hefur nokkrum gerðum verið safnað saman og
dekkin máluð í glaðlegum litum. Einn kostur við svörtu dekkin er
þó að þau hitna í sólinni sem getur verið gott fyrir sumarblómin.
Fyrir skartið Það hefur verið vinsælt undanfarið að hengja
skart upp á vegg og ýmsar gerðir snaga vinsælar. Hér hefur gamall
hrífuhaus verið hengdur upp á vegg og er notaður sem snagar fyrir skartið.
Föt á gólfinu Flestir eiga miklu meira af fötum en þeir kom-
ast nokkru sinni yfir að nota. Til er sniðug leið
til að klippa stutterma-
boli niður í band sem hægt er að prjóna úr me
ð stórum prjónum eða
hekla með stórri nál. Gólfmottur úr stutterma
bolabandi eru tilvalin
leið til að eignast fallega mottu eftir eigin hö
fði án þess að eyða krónu.
Hilla Hér hefur litlum stiga verið breytt í hillu með því að leggja hillur yfir þrepin. Önnur leið væri að setja tvo sams konar stiga hlið við hlið og leggja hillurnar á milli þeirra til að búa til stærri bókahillu.
Út fyrir boxið Hér hefur tímaritaboxi verið snúið á hlið og það fest á vegg til að nota
sem hornborð. Þetta er sniðug leið til að nýta það sem til er og hvetur til að hugsa út fyrir boxið.
Kefli Rafmagnskefli hafa verið notuð sem borð frá því fyrstu kommúnurnar voru og hétu og
eins og með svo margt annað geta þau verið jafn ljót og þau geta verið falleg. Hér er ljómandi
fallegt kefli sem hefur alveg fengið að halda sér. Bollapar úr mávastellinu nyti sín vel á því.
Kommóður Hér eru kommóður notaðar sem
rúmbotn í litlu rými. Þetta er mjög sniðugt ráð til að
nýta pláss sem annars væri ekki notað til neins og spara
gólfpláss sem annars færi undir kommóðurnar.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.