Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 47
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Lífsstíll 47
María Birta athafnakona
„Gullfalleg og óhrædd við að eltast við drauma
sína. Lætur ekkert stoppa sig.“
Lára Hanna Einarsdóttir
„Magnaður þjóðfélagsrýnir sem stingur á
ýmsum kýlum.“
Gunnar Nelson íþróttamaður
„Heilbrigður, staðfastur og duglegur.“
Jón Gnarr borgarstjóri
„Fylginn sjálfum sér, heiðarlegur og fyndinn.“
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir
sjónvarpskona
„Kraftmikil og drífandi kona sem lætur fötlun sína ekki
stoppa sig heldur tekst á við hverja áskorunina á fætur annarri
með glæsibrag og fær aðra í lið með sér.“
Ágústa Johnson athafnakona
„Ímynd hreysti og heilsu um langt skeið, óþreytandi
við að breiða út heilsuboðskapinn og drífa landann
með sér.“
Katrín Jakobsdóttir stjórnmálamaður
„Draumastjórnmálamaður. Heiðarleg, sanngjörn og
réttsýn, róleg og yfirveguð. Til í að ræða málin en lætur
samt ekki vaða yfir sig.“
Saga Garðarsdóttir leikkona
„Fyndin en sjaldan þannig að einhvern svíði undan – sem er besta
fyndnin. Besta dæmið um að stelpur geta allt – og gera það í stórum
skömmtum!“
Dorrit Moussaieff forsetafrú
„Notar hvert tækifæri til þess að kynna land og þjóð.“
Bassi Ólafsson, trommuleikari og „kærastinn“
„Hann er til fyrirmyndar fyrir að hafa aldrei drukkið né reykt.
Stráir við hvert fótmál sem hann getur góðmennsku og gleði.“
Guðjón Valur Sigurðsson handboltamaður
„Mikill íþróttamaður sem heldur alltaf haus, innan vallar sem utan.“
Laddi leikari
„Býr yfir meiri hæfileikum en allir keppendur Ísland Got
Talent til samans! Það er eitthvað „magic“ sem hann
hefur. Alveg ótrúlegur.“
Edda Heiðrún Backman listakona
„Stórkostleg manneskja og listamaður, gædd
ótrúlegum hæfileikum á öllum sviðum. Sterk,
hugrökk, æðrulaus. Gleður hjörtu, fegrar tilveruna
og færir svo mörgum von.“
Ragnhildur Steinunn sjónvarpskona
„Falleg og dugleg. Ég veit ekki hvað það er en hún er bara
fullkomin.“
Ingibjörg Þorbergs tónlistarkona
„Brautryðjandi kvenna í tónlist á Íslandi og hefur
áratugum saman vermt hjörtu þjóðarinnar með fal-
legum lögum sínum og yndislegum söng. Í hinum mikla
karlaheimi sem tónlistin getur verið kom hún mjög snemma
fram og sýndi að konur eru á engan hátt eftirbátar karla í sköpun
og flutningi tónlistar.“
Selma Björk Hermannsdóttir
„Flott stelpa sem lenti í alvarlegu einelti, steig fram
og sagði frá. Selma er farin að halda fyrirlestra
í skólum víða um land og nýtir þannig erfiða
reynslu sína til að láta gott af sér leiða. Það þarf
mikinn kjark til að deila reynslu sinni opinberlega,
sérstaklega þegar maður er unglingur. Hún
er frábær fyrirmynd fyrir bæði unga sem
aldna.“
Jóhanna Sigurðardóttir stjórnmálamaður
„Búin að endast í stjórnmálum í þetta mörg ár án þess að
einkalíf hennar kæfi störf hennar. Frábær fyrirmynd fyrir
dætur okkar, já og syni.“
Tómas Guðbjartsson læknir
„Hjartaskurðlæknir sem bjargar mannslífum.
Vann algjört afrek með björgun á lífi Skúla
Eggertz.“
Svandís Svavarsdóttir stjórnmálamaður
„Jákvæð og góð manneskja með hjartað á réttum stað. Tekur málefna-
lega á hlutunum og berst fyrir því sem skiptir máli. Fjölskyldumanneskja
og veit að það er alltaf til lausn á öllum málum. Óbilandi í ötulli baráttu
sinni fyrir fallega landinu okkar.“
Þórunn Björnsdóttir kórstjóri
„Þórunn hefur í fjörutíu ár verið eins konar þriðja foreldrið í uppeldi
barna í Kópavogi og kynnt þau fyrir undrum tónlistarinnar. Þau
hlaupa á þúsundum manneskjurnar sem hugsa hlýlega til Þór-
unnar og eiga henni mikið að þakka fyrir að verða jákvæðar og
uppbyggilegar manneskjur.“
Íslenska þjóðin
„Þjóðin á skilið mikið hrós fyrir að
standa saman og hjálpa sér sjálf á
erfiðum tímum.“
Of monsters and men
„Hópur af framúrskarandi einstaklingum.
Frábær fyrirmynd og stoltir fánaberar íslenskrar
menningu út um allan heim.“
Vesturport
„Meðlimir Vesturports eru mikil hvatning fyrir aðra leikara. Heimurinn
er minni en við höldum stundum.“
Hjónin Þórður Guðlaugsson yfirvélstjóri
og Ólöf Hafliðadóttir hjúkrunarfræðingur
„Komin yfir áttrætt en aldrei hlotið þá viðurkenningu sem þau eiga skilið.
Hann var ungur yfirvélstjóri á togaranum Þorkeli mána RE 205 er skipið
var við að farast á Nýfundnalandsmiðum í febrúar 1959. Hann bjargaði
skipi og áhöfn, tókst að létta skipið svo mjög að það komst úr hættu.
Þrátt fyrir þetta mikla björgunarafrek héldu hann og Ólöf kona hans,
yngsta manneskjan sem tók þátt í björgunarafrekinu við Látrabjarg 1947,
áfram að lifa lífi sínu af hógværð og virðingu fyrir fólki og lífinu.“
Þau voru líka nefnd ...
4.–7. Gylfi Sigurðssonknattspyrnumaður
n „Fyrirmynd innan sem utan vallar.“
n „Gríðarlega metnaðarfullur ungur mað-
ur sem hefur náð langt á skömmum tíma.
Fór út ungur og er eini Íslendingurinn í
sögunni sem kemst í aðalliðið hjá ensku
liði í gegnum unglingastarfið. Gríðarlega
jarðbundinn og kemur vel fram. Hefur
heldur aldrei bragðað áfengi né reykt á
ævinni.“
Vigdís er besta fyrirmyndin
Álitsgjafar
Anna Kristjánsdóttir vélfræðingur
Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona
Erna Margrét Ottósdóttir ritari
Einar Mikael töframaður
Guðný Jóhannesdóttir nemi
Garðar Gunnlaugsson knattspyrnumaður
Guðríður Haraldsdóttir aðstoðarritstjóri
Harpa Hjarðar markaðskona
Hrund Þórsdóttir fréttakona
Íris Kristinsdóttir söngkona
Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður
Ólafur Valur Ólafsson þjónustustjóri
Ragnheiður Elín Clausen
Sigga Lund fjölmiðlakona
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður
Tómas Þór Þórðarson blaðamaður
4.–7. Baltasar Kormákurkvikmyndagerðarmaður
n „Sköpunargleði og eldmóður. Hann fær mann til að
trúa að allt sé hægt. Ástríðufullur listamaður sem trúir á
sjálfan sig og verkin sín.“
n „Hugsar svo vel um landið sitt, er stoltur Íslendingur
og vill að Ísland og Íslendingar njóti með sér velgengn-
innar. Það er óeigingjarnt, hann er í heimsklassa, í öllu.“
4.–7. Jón Jónssontónlistarmaður og hagfræðingur
n „Hreinn og beinn, íþróttamaður sem kennir ungling-
um að fara með peninga. Reykir ekki og drekkur ekki og
talar af virðingu til unglinganna.“
n „Góð fyrirmynd. Alltaf tilbúinn að spjalla við börnin í
kringum sig.“
4.–7. Vilborg Arna Gissurardóttirpólfari
n „Ákveðin, þróttmikil kona sem uppfyllir drauma sína.“
n „Með ótrúlegri seiglu hefur þessari ungu konu tekist að sigra
hina ótrúlegustu erfiðleika og sýnir vel hvers ungt fólk er megn-
ugt ef það virkilega tekur sig á.“