Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Qupperneq 51
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Sport 51
Þess vegna var
Moyes rekinn
n David Moyes rekinn frá United n Árangurinn í tölum n Eftirminnileg ummæli
H
ið óumflýjanlega gerðist
loksins á þriðjudag þegar
David Moyes, knattspyrn-
ustjóri Manchester United,
var látinn taka pokann
sinn eftir lélegt gengi liðsins í vet-
ur. Ryan Giggs mun taka við starf-
inu út tímabilið, eða þar til nýr stjóri
verður fundinn. Manchester United
situr í 7. sæti ensku úrvalsdeildar-
innar og eftir 2-0 tap gegn Everton
á páskadag varð endanlega ljóst að
liðið mun ekki leika í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð. Möguleikar
liðsins á sæti í Evrópudeildinni eru
einnig svo gott sem úr sögunni.
Meistaradeild – í versta falli
Margir bjuggust við því að erfitt yrði
fyrir David Moyes að taka við starfi
knattspyrnustjóra af Sir Alex Fergu-
son sem lét af störfum eftir síðustu
leiktíð. Svartsýnustu stuðnings-
menn United reiknuðu með því að
liðið yrði í versta falli í baráttu um
3. til 4. sætið sem þó gæfi þátttöku-
rétt í Meistaradeild Evrópu á næstu
leiktíð. United vann deildina heima
fyrir sannfærandi á síðustu leik-
tíð og því engin ástæða til að ætla
annað en að liðið yrði í toppbar-
áttu. Fljótlega varð þó ljóst að margt
þyrfti að breytast til að liðið næði því
markmiði. United byrjaði tímabil-
ið ágætlega með 4-1 útisigri gegn
Swansea. Í kjölfarið fylgdu leik-
ir gegn Chelsea, Liverpool, Crystal
Palace og Manchester City og var
uppskeran úr þeim leikjum aðeins 4
stig. United var því með 7 stig eftir
fyrstu fimm leikina.
Viðvörunarbjöllur hringdu
snemma
Hinn 28. september tapaði liðið
sínum fyrsta heimaleik á tímabil-
inu þegar WBA kom í heimsókn
og í næsta heimaleik þar á eftir
gerði liðið 1-1 jafntefli gegn Sout-
hampton. Viðvörunarbjöllur voru
farnar að hringja á Old Trafford.
United lék sinn besta leik á
tímabilinu hinn 27. nóvember þegar
liðið valtaði yfir Bayer Leverkusen,
5-0, á útivelli í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar. Eftir þann leik
fylgdu þó þrír leikir í deildinni þar
sem United tókst ekki að vinna;
jafntefli úti gegn Tottenham og töp
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is Arftakinn
n Nokkrir knattspyrnustjórar hafa verið
orðaðir við United eftir að liðið tilkynnti
að Moyes væri hættur. Louis van Gaal
virðist vera efstur á blaði en greint hefur
verið frá því að forráðamenn United
hafi þegar hitt hann og rætt málin.
Hér eru þeir fimm sem helst hafa verið
nefndir en að auki má nefna að Sir Alex
Ferguson er hreint ekki ólíklegur arftaki
samkvæmt veðbönkum.
Louis van Gaal
Starf: Landsliðsþjálfari Hollands
Aldur: 62 ára
Helstu afrek: 7 deildartitlar í
Hollandi, Þýskalandi og á Spáni,
Meistaradeildin með Ajax 1995.
Jürgen Klopp
Starf: Stjóri Borussia Dortmund
Aldur: 46 ára
Helstu afrek: Þýskalandsmeistari
2011 og 2012
Diego Simeone
Starf: Stjóri Atletico Madrid
Aldur: 43 ára
Helstu afrek: Bikarmeistari á Spáni
2013, sigur í Evrópudeild 2012
Carlo Ancelotti
Starf: Stjóri Real Madrid
Aldur: 54 ára
Helstu afrek: Sex deildartitlar á
Englandi, Ítalíu og í Frakklandi
Antonio Conte
Starf: Stjóri Juventus
Aldur: 44 ára
Helstu afrek: Ítalskur meistari
2012 og 2013
heima gegn Everton og Newcastle
í byrjun desember. Á þeim tíma-
punkti var ljóst að eitthvað mikið
var að í herbúðum United. Árangur
liðsins batnaði ekki mikið eftir ára-
mót. Liðið vann sigra gegn liðum
sem voru neðar í deildinni en átti í
erfiðleikum gegn sterkari liðum eins
og Liverpool, Chelsea, Manche-
ster City og Everton, en leikurinn
gegn þeim síðastnefndu á páskadag
reyndist vera banabiti Moyes. Liðið
féll auk þess snemma úr leik í bik-
arkeppnunum; tapaði heima gegn
Swansea í 3. umferð bikarkeppn-
innar og í vítaspyrnukeppni gegn
lágt skrifuðu Sunderland-liði í und-
anúrslitum deildabikarsins.
Meistaradeildin ljós punktur
Eini ljósi punktur United á tímabil-
inu er árangurinn í Meistara-
deildinni sem var á heildina litið
ágætur. Liðið vann sinn riðil og
komst í 16 liða úrslit þar sem
Olympiacos var lagt af velli, naum-
lega þó. Í 8 liða úrslitum mætti
United einfaldlega betra liði, Bayern
München, sem hafði samanlagð-
an 4-2 sigur af hólmi. Hvort bjartari
tímar taki við hjá United með nýjum
knattspyrnustjóra skal ósagt látið,
en ljóst er að nýs knattspyrnustjóra
bíður krefjandi verkefni. n
David Moyes í orðum
David Moyes lét nokkur undarleg ummæli falla í starfi sínu hjá
United – ummæli sem fóru illa í marga stuðningsmenn sem töldu að
með þeim væri Moyes ekki starfi sínu vaxinn. Hér eru nokkur þeirra.„Ég held að þetta sé erfiðasta byrj-
un Manchester United í tuttugu
ár. Ég vona að það sé ekki vegna þess að
Manchester United vann deildina sann-
færandi síðasta tímabil að leikirnir í byrj-
un séu erfiðari.“
→ Moyes áður en tímabilið hófst um erf-
iða leikjaniðurröðun í byrjun móts. United
mætti Manchester City, Chelsea og Liver-
pool í fyrstu fimm leikjunum.„Ég veit ekki hvað við þurfum að
gera til að vinna. Við spiluðum vel
í dag.“
→ Moyes eftir 2-1 tap gegn Stoke í febrúar
sem var áttunda tap liðsins í deildinni.„Staða þeirra í deildinni gefur til
kynna að þeir séu betri en við og
mögulega koma þeir hingað sem líklegra
liðið. Liverpool er að spila vel og við þurf-
um að gera allt sem við mögulega getum
til að vinna þá.“
→ Moyes fyrir heimaleikinn gegn Liverpool
í mars. United steinlá, 3-0.„Við spiluðum gegn góðu liði sem
er á þeim stað sem við þurfum að
reyna að komast á.“
→ Moyes eftir 3-0 tap á heimavelli gegn
Manchester City.„Ég held að ef Sir Alex hefði stýrt
liðinu á þessu tímabili hefði
tímabilið einnig orðið erfitt fyrir hann.
Hópurinn er eldri en hann var í fyrra og ég
held að þetta hefði orðið erfitt tímabil
fyrir hvern sem er.“
→ Moyes fyrir heimaleikinn gegn Aston
Villa í lok mars.
Undir stjórn
Moyes ...
... tapaði United bæði heima og úti
gegn Everton, gamla liði David Moyes,
í fyrsta skipti frá tímabilinu 1969/70.
... tapaði United bæði heima- og
útileikjum gegn Everton og Liverpool
sem hafði aldrei áður gerst í sögu
úrvalsdeildarinnar.
... tapaði United bæði heimaleiknum
gegn Manchester City og Liverpool
sem hafði aldrei áður gerst í sögu
úrvalsdeildarinnar.
... tapaði United heimaleik gegn
Swansea sem hafði aldrei gerst áður.
... tapaði United þremur leikjum í röð
sem hafði ekki gerst síðan 2001.
... tapaði United heima fyrir
Newcastle sem hafði ekki gerst síðan
árið 1972.
... tapaði United deildarleik gegn
Stoke sem hafði ekki gerst síðan
1984.
... tapaði United heima gegn WBA
sem hafði ekki gerst síðan 1978.
... féll United úr keppni strax í þriðju
umferð ensku bikarkeppninnar sem
gerðist aðeins einu sinni á 26 árum
undir stjórn Sir Alex Ferguson.
... mistókst United að komast í
Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti
frá árinu 1995.
... fékk United fæst stig í sögu félagsins
frá stofnun úrvalsdeildarinnar (jafnvel
þótt tímabilinu sé ekki enn lokið).
„Á þeim tíma-
punkti var ljóst
að eitthvað mikið var að
í herbúðum United
Árangur
Moyes
Leikir: 51
Sigrar: 27
Jafntefli: 9
Töp: 15
Sigurhlutfall:
52,94%
Búið spil David
Moyes er ekki lengur
knattspyrnustjóri
Manchester United.