Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Page 52
Helgarblað 23.–28. apríl 201452 Menning
Með náðargáfu?
R
annsóknir á erfðum hafa
löngum haft að markmiði
að einblína á sjúkdóma.
Það vakti því athygli þegar
DeCode tilkynnti um rann-
sókn á listhneigð og listsköpun. Til-
gangur rannsóknarinnar er að afla
gagna sem munu gera rannsak-
endum kleift að skilgreina erfða-
breytileika sem eru ekki sjúkdóms-
valdandi eða hamlandi í daglegu
lífi heldur varpa mögulegu ljósi á
hina miklu breidd áhugasviða og
hæfileika sem fyrirfinnst meðal
einstaklinga. Ein af birtingarmynd-
um þessa er listhneigð og listsköp-
un á mismunandi sviðum sem talin
er liggja í ættum.
Fjölmargir listamenn hafa fengið
boð um þátttöku í rannsókninni og
sýnist sitt hverjum.
Mikilvægi hennar er hins vegar
margslungið eins og hér verður rakið.
Listhneigð og líffræði
Kári Stefánsson segist ekki geta rætt
ítarlega um rannsóknina að svo
stöddu og því verða lesendur DV
að sætta sig við styttri og einfaldari
útgáfuna: „Og er það ekki vegna
minnar eðlislægu geðvonsku,“ segir
hann og hlær.
„Við getum ekki tjáð okkur mikið
um rannsóknina áður en niðurstöð-
urnar eru birtar í vísindatímariti.“
Hann segir þó í lausum dráttum
frá þeirri hugsun sem liggur að baki.
„Skapandi einstaklingar eru skap-
andi vegna þess að þeir hugsa öðru-
vísi og eru með annars konar tilf-
inningar en fólk almennt. Það sama
má segja um fólk sem er með geð-
sjúkdóma, það hugsar einnig öðru-
vísi og hefur öðruvísi tilfinningar
en aðrir,“ segir hann og segir frá því
að oftsinnis áður hafi menn vilj-
að leggja þessa eiginleika að jöfnu,
sköpunarkraftinn og geðveikina.
Krafturinn sem fleytir
samfélaginu áfram
Hann nefnir að ýmsir eiginleikar
mannsins eigi sér bæði jákvæðar og
neikvæðar hliðar. Það sé ekki síður
gildi í því að rannsaka þær jákvæðu.
„Það er staðreynd að til þess að vera
skapandi þarftu að geta hugsað á
annan máta en aðrir. Þú þarft að
geta hugsað út fyrir boxið. Við get-
um tekið svo til orða að ef þú yfir-
gefur boxið um morgun, þá er ekki
víst að þú eigir afturkvæmt í það um
kvöldið. Það er því mjög áhugavert
að velta því fyrir sér hvernig hin-
ir ýmsu eiginleikar mannsins geta
bæði verið jákvæðir og neikvæðir.
Geta verið gagnlegir fyrir samfélag-
ið en hættulegir fyrir einstaklinginn.
Vegna þess að sköpunargáfan er
forsenda þess að samfélagi okkar
fleyti áfram.
Hins vegar er ekki ólíklegt að
til þess að þessi sköpunarmáttur
haldi áfram að vera til í okkar sam-
félagi, þá gjaldi einstaklingar fyrir
það. Og þá á ég við þá einstaklinga
sem erfðu þetta frávik frá venjulegri
hugsun sem leiddi til þess að þeir
þróuðu með sér geðsjúkdóma.
Við höfum verið að velta því fyrir
okkur hvernig á því stendur að þetta
erfist saman í fjölskyldum. Og höf-
um verið að leita að stökkbreyting-
um eða breytanleika í erfðamenginu
sem hafa annars vegar áhrif á hætt-
una á geðsjúkdómum og hins vegar
aukið líkurnar á sköpunarmætti.“
Með öðruvísi heila
Nú þegar hafa verið birtar niður-
stöður áfanga rannsóknarinnar í
vísindatímaritinu Nature er viðvík-
ur þessum frávikum. „Við birtum
stóra grein í tímaritinu Nature fyrir
nokkrum vikum þar sem við sýnd-
um fram á stökkbreytingar sem
að tífalda líkurnar á geðklofa. Ný-
gengni eða tíðni á geðklofa í okk-
ar samfélagi eru um eitt prósent,
þannig að þeir sem eru með þessa
stökkbreytingu eru með tíu sinnum
meiri líkur á að fá geðklofa en annað
fólk. En hins vegar eru um 90 pró-
sent þeirra með stökkbreytinguna
sem fá ekki geðklofa. Við spurðum
spurningarinnar, hugsar þetta fólk
öðruvísi en annað fólk? Við sýnd-
um fram á að já, þetta fólk hugs-
ar öðruvísi. Við gerðum mjög ná-
kvæmar rannsóknir á því hvernig
þetta fólk hugsar. Gerðum alls kon-
ar greindarpróf á þessu fólki og það
hugsar öðruvísi en fólk almennt í
samfélaginu, og það sem meira er,
við sýndum fram á með því að taka
segulómun af heila þessa fólks að
margt af því er með heila sem er
öðruvísi í laginu.“
Listamenn og líkur á
breytanleika gena
Kári lýsir í örfáum orðum þeim
áfanga sem nú fer í hönd án þess
að fara í saumana á honum. „Nú
erum við að leggja lokahönd á rann-
sókn þar sem við sýnum fram á að
meðlimir í hinum ýmsu samtökum
listamanna eru líklegri til að hafa
breytanleika sem fylgja geðklofa og
geðhvörfum almennt. Þannig að við
erum að sýna fram á að þetta geng-
ur ekki bara saman í fjölskyldum
heldur á rætur í sams konar líffræði.
Það er að segja, geðhvörfin og geð-
klofinn annars vegar og sköpunar-
mátturinn hins vegar.“
Hænuskref í átt að skilningi
Þetta er mjög merkilegt. Þó að margt
af því fólki sem við rekumst á í til-
verunni sé heldur ómerkilegt þá er
þessi dýrategund svo merkileg,“ seg-
ir hann gráglettinn.
„Það sem er merkilegast við
þetta allt saman er að heilinn er það
líffæri sem við skiljum hvað minnst
en er á sama tíma það líffæri sem
skilgreinir okkur sem dýrategund
og einstakling innan dýrategundar-
innar. Heilinn er líffæri meðvitund-
ar. Meðvitundin er með tvo þætti,
annars vegar samspil svefns og
vöku og hins vegar innihald með-
vitundar sem er hugsun og tilfinn-
ingar. Við höfum ekki hugmynd um
það hvernig heilinn býr til hugsun
og við höfum ekki hugmynd um það
hvernig heilinn býr til tilfinningar.
Við getum ekki einu sinni skilgreint
hugsanir og tilfinningar. Hvernig
eigum við þá í ósköpunum að skilja
sjúkdóma sem fyrst og fremst hafa
áhrif á gang hugsana og tilfinn-
inga? Mér finnst þess vegna svo
spennandi að vera búinn að taka
hænuskref í áttina að því að finna út
hvernig heilinn hugsar.“
En hvað er skapandi hugsun?
Flestir sammælast um að sköp-
unarkraftur sé gáfa, kraftur sem ger-
ir okkur kleift að setja fram hug-
myndir og sýn á lífið með því að
nýta okkur tækni eða listform. Hug-
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Spennandi tímar
Kári Stefánsson leiðir
spennandi rannsókn á
listhneigð og tengsl-
um við geðsjúkdóma.
Mynd SiGtryGGur Ari
„Skapandi
einstaklingar eru
skapandi vegna þess að
þeir hugsa öðruvísi og eru
með annars konar tilfinn-
ingar en fólk almennt.
n „Meðlimir í hinum ýmsu samtökum listamanna eru líklegri til að hafa breytanleika sem fylgja geðklofa og geðhvörfum,“ segir Kári Stefánsson