Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Síða 53
Helgarblað 23.–28. apríl 2014 Menning 53
myndirnar þurfa ekki að vera nýjar,
hæfileikinn liggur helst í því að búa
stöðugt til eitthvað nýtt úr því sem
er liðið, gamalt. Lífsorka sem bein-
ist að því að nota þær upplýsingar
sem okkur berast, til þess að skapa
úr þeim eitthvað nýtt.
Lífseig spurning vísindanna
er svo hvort sköpunarkrafturinn
er meðfæddur eða lærður, það er
sú spurning sem Kári og vísinda-
menn DeCode fást við um þess-
ar mundir og vísindamenn víða
um heim helga sig því að leita
svara við þessari spurningu á öðr-
um sviðum. Það gerði taugalíf-
fræðingurinn Kenneth Heilman
og teymi vísindamanna í Corn-
ell-háskóla fyrir örfáum árum.
Kenneth vildi skoða virkni heila
skapandi einstaklinga og komst
eins og vísindamenn DeCode að
því að hvað varðar taugar heil-
ans eru heilarnir frábrugðnir heila
annarra.
Minni tengsl – meiri sérhæfing
Í heilanum á okkur eru tveir helm-
ingar sem kallast vinstra og hægra
heilahvel. Hvort hvel um sig stjórn-
ar andstæðum hluta líkamans.
Hægra heilahvelið sendir til dæm-
is hreyfiboð til vinstri hluta lík-
amans. Boð frá skynfærum berast
einnig fyrst til andstæðs heilahvels.
Sjónboð frá vinstra sjónsviði berast
fyrst til hægra heilahvels.
Heilahvelin vinna þó ekki hvort
í sínu lagi heldur senda þau skila-
boð sín á milli. Skilaboðin fara um
hvelatengslin. Tengslin eru gerð
úr svonefndri heilahvítu sem er
mynduð úr mýldum taugaþráð-
um. Í rannsókn Kenneth kom
fram að rithöfundar, listamenn
og tónlistarmenn voru með minni
hvelatengsl en aðrir hópar sem
teymi Kenneth rannsakaði. Dró
teymið þá ályktun að vegna minni
tengsla þróaði hvert heilahvel
með sér sterkari sérhæfingu og
hæfileikann til hugarflæðis.
Hugarflæði nýtist vel í skap-
andi hugsun, þar sem margar hug-
myndir kvikna með því að rann-
saka marga misjafna möguleika.
Heili Alberts Einstein
Albert Einstein trúði því einnig
að það væri nytsamlegt að skilja
hlutverk heilans þegar kemur að
sköpunarmættinum og skildi að
til þess þyrfti að rannsaka sér-
staklega heila skapandi fólks.
Hann vissi reyndar að hann sjálfur
myndi reynast verðugt rannsókn-
arefni og gaf því heilann á sér til
rannsókna áður en hann lést. Heili
Alberts var krufinn en því mið-
ur týndist meirihluti sýnanna og
voru því aldrei greind. Sá litli hluti
sýna sem varðveittist var rannsak-
aður af Marian C. Diamond og
vísindateymi hennar sem greindi
frá því að sýnið úr heila Einsteins
innihéldi minna af taugafrum-
um en aðrir heilar og lægju þéttar
saman. Þá voru í heila hans meira
af fylgifrumum, sem geta endur-
nýjað sig (sem taugafrumur geta
ekki). Niðurstöðurnar voru birt-
ar í Lancet-læknatímaritinu árið
1999.
Sænskir læknar rannsaka
tengsl geðsjúkdóma og
listhneigðar
Þá hafa sænskir læknar á Karol-
inska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
rannsakað tengsl sköpunarmátt-
ar og geðsjúkdóma. Niðurstöð-
ur þeirra styðja vel við erfðarann-
sóknir DeCode því einstaklingar
með geðhvarfasýki sóttust frekar
eftir því að starfa við skapandi
listir en aðra atvinnu. Uppgötv-
unin kemur alls ekki á óvart og
er í fullu samræmi við ævisög-
ur frægra skapandi einstaklinga á
borð við Churchill, Virginiu Woolf,
Beethoven og Hemingway sem öll
sýndu merki um geðhvarfasýki.
Það sem kemur á óvart í rann-
sókn Karolinska sjúkrahússins er
að ættingjar þeirra sem glíma við
alvarlega geðsjúkdóma á borð
við geðhvarfasýki og geðklofa eru
meira skapandi en meðaleinstak-
lingurinn. Jafnvel þótt þeir veikist
aldrei. Genin virðast því liggja sem
leyndur hlekkur þar á milli. n
Með náðargáfu?
Sá allra mest skapandi Heilinn í
Albert Einstein reyndist frábrugðinn
öðrum heilum í samanburði.
S
jaldan hafa jafn margir haft
það jafn gott í einu þjóðfé-
lagi og í Svíþjóð 7. áratugar-
ins og Monica Z. er ekki síst
áhugaverð vegna umgjarðar-
innar. Stundum minnir hún á mann-
eskjulegri Mad Men, þar sem krakk-
ar ganga um með sígarettubakka í
veislum, passað er upp á að láta alla
keyra vinstra megin, en Ísland og Sví-
þjóð voru síðustu lönd Evrópu (utan
Bretlands og Írlands) til að taka upp
hægri umferð.
Monica Z. var ein skærasta
stjarna þessara gullnu ára, tónlistin
er hin skemmtilegasta og Cornel-
is Vreeswijk, Ingmar Bergman og
grínistarnir Hasse og Tage koma
fyrir. Undir þessu glæsta yfirborði
er Monica sjálf þó heldur ósympat-
ísk persóna og er það höfundum til
tekna að draga ekkert undan, hún
er drifin áfram af metnaði en skeytir
lítið um fólkið í kringum sig. Persón-
an er borin uppi af Eddu Magnason,
sem stafar þvílík útgeislun af að mað-
ur skilur vel að allir falli fyrir henni.
Mótleikari hennar er Sverrir Guðna-
son, sem fyrst sást í áramótaskaup-
inu árið 1989.
Gallinn er að samband Monicu
við föður sinn er sett í forgrunn, sem
er heldur mikil einföldun. Monica
vill stöðugt hefna sín á pabba fyrir
að leyfa henni ekki að klifra í trján-
um sem barn, en í raun stórslasaði
hún sig einmitt við það og var kvalin
alla ævi. Þessu er sleppt en í staðinn
er áhersla lögð á hve erfitt var fyrir
hana að fá núll stig í Eurovision. Þó
tókst henni, eins og Daníel Ágústi
síðar, að komast yfir það áfall. Hvað
sem því líður fer Monicu Z. létt með
að sjarmera áhorfendur. n
Sjarmerandi
Manneskjulegri Mad Men
Öðruvísi heili Rannsókn Kenneth í
Cornell leiddi í ljós að heilar þeirra sem eru
skapandi eru öðruvísi en þeirra sem eru
minna skapandi. Ákveðið svæði heilans er
minna að umfangi og öðruvísi samsett.
n „Meðlimir í hinum ýmsu samtökum listamanna eru líklegri til að hafa breytanleika sem fylgja geðklofa og geðhvörfum,“ segir Kári Stefánsson
Monica Z Persónan
er borin uppi af Eddu
Magnason, sem
stafar þvílík útgeisl-
un af að maður skilur
vel að allir falli fyrir
henni.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmynd
Monica Z
IMDb 7,1
Leikstjórn: Per Fly
Aðalhlutverk: Edda Magnason, Kjell
Bergqvist og Sverrir Guðnason
Handrit: Peter Birro
Sýnd í Bíó Paradís og Laugarásbíó
111 mínútur
K
ristnir menn fögnuðu fyr-
ir nokkrum dögum upp-
risu Jesú Krists, sem fyr-
ir tæpum 2000 árum reis
upp frá dauðum eftir þrjá
daga í gröfinni. Í ágúst verða 37
ár liðin frá því Elvis Presley lést á
postulínshásæti sínu á baðherbergi
Graceland. Minna bólar á endur-
komu hans, þótt báðir eigi enn að-
dáendur sem geta varla beðið.
Sumum finnst sem dýrkun-
in á Elvis fari stundum ansi nálægt
trúarbrögðum, og bæði Kristur og
Elvis voru kallaðir kóngar þó af al-
múgafólki væru. En í stað þess að
drekka blóð hans og éta líkama
á táknrænan hátt fara fylgjendur
hans í gervi konungs síns. Fæstir
dauðlegir menn geta litið úr eins og
Elvis gerði á velmektarárum sínum
á 6. áratugnum, en blessunarlega
varð hann æ mannlegri þegar á leið.
Myndarleg hamborgaravömb
spillir ekki fyrir, það eina sem þarf er
að setja á sig hárkollu (því fáir hafa
hið þykka, svartlitaða hár kóngs-
ins), sólgleraugu og klæðast hvítum
samfestingi. Allir vita samstundis
hver er ákallaður, og þannig verða
til svartir Elvisar og hvítir, stórir og
litlir, karlkyns og kvenkyns.
Elvis-eftirhermurnar eiga sér
sína eigin sögu. Ein sú fyrsta var
Andy Kaufman, sem brá sér í gervið
áður en kóngurinn sjálfur lést.
En er aðdáunin á Elvis raun-
veruleg trúarbrögð? Mark Gottdi-
ener, prófessor við New York-há-
skóla, hefur fjallað um fyrirbærið og
kallar Elvis „The Other Jesus“. Elvis
er hin holdlega útgáfa hins guð-
lega Krists. Ef Kristur höfðar til and-
ans, þá höfðar Elvis til líkamans.
Dr. Raymond Moody, sálfræðingur
í Georgíu, telur hins vegar að ekki
sé um trúarbrögð að ræða. Hins
vegar hafi fylgjendur Elvisar geng-
ið í gegnum hefðbundið sorgarferli
þar sem fyrst tekur við sjokk, þá
þráhyggja fyrir hinum látna og loks
afneitun.
Hverfandi líkur eru á að Elvis
muni birtast okkur aftur og stíga á
svið, að minnsta kosti í þessu lífi.
En í millitíðinni má sjá ásjónu hans
í Eldborgarsal Hörpu næstu tvö
kvöld, þar sem kónginum verður
varpað á skjá með aðstoð nýj ustu
tækni og hljómsveit hans frá Las
Vegas-árunum hinum síðari daga
heilögu spilar undir. n
Er Elvis guð?
Eftirherman má allt
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Raunveruleg trúarbrögð
Ef Kristur höfðar til andans, þá
höfðar Elvis til líkamans.
MynD LouISE HAywooD-ScHIEfER