Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2014, Blaðsíða 60
Helgarblað 23.–28. apríl 201460 Fólk
S
íðasti þáttur Game of Thrones,
Breaker of Chains, hefur vak-
ið hneykslan og reiði. Þótt að í
þáttunum sé rauður þráður of-
beldis og afbrigðileika úr höfði höf-
undar sjálfs, George R.R Martin, þótti
mörgum nóg um þegar leikstjóri þátt-
anna breytti kynlífssenu í nauðgunar-
senu. Væntanlega til að keyra upp
spennu og áhorf.
Aðdáendur brugðust harkalega
við og lýstu því yfir á fjölmörgum vef-
miðlum að þeim fyndist bæði verið
að spila með sig og glamúrvæða kyn-
ferðisofbeldi að óþörfu.
Í senunni er einni kvenhetjunni,
Cersei, nauðgað af bróður sínum og
elskhuga Jaime, við hlið líks sonar
þeirra, Joffrey. Jaime er á þessum tíma-
punkti afar reiður Cersei vegna þess
að hún hafði beðið hann um að drepa
Tyrion Lannister, bróður þeirra, sem
hún kennir um morð sonarins. Í bók-
inni er engin nauðgunarsena í þessum
kafla sögunnar. Leikstjórinn, Alex Gra-
ves, sagði: „Nú jæja, það verður sam-
þykki á milli þeirra í lokin, vegna þess
að allt kveikir í þeim, sér í lagi valdaá-
tök.“ Svo bætir hann stoltur við: „Þetta
er ein af mínum uppáhaldssenum.“
Ummæli Alex þykja jafnvel alvar-
legri en myndefni senunnar enda gefa
þau til kynna að hann skilji ekki kyn-
ferðisofbeldi og afleiðingar þess eða
merkingu samþykkis til kynlífs, svo
vitnað sé í íslenskt slagorð gegn nauð-
gunum: Nei þýðir nei. n
Óþarfa nauðgunarsena í Game of Thrones
Nei þýðir ekki nei í huga leikstjórans Alex Graves
Aftur saman
Catherine Zeta-Jones og Mich-
ael Douglas sjást nú æ oftar
saman opinberlega eftir að þau
tóku saman aftur. Hjónin skildu
til skamms tíma en sögðu fjöl-
miðlum að þau væru að vinna í
að halda hjónabandinu saman.
Það virðist hafa tekist en hjón-
in mættu saman á fjórtándu
Monte Cristo-verðlaunahátíðina
til að styðja vinkonu sína, Meryl
Streep. Hjónin voru geislandi
og virkuðu ástfangin þegar þau
stilltu sér upp í myndatöku með
Meryl á hátíðinni.
Lætur lítið
fyrir sér fara
Myndir náðust af Kelly Clarkson
sem ber nú sitt fyrsta barn und-
ir belti. Kelly tilkynnti um ólétt-
una í nóvember og sagði það vera
bestu fyrirfram jólagjöf sem hún
gæti fengið. Í kjölfarið kom hún
fram í spjallþáttum og talaði um
hversu erfið meðgangan hefði
reynst sér, hún hefði verið mik-
ið veik og lítið geta notið þess
að vera ólétt. Kelly hefur verið í
hálfgerðum felum undanfarna
mánuði og látið lítið fyrir sér fara.
Hún hefur ekki komið opinber-
lega fram í fjóra mánuði en þessi
mynd náðist af henni yfir pásk-
ana þar sem hún naut frísins með
fjölskyldu sinni.
Lindsay
missti fóstur
Leikkonan Lindsay Lohan sagði
frá því í lokaþætti þáttaraðar
sem fjallar um líf hennar að hún
hefði misst fóstur. Lindsay var
beðin að segja frá þeim tíma
þegar þáttaröðin, sem fjallar
um líf hennar í bata frá vímu-
efnafíkn, var tekin upp. Hún
sagði að það hefði verið erfitt að
horfa á þættina, meðal annars
vegna þess að henni hefði liðið
mjög illa. Í tvær vikur neitaði
Lohan að leyfa myndavélunum
að fylgjast með lífi sínu og sagði
hún það stafa af því að hún
hefði misst fóstur. Að horfa á
þættina aftur hefði minnt hana
á sársaukann.
Alex Graves Leikstjórinn segir senuna eina
af sínum uppáhalds, í huga hans er óljóst að
nei þýðir nei, þegar kemur að kynlífi.
Cersei nauðgað
Í bókinni njóta þau
ásta en í þáttunum
nauðgar Jaime
Cersei.
David Archuleta Söngvarinn David
Archuleta úr American Idol setti ferilinn
til hliðar eftir raunveruleikaþáttinn til að
finna sig að nýju í trúnni. Söngvarinn, sem
er mormóni, fór í tveggja ára ferðalag til að
uppfylla trúarlegar skyldur sínar.
n Stjörnur sem eru strangtrúaðar
Mark Wahlberg Kaþólski leikarinn Mark
Wahlberg tekur trú sína mjög alvarlega.
Árið 2007 hleypti hann Premiere-tímaritinu
inn í svefnherberbergi sitt, sem hann notar
sem einkakapellu. Inni í herberginu er meðal
annars að finna flösku með heilögu vatni og
endurgerð af listaverki úr Vatíkaninu. Leik-
arinn, sem á fjögur börn með eiginkonu sinni,
Rhea Durham, fer í kirkju á hverjum degi.
Angus T. Jones Fyrrum leikarinn úr
Two And A Half Men, Angus T. Jones, er
nánast óþekkjanlegur eftir að hafa yfirgefið
þættina. Í dag ferðast Jones um og predikar
í kirkjum víðs vegar um Bandaríkin. Hann
komst í fréttirnar árið 2012 þegar hann
kallaði sjónvarpsþættina sem gerðu hann
frægan og ríkan viðbjóð og hvatti fólk til
að sniðganga þá. Jones hefur látið hafa
eftir sér að hann gæti vel hugsað sér
að halda áfram að leika en aðeins fyrir
sjónvarpsstöðvar sem framleiddu kristilegt
sjónvarpsefni.
Stephen Baldwin Leikarinn Stephen
Baldwin heldur því fram að hafa endur-
fæðst í kristni. Hann viðurkennir að slík
fullyrðing geti valdið einhverjum hugarangri
og segist hafa róast í trúboði sínu. Hann
segir trúna hafa haft neikvæð áhrif á
leiklistarferilinn.
Mel Gibson Leikarinn og leikstjórinn Mel
Gibson byggði kirkju í Malibu sem hann skírði
Kirkju Heilögu fjölskyldunnar. Messað er á
hverjum morgni í kirkju Mels en kvenfólk
sem ætlar sér að mæta verður að hylja höf-
uð sitt. Gibson er sannfærður um að aðeins
þeir trúuðu munu lifa af hinn síðasta dag.
Prince Söngvarinn Prince var alinn upp
í Kirkju sjöunda dags aðventista en gekk í
söfnuð Votta Jehóva árið 2001. Hann hefur
viðurkennt að hafa gengið á milli húsa í von
um að breiða út boðskapinn. Sagan segir að
tónlistarmaðurinn þurfi á mjaðmaaðgerð að
halda en þar sem trú hans leyfi ekki blóðgjöf
hefur hann ekki lagst undir hnífinn. Sumir
segja að hann hafi farið í aðgerðina í felum.
Patricia Heaton Leikkonan Patricia
Heaton úr Everybody Loves Raymond var
alin upp í kaþólskri trú. Leikkonan segir
margar stjörnur í Hollywood trúaðar en að
fæstar tali um það opinberlega. Í viðtali
þar sem trú hennar bar á góma vitnaði hún í
Markúsarguðspjall og grínaðist með guð og
Jesú á léttum nótum.
Madonna Madonna var alin upp í
kaþólskri trú en árið 1996 gerðist hún ákafur
fylgismaður Kabbalah. Samkvæmt Daily
Mail blandar söngkonan ávaxtasafa barna
sinna með sérstöku blessuðu kabbalah-
vatni og gengur í hvítum fötum af því að slík
föt dragi að sér orku.
Denzel Washington Denzel Washington
er prestssonur og hefur verið meðlimur
West Angeles Church of God in Christ í yfir
30 ár. Leikarinn les Biblíuna á hverjum degi
og er staðfastur í trú sinni eins og fram
kom í Christianity Today árið 2010: „Ég trúi
að Jesús sé sonur Guðs. Ég hef fundið fyrir
heilögum anda. Ég er viss um það. Ég var
á staðnum. Ég grét eins og barn og var svo
hræddur. Ef ég á að segja satt þá ýtti þessi
reynsla mér í burtu. Ég fór í aðrar áttir. Ég
vissi ekki hvað var að gerast. Þetta var svo
sterk orka. Það hefur tekið mig mörg ár að
koma til baka.“
Tina Turner Söngkonan Tina Turner hefur
verið búddisti frá 1970. Turner leitaði í trúna
eftir að hafa komist út úr ofbeldisfullu sam-
bandi við tónlistarmanninn Ike Turner.
Tom Cruise Allir vita að Tom Cruise er
staðfastur fylgjandi Vísindakirkjunnar. Árið
2005 gekk hann fram af mörgum þegar
hann gagnrýndi fyrrverandi meðleikkonu
sína, Brooke Shields, fyrir að nota geðlyf
í baráttu sinni við fæðingarþunglyndi.
Samkvæmt Cruise og Vísindakirkjunni eru
geðlækningar platvísindi sem drepa.
Hallelúja í Hollywood
T
rúarlíf stjarnanna í
Hollywood er fjölbreytt
eins og okkar hinna. Sumar
kjósa að halda trúnni fyr-
ir sig en aðrar vilja breiða
út boðskapinn. Hér eru nokkrar
stórstjörnur sem hafa kosið að lifa
eftir guðsorði. n indiana@dv.is