Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2011, Blaðsíða 47
Sport | 47Helgarblað 18.–20. febrúar 2011
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Um helgina leikur
Hljómsveitin sín
AllAr veitingAr í boði
n BBQ svínarif, hamborgarar,
steikarsamlokur
n Hádegismatur m/súpu og kaffi
n Hópamatseðlar fyrir veislur,
smáréttaborð og fleira
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn
boltinn
AlltAf í
beinni
góukAffi - KonUdagsKaffi
sunnudaginn 20. febrúar
kl. 15:00 - 17:00. allir velkomnir!
átrúnaðargoði sínu Romario. Hann
var aðeins eitt tímabil hjá Barcelona
en það tímabil lifir enn í minningu
stuðningsmanna liðsins þrátt fyrir
að það hafi ekki hampað spænska
meistaratitlinum. Ronaldo skoraði
hvorki meira né minna en 47 mörk í
49 leikjum en á tímabilinu varð lið-
ið meistari meistaranna, spænskur
bikarmeistari og hampaði sigri í Evr-
ópukeppni bikarhafa. Englendingur-
inn Sir Bobby Robson stýrði Barce-
lona þetta tímabil en þegar hann
var spurður út í Ronaldo eftir fræg-
an leik gegn Valencia þar sem Brass-
inn skoraði eftirminnilega þrennu
fórnaði Robson höndum og svaraði:
„Hvað get ég sagt? Þið sáuð þenn-
an leik. Ekki er ég að kenna honum
þetta. Það getur enginn kennt þetta.
Vá. Það eina sem ég get gert er að
benda öllum á þá óhugnanlegu stað-
reynd að hann er aðeins 21 árs. Hann
á bara eftir að verða betri.“
Ronaldo var keyptur fyrir met-
fé til Barcelona en eftir þetta ótrú-
lega ár þar sprengdi Inter skalann og
gerði hann að dýrasta manni heims
sumarið 1997. Ronaldo var hjá Inter
í fimm ár en vann aðeins einn titil,
Evrópukeppni félagsliða árið 1998.
Meiðsli settu stórt strik í reikninginn
hjá Ronaldo þegar hann dvaldi hjá
Inter en hann spilaði aðeins 99 leiki.
Skoraði þó auðvitað nóg af mörkum,
ein 59 stykki.
„Undrið“ varð til
Ronaldo fór á kostum á HM 1998 en
þurfti þó að sætta sig við tap í úrslita-
leiknum gegn Frakklandi. Eftir erfið
ár hjá Inter kom hann sér í stand fyr-
ir Heimsmeistarakeppnina í Japan
og Suður-Kóreu árið 2002 þar sem
Brasilía varð heimsmeistari í fimmta
skiptið. Ronaldo var markahæsti
leikmaður keppninnar og skoraði
meðal annars bæði mörkin í úr-
slitaleiknum gegn Þýskalandi. Eft-
ir keppnina var hann keyptur fyrir
metfé til Real Madrid og síðar á árinu
fékk hann nafnbótina besti knatt-
spyrnumaður heims í þriðja skiptið.
Það var um það leyti sem viðurnefn-
ið „Il Fenomeno“ eða „Undrið“ fór
að festast við kappann.
Um leið og Ronaldo skrifaði und-
ir við Real Madrid voru öll met slegin
í treyjusölu. Það var einfaldlega sleg-
ist um Ronaldo-treyjurnar. Hann gat
ekki spilað sinn fyrsta leik fyrr en í
október en í öllum leikjum fram að
því hrópuðu stuðningsmenn Real
nafn hans. Hann olli engum von-
brigðum og skoraði tvö mörk í fyrsta
leik sínum. Stuðningsmenn Real
vissu að þarna væri kominn sérstak-
ur leikmaður og stóðu upp og klöpp-
uðu fyrir honum. Real varð meistari
á fyrsta ári með Ronaldo en árið eft-
ir var liðið á góðri leið með að vinna
þrennuna. Ronaldo hafði skorað
þrennu gegn Manchester United í
Evrópukeppninni og allt lék í lyndi
þar til hann meiddist enn og aftur
undir lok tímabilsins 2004. Um leið
og Ronaldo var frá hrundi leikur
Real. Liðið var slegið út úr Meistara-
deildinni, tapaði úrslitaleik spænska
bikarsins og missti Spánartitilinn
úr höndum sér til Valencia. Eins og
alltaf skilaði Ronaldo sínum mörk-
um. Hann skoraði 104 sinnum í 177
leikjum og vann nokkra bikara. Eftir
komu Ruuds van Nistelrooy fór Ron-
aldo að sitja meira og meira á tré-
verkinu vegna meiðsla og líkamlegs
forms. Á endanum var hann seldur
til AC Milan.
Síðustu árin
Hjá AC Milan var hann aldrei í formi
en skoraði þó í öðrum hverjum leik.
Hann meiddist enn og aftur og gafst
upp eftir eitt ár og ákvað að snúa aft-
ur til heimalandsins, þó ekki nema
32 ára. Meiðslin tóku sinn toll og
fóru að birtast af Ronaldo mynd-
ir þar sem hann var hreinlega orð-
inn feitur. Hann komst líka í kast við
lögin þegar þrír kynskiptingar ásök-
uðu hann um ofbeldi gegn sér eftir
að hann fór með þá upp á herbergi.
Hélt Ronaldo að þarna væri um kon-
ur að ræða en annað kom á daginn
þegar þeir ætluðu að fara að gamna
sér.
Ronaldo kom sér í stand og allt
ætlaði um koll að keyra þegar hann
spilaði fyrsta leikinn fyrir Corinth-
ians. Hann var tekinn í viðtal úti á
miðjum velli rétt áður en leikurinn
hófst og þegar hann skoraði fyrsta
markið þurfti að gera fimm mínútna
hlé á leiknum svo hægt væri að taka
við hann fleiri viðtöl. Með Corinth-
ians varð Ronaldo bikarmeistari og
héraðsmeistari. Hann gafst svo upp
vegna meiðsla og ofþreytu á Valent-
ínusardaginn 14. febrúar og tilkynnti
að hann væri hættur. Kannski við
hæfi þar sem ástarsamband knatt-
spyrnuheimsins og Ronaldos mun
lifa að eilífu. Hættur er einn sá besti
sem spilað hefur leikinn.
„Meiðsli settu stórt
strik í reikninginn
hjá Ronaldo þegar hann
dvaldi hjá Inter en hann
spilaði aðeins 99 leiki.
Búið spil Ronaldo tilkynnti
öllum heiminum að hann
væri hættur 14. febrúar.
Stærsta stundin Ronaldo varð heims-
meistari með Brasilíu 2002 og er markahæsti
leikmaður í sögu HM.
Mikið meiddur Ef og hefði? Hvað hefði
gerst ef Ronaldo hefði alltaf verið heill?
Byrjunin á meginlandinu Ronaldo með hinum goðsagnakennda Luc Nilis þegar hann
spilaði með PSV í Hollandi.