Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Page 16
16 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
U
pplýsingar úr leyniskjölum
Wikileaks benda til þess að
greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra eigi í nánu samstarfi við
hulið leyniþjónustuapparat
á vegum bandarískra stjórnvalda. Í
greinargerð sem sendiherra Banda-
ríkjanna, Carol van Voorst, vann um
öryggismál á Íslandi þann 26. febrúar
2009, kemur fram að greiningardeildin
eigi í nánu samstarfi við aðila á veg-
um GRPO eða Global Re search Plann-
ing Office, sem hugsanlega mætti kalla
„Skrifstofa hnattrænna rannsókna og
áætlana“ á íslensku. Í skriflegu svari
ríkislögreglustjóra við fyrirspurn DV,
þar sem spurt var út í samstarf GRPO
og greiningardeildar, var vísað á sendi-
ráð Bandaríkjanna: „Þú verður að leita
til bandaríska sendiráðsins um þetta
efni.“
Engar upplýsingar um þetta
„hulduapparat“ er að finna á veraldar-
vefnum og þá kannast sendiráðið sjálft
ekki við að það sé til: „Því miður höf-
um við engar upplýsingar um tilvist
bandarískrar einingar sem kallast
GRPO. Sorrí.“ GRPO kemur hins vegar
fyrir í 220 sendiráðsskjölum Wikileaks,
og er iðulega vísað til skammstöf-
unarinnar „GRPO“ frekar en nafns
apparatsins sjálfs, sem einungis er
nefnt á nafn í einu skjali frá árinu 2007.
Af lestri fyrrgreindra skjala má ráða að
aðilar á vegum GRPO sjái um gagna-
og upplýsingaöflun fyrir bandarísk
sendiráð víðs vegar um heiminn, þar
á meðal í Búlgaríu, Ekvador, Sómalíu,
Kasakstan og Sádi-Arabíu svo einhver
lönd séu nefnd. Fyrrverandi embættis-
maður á vegum heimavarnaráðuneyt-
is Bandaríkjanna leiðir að því líkur, í
skriflegu svari sem hann sendi DV, að
GRPO standi fyrir aðila á vegum leyni-
þjónustustofnana Bandaríkjanna.
Þingnefnd krefst svara
Spænska dagblaðið El Mundo greindi
frá því í lok síðasta mánaðar að Ísland
væri á lista yfir þær þjóðir sem hefðu
unnið náið með Þjóðaröryggisstofn-
un Bandaríkjanna, NSA, að gagnaöfl-
un. Íslensk yfirvöld kannast ekki við
þetta samstarf en stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis hyggst grafast
fyrir um njósnamálið á næstunni.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata,
situr í nefndinni. Hún hefur reynt
að komast til botns í því hvað GRPO
stendur fyrir en ekki haft árangur sem
erfiði:
„Það er svolítið sérstakt með GRPO
að þrátt fyrir ítarlega leit, með fjöld-
ann allan af sérfræðingum í svona
skammstöfunum, þá er mjög erfitt að
fá einhverjar upplýsingar um hvaða
fyrirbæri þetta er. Það kemur auðvit-
að fram í skeytinu að þetta séu þeir
aðilar sem greiningardeildin á í hvað
nánustu samstarfi við og því er full-
komlega eðlilegt að þeir greini frá því
hverjir þeir eru. Því eitt er alþjóðleg
samvinna, og annað hvers eðlis hún er,
og það er það sem ég held við hljótum
bara að krefjast þess að fá svör við.“
Persónuupplýsingar til CIA
Njósnahneykslið svokallaða hefur síð-
ustu mánuði skekið heimsbyggðina.
Edward Snowden, fyrrverandi starfs-
maður leyniþjónustu Bandaríkjanna,
CIA, og verktaki NSA, ljóstraði fyrr á
árinu upp um eftirlit NSA með tölvu-
notkun almennings. Um er að ræða
þúsundir skjala sem birt voru á upp-
ljóstrarasíðunni Wikileaks. Í þeim
kemur fram að NSA hafi stundað
njósnir í fjölmörgum ríkjum heims,
til að mynda í Noregi, Frakklandi og
Þýskalandi, en þar fóru njósnirnar
meðal annars fram í samstarfi við
þýsku leyniþjónustuna. Þá hafi NSA
njósnað um þjóðarleiðtoga ýmissa
vinveittra ríkja, þeirra á meðal Ang-
elu Merkel, Þýskalandskanslara, en
þýski fjölmiðillinn Der Spiegel greindi
frá því að sími hennar hefði verið hler-
aður frá árinu 2002. Þýskir fjölmiðlar
hafa einnig greint frá því að bandarísk
einkafyrirtæki hafi leikið stórt hlut-
verk í njósnum Bandaríkjamanna á er-
lendri grundu.
Þá hefur komið fram að Ísland er
á lista yfir þær þjóðir sem hafa unnið
náið með NSA að gagnaöflun. Í skrif-
legu svari greiningardeildarinnar við
fyrirspurn DV segir að greiningar-
deildin eigi „ekki í sérstöku samstarfi
við NSA“ og hafi ekki átt í slíku sam-
starfi. Í skýrslu greiningardeildarinnar
sem unnin var að beiðni Ögmundar
Jónassonar, fyrrverandi innanríkis-
ráðherra, kemur fram að greiningar-
deildin eigi meðal annars í samstarfi
við alríkislögreglu Bandaríkjanna,
FBI, sem og CIA. Þá kemur fram að
samstarfið felist í „miðlun trúnaðar-
upplýsinga.“ Greiningardeildin hefur
víðtækar heimildir í lögum til þess að
safna saman persónuupplýsingum og
deila þeim með erlendum leyniþjón-
ustum.
„Gagnnjósnir“ greiningardeildar
Greinargerð van Voorst um öryggis-
Ríkislögreglustjóri í samstarfi
við dularfullt hulduapparat
Úttekt
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Sameiginleg Wikileaks-rannsókn
FBI og greiningardeildin unnu sameiginlega að rannsókn á Wikileaks.
E
ins og fram hefur komið á
íslenska lögreglan meðal
annars í samstarfi við banda-
rísku alríkislögregluna, FBI.
Fulltrúar FBI komu hingað til
lands árið 2011 ásamt tveimur sak-
sóknurum í tengslum við sameigin-
lega rannsókn íslensku lögreglunn-
ar og FBI vegna „yfir vofandi
tölvuárásar“ á gagnagrunna ís-
lensku ríkisstjórnarinnar. Ögmund-
ur Jónasson, þáverandi innanríkis-
ráðherra, sagði síðar í samtali við
New York Times, að þegar „átta
eða níu“ FBI-fulltrúar hafi komið
til landsins hafi hann talið að þeir
væru ekki að rannsaka yfirvofandi
árás heldur að safna efni um
Wikileaks sem eigi marga sam-
starfsmenn á Íslandi. Ögmundur
bað fulltrúana um að fara þar sem
þeir hefðu komið hingað til lands á
röngum forsendum.
Málið vakti mikla athygli og
ríkissaksóknari og ríkislögreglu-
stjóri gerðu sérstaka samantekt til
þess að útskýra sína hlið: „Vegna
fjölmiðlaumfjöllunar undanfarið
um komu starfsmanna banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI, til
Íslands í ágúst 2011 skal upplýst
að koma þeirra grundvallaðist á
fyrirliggjandi réttarbeiðni og var
liður í rannsókn þeirra og rann-
sókn íslensku lögreglunnar vegna
mögulegrar tölvuárásar á tölvu-
kerfi Stjórnarráðsins.“ Í New York
Times var fullyrt að aðgerðin á Ís-
landi hefði verið hluti af víðtækri
rannsókn á Wikileaks og stofn-
anda þess Julian Assange vegna
birtingar þeirra á bandarískum
hernaðar skjölum og gögnum ut-
anríkisráðuneytisins árið 2010.
Þá hefur ekkert komið fram sem
bendir til þess að téð tölvuárás
hafi verið yfir vofandi. n
Julian Assange New York Times fullyrti
að aðgerðin væri hluti af víðtækri rann-
sókn á Wikileaks.
mál á Íslandi er flokkuð sem
„SECRET//NOFORN“ en það þýðir
að hún sé leynileg og að ekki megi
deila upplýsingunum þaðan með er-
lendum ríkisborgurum. Sérstaklega er
fjallað um íslensku lögregluna og tek-
ið fram að á Íslandi sé engin eiginleg
leyniþjónusta. Hins vegar sinni grein-
ingardeild ríkislögreglustjóra að hluta
til slíku hlutverki, með því að safna
saman upplýsingum um aðsteðj-
andi ógnir og greina þær (e. threat
information analysis). Á meðal þess
sem greiningardeildin er sögð fylgjast
sérstaklega með eru hvers kyns mót-
mæli, sem og „öfgahópar“. Ekki er skil-
greint frekar hvaða hópar geti talist til
slíkra öfgahópa.
Van Voorst tekur sérstaklega fram
í greinargerð sinni að engin dæmi
séu um að greiningardeild ríkislög-
reglustjóra hafi tekist á við rannsókn-
ir á sviði hryðjuverkaógnar. Hins
vegar hafi greiningardeildin sannað
hæfileika sína í aðgerðum á sviði
hvers kyns rannsókna og greininga
þegar kemur að gagnnjósnum (e.
counterintelligence), skipulögðum
glæpasamtökum (e. organized crime)
sem og á fleiri sviðum. Þá er lögreglan,
þar á meðal greiningardeildin, sögð
hafa verið „einstaklega samvinnuþýð“
þegar kemur að stuðningi og því að
láta sendiráðinu í té upplýsingar: „All-
ar tilbúnar beiðnir um stuðning voru
afgreiddar tímanlega og á fullnægj-
andi hátt. Öllum óvæntum fyrirspurn-
um um stuðning var svarað innan fá-
einna mínútna.“
Náið samstarf
Í greinargerðinni er sérstaklega til-
greint að aðilar með skammstöfunina
GRPO um allan heim
GRPO í 220 sendiráðsskjölum Wikileaks.
E
ins og fram hefur komið á
greiningardeild ríkislög-
reglustjóta í nánu samstarfi
við GRPO, eða Global Res-
earch Planning Office, sem hugs-
anlega mætti kalla „Skrifstofu
hnattrænna rannsókna og áætl-
ana“ á íslensku. Heimildarmenn
DV, þar á meðal fyrrverandi
embættismaður hjá heimavarna-
ráðuneyti Bandaríkjanna, hafa
leitt líkur að því að hér sé um
aðila á vegum leyniþjónustu-
stofnana Bandaríkjanna að ræða.
Fjallað er um þetta „huldu-
apparat“ í yfir 200 sendiráðs-
skjölum Wikileaks. Grófleg yfir-
ferð nokkurra þeirra skjala leiðir
ýmislegt áhugavert í ljós.
Í leynilegri skýrslu frá sendi-
ráði Bandaríkjanna í Abu Dhabi
í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum frá 3. september
2009 er sagt frá því að leyniþjón-
usta Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna muni eiga fund með
leyniþjónustumönnum GRPO
(GRPO intelligence officials) þar
sem þeir muni deila upplýsing-
um um fjármögnun talibana.
Í skýrslu sendiráðs Bandaríkj-
anna í Riyadh í Sádi-Arabíu frá
10. febrúar 2009 sem ber heitið
„Saudi Arabia´s Most Wanted“
er fjallað um 85 uppreisnarmenn
sem eru eftirlýstir í Sádi-Arabíu.
Þar kemur fram að upplýsingar
um þessa eftirlýstu menn hefðu
þegar verið sendar í gegnum rásir
GRPO. Í annarri skýrslu frá sendi-
ráðinu í Riyadh sem skrifuð var
þann 9. september 2009 er fjallað
um fund sem John Brennan hjá
heimavarnaráðuneyti Bandaríkj-
anna og ónefndur yfirmaður hjá
GRPO áttu með aðstoðarforsætis-
ráðherra Sádi-Arabíu, Nayif bin
Abdulaziz.
Í skýrslu sem innanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna vann þann
16. júní 2009 og send var á sendi-
ráð Bandaríkjanna í Búlgaríu,
kom fram að bandarískar leyni-
þjónustustofnanir væru að
vinna að því að safna upplýsing-
um um Búlgaríu. Í sama skjali
er minnst á GRPO og það sagt
geta aflað frekari upplýsinga um
NIPF (The National Intelligence
Priorities Framework). Á vefsíðu
FBI kemur fram að NIPF standi
fyrir forgangsröðun á aðgerðum,
skipulagningu og utanumhald
um greiningar og söfnun banda-
rískra leyniþjónustustofnana. Í
fjölmörgum sendiráðsskjölum
Wikileaks er GRPO sagt geta veitt
frekari upplýsingar um NIPF. n
Vill svör Birgitta Jónsdóttir vill fá að vita hvaða aðilar það séu sem standi á bak við GRPO
og í hverju samstarf þeirra og greiningardeildarinnar felst. MyNd SIGtryGGur ArI„ Vegna þess hve
þessi tengsl eru
einstaklega viðkvæm, er
einungis hægt að ræða
um þau í leynilegum skjöl-
um undir skammstöfun,
jafnvel dulkóðun.
n Virðist vera á vegum njósnastofnana n Kannast ekki við aðila sem eru sagðir í samstarfi við greiningardeildina í leyniskjölum Wikileaks