Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Blaðsíða 22
22 Fréttir 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Sendur heim með skipi
n Franskur ríkisborgari þykir of þungur fyrir flugvél
T
uttugu og tveggja ára Frakki
verður sendur heim frá
Bandaríkjunum með skipi.
Ástæðan er sú að hann er of
þungur til að stíga um borð í flugvél.
Maðurinn sem um ræðir heitir Kevin
Chenais, en hann fór til Bandaríkj
anna ásamt fjölskyldu sinni í fyrra til
að gangast undir meðferð vegna of
þyngdar sinnar. Meðferðin bar ekki
tilætlaðan árangur og vegur Chenais
í dag 230 kíló.
Upphaflega stóð til að hann færi
aftur til Frakklands í október síðast
liðnum og átti hann pantað flug með
British Arways. Flugfélagið neitaði
að leyfa honum að stíga um borð og
báru forsvarsmenn þess því við að
hann væri of þungur. Ekki tókst að
finna lausn á vandamálinu og því
er það eina í stöðunni fyrir Chenais,
sem fer allra sinna ferða í rafmagns
hjólastól, að fara aftur til Frakklands
með skipi.
„Það voru aðallega foreldrar mín
ir sem voru reiðir yfir þessari niður
stöðu,“ sagði Chenais við fréttamenn
í New York á dögunum. Í frétt AFP
kemur fram að Air France og Swissa
ir hafi verið tilbúin að leyfa Chenais
að fljúga en þá þegar hefði fjölskyld
an verið búin að kaupa ferð með
skipi frá New York til Frakklands og
ekki haft fjármagn til að breyta áætl
unum sínum.
Gagnrýnir faðir Chenais, Rene,
það að British Airways hafi ekki
sýnt aðstæðum sonar hans skilning
og ekki einu sinni endurgreitt flug
miðana sem fjölskyldan hafði keypt.
Segist vera að íhuga málsókn gegn
British Airways vegna málsins.n
Of þungur Kevin
Chenais segir að foreldrar
hans hafi aðallega verið
ósáttir við ákvörðunina.
Þénuðu
milljónir
Þrír Spánverjar eiga yfir höfði
sér allt að átta ára fangelsi fyrir
brot gegn höfundarréttarlögum.
Mennirnir ráku vefsíðu, You
kioske, sem gaf fólki kost á að ná í
bækur, tímarit og dagblöð á ólög
legan hátt. Mennirnir eru tald
ir hafa þénað allt að 200 þúsund
evrum, rúmar 30 milljónir króna,
í auglýsingatekjur af vefsíðunni.
Löggjöf vegna höfundarréttar
brota á netinu var hert til muna
í september síðastliðnum til að
stemma stigu við ólöglegu niður
hali á netinu.
Svíar loka
fangelsum
Yfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að
loka fjórum fangelsum í landinu
og einu gæsluvarðhaldsfangelsi.
Ástæðan er einföld: það eru ekki
nógu margir fangar. Breska blaðið
Guardian greinir frá því að föng
um hafi fækkað um eitt prósent á
ári hverju frá árinu 2004. Búist er
við því að þessi þróun haldi áfram
á næstu árum og því var gripið
til þessara aðgerða. Nils Öberg,
fangelsismálastjóri Svíþjóðar, seg
ist ekki vita með vissu hvað skýri
þessa fækkun fanga á undanförn
um árum.
Lausir úr haldi
sjóræningja
Tveimur bandarískum sjóliðum
sem mannræningjar rændu í
október síðastliðnum hefur verið
sleppt úr haldi. Mennirnir voru
starfsmenn bandaríska olíuflutn
ingaskipsins CRetriever þegar
þeir voru hnepptir í hald undan
ströndum Nígeríu. Ekki liggur fyrir
hvort lausnargjald hafi verið greitt
til að fá mennina lausa. Sjórán á
þessum slóðum hafa færst í vöxt á
þessu ári og hafa 132 sjóliðar verið
teknir í gíslingu í 40 ránum. Oftar
en ekki eru olíuflutningaskip skot
spónn sjóræningja enda er hægt
að hafa talsvert upp úr krafsinu í
slíkum ránum.
Með kjarnorku-
sprengjur á lager
n Sádi-Arabía á kröfu á fimm til sex kjarnorkusprengjum frá Pakistan
S
ádiArabía hefur styrkt
kjarnorkuvopnaáætlun
Pakistan til fjölda ára og
telja valdamenn þar að þeir
séu nú þegar búnir að borga
fyrir sín eigin kjarnorkuvopn. Þessu
halda heimildarmenn BBC fram.
Samkvæmt þeim myndi ekki líða
mánuður frá því að Íran framleiddi
sína fyrstu kjarnorkusprengju þang
að til SádiArabía hefði sína eigin
sprengju. Raunar bíða sprengjurnar
í Pakistan tilbúnar til afhendingar
og er það ekki sérstaklega vel var
ið leyndarmál. Abdullah, kóngur
SádiArabíu, hefur sjálfur sagt að
ef Íran færi yfir strikið og kæmi sér
upp kjarnorkuvopnum myndu þeir
gera slíkt hið sama.
Með kjarnorkuskotpalla
Kjarnorkuvopnaáætlun SádiAr
abíu á sér áratugalanga sögu en
segja má að hún hafi byrjað seint á
níunda áratugnum er þeir keyptu
umtalsverðan fjölda CSS2 flug
skeyta af Kínverjum. Slík flugskeyti
geta rúmað kjarnorkusprengjur og
eru almennt ekki talin gagnleg sem
hefðbundin flugskeyti, því má segja
víst að ráðamenn í SádiArabíu líti
á þau sem kjarnorkuflugskeyti. Síð
astliðið sumar fjallaði tímaritið
Jane‘s, sem sérhæfir sig í hernaðar
málefni, um nýuppsetta flug
skeytaskotpalla í SádiArabíu. Sam
kvæmt tímaritinu bendir allt til að
flugskeytunum sé miðað á Ísrael og
Íran, helstu fjandmenn SádiAraba.
Skotpallarnir eru augljóslega ætlað
ir fyrrnefndum CSS2 flugskeytum
og er því um að ræða kjarnorku
skotpalla þar það eina sem vantar
eru sjálfar sprengjurnar.
Eiga heimtu á hlut
kjarnorkubúrs Pakistana
Gary Samore, fyrrverandi ráðgjafi
Baracks Obama, segir í viðtali við
BBC að SádiArabar telji að á milli
þeirra og ráðamanna í Pakistan ríki
ákveðinn skilningur og að þeir eigi
ákveðna kröfu til hluta af kjarn
orkubúri Pakistana. Ástæða þess
er að þegar kjarnorkuvopnaáætlun
Pakistans hófst á áttunda áratugn
um styrktu SádiArabar hana með
umtalsverðu magni fjár; þeir voru
helstu styrktaraðilar áætlunarinnar.
Styrkur SádiAraba er talinn nema
um sextíu prósentum af kostnaði
áætlunarinnar. Talið er að í stað
inn fyrir þennan gífurlega mikla
styrk eigi SádiArabar rétt á fimm til
sex kjarnorkuoddum. Auk þess að
styrkja kjarnorkuvopnaáætlunina
hafa SádiArabar styrkt Pakistana
í þróun loftskeyta. Heimsóknir
Sultan bin Abdulaziz al Saud, þá
verandi varnarmálaráðherra
SádiArabíu, til pakistanskra kjarn
orkurannsóknastöðva árin 1999 og
2002 undirstrika hve náið samband
landanna er í þessum málum.
Vilja þrjátíu
kjarnorkuver fyrir 2030
Samstarfsmenn SádiAraba í kjarn
orkumálum einskorðast þó ekki
eingöngu við Pakistana því Kín
verjar hafa haft náið samstarf við
bæði lönd hvað þau mál varðar. Er
Pakistan var að þróa sín kjarnorku
vopn keyptu þeir hönnun Kínverja
á kjarnorkuoddum. Helsta ástæða
þess að Kínverjar voru reiðubún
ir að selja þá tækni var að með því
væri kominn ákveðinn hemill á Ind
verja. Í upphafi seinasta árs gerðu
SádiArabar svo samstarfssamning
við Kína sem er að sögn embættis
manna í SádiArabíu þess eðlis að
Kína myndi aðstoða SádiAraba við
að reisa sextán kjarnorkuver fyrir
árið 2030. Að sögn eiga kjarnorku
verin eingöngu að vera til orkufram
leiðslu en eins og kjarnorkuáætlun
Írana sýnir þá er ávallt ákveðin sam
virkni á milli kjarnorkuvera með
friðsamlegan tilgang og hins vegar
kjarnorkuvopna.
Raunar má rekja kjarnorku
vopnakapphlaup allra þeirra þjóða
sem nefndar hafa verið til sameig
inlegrar kjarnorkuvopnáætlun
ar Ísrael og Indlands; Indland og
Ísrael koma sér upp kjarnavopn
um sem gerir það að verkum að
Pakistan, Íran og SádiArabía telja
sig knúin til að komast yfir slík vopn
líka. n
Hjálmar Friðriksson
blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is
Sérstakt samband Mjög gott samband
er á milli Sádi-Arabíu og Pakistan. Hér sést
Yusuf Raza Gilani, þáverandi forsætisráð-
herra Pakistan, taka á móti utanríkisráð-
herra Sádi-Arabíu, Abdulaziz bin Abdullah
bin Abdulaziz, í Íslamabad árið 2012.
Slapp úr haldi
Fyrrverandi herforingi í Argentínu,
sem fangelsaður var fyrir glæpi
gegn mannkyninu, slapp úr fang
elsi í vikunni. Herforinginn,
sem ber hið skemmtilega nafn
Alejandro Lawless, var árið 2010
dæmdur fyrir morð, pyntingar og
mannrán á árunum 1976 til 1983.
Verið var að flytja Lawless, 66 ára,
í dómsal þegar hann læddist burt
án þess að fangaverðir tækju eftir.