Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Page 27
Neytendur 27Helgarblað 15.–17. nóvember 2013
Gæðingur besti jólabjórinn
3–4 Jóla Kaldi
Meðaleinkunn: 6,7 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, þétt
fylling, meðalbeiskja. Krydd, ávextir, humlar, malt.
Styrkleiki: 5,4% Verð: 395 krónur.
Hinrik: Skemmtilegur jólakeimur og
fangar jólin. Svolítið þunnur á litinn.
Auður: Fallegur á litinn. Góð fylling og
lyktar eins og jólin. Mandarínur eða
appelsínubörkur. Gott sætt eftirbragð.
Rakel: Útlitslega minnir hann á malt
og appelsínblönduna. Finnst bragðið
ekki gott en jólabjöllur klingja á fullu í
útlitinu og bragðinu.
Unnsteinn: Mandarínur eða appel-
sínubörkur. Mjúkur og ljós, frekar
jólalegur. Tilraun til að fanga jólin í
bjór með meiri fyllingu.
Stefán: Freyðir vel. Bragð af negul
og mandarínuberki. Meðalþurrt
bragð.
Umbúðir: Ekki nægilega skemmti-
legar umbúðir – Týpískt Kaldaútlit
– Tékkneskt jólahús.
3–4 Egils Malt Jólabjór
Meðaleinkunn: 6,7 Lýsing: Dökkbrúnn. Sætuvottur,
meðalfylling, lítil beiskja. Malt, lakkrís.
Styrkleiki: 5,6% Verð: 369 krónur.
Hinrik: Mjög sætur og angan af
malti. Léttur og góður bjór. Myndi fá
mér annan.
Auður: Mjög dökkur og bragðið kem-
ur á óvart miðað við litinn. Léttur
og mjög sætur og maltkenndur.
Eftirréttarbjór?
Rakel: Hunangsblandað malt
kemur upp í hugann. Ágætis
desertbjór. Kannski ekki góður
í fjöldadrykkju. Sérrítegund
bjórfjölskyldunnar.
Unnsteinn: Sætur og kemur
á óvart. Hunangs-/karamellu-
keimur. Ávaxtakeimur.
Mun örugglega seljast vel á
Hrafnistu.
Stefán: Rúgbrauðslykt með
sætu malti og sætu eftirbragði
en stuttu.
Umbúðir: Smart miði – Mér
finnst þetta skemmtilegt –
Aftur til fortíðar – Vísar í 100
ára afmælið og svona.
5 Jóla Gull
Meðaleinkunn: 6,5 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur,
meðalfylling, meðalbeiskja. Malt, korn, ávaxtatónar.
Styrkleiki: 5,2% Verð: 349 krónur.
Hinrik: Lítið í bragðið lagt. Lélegur lager.
Lítið jólalegt við hann.
Auður: Sætur með karamellukeim. Gott
eftirbragð.
Rakel: Mikið sætubragð og sætt eftir-
bragð. Karamellulitaður og keimur af
karamellu á bragðið. Rífur svolítið í kol-
sýruna en hann er goskenndur. Léttur
og góður. Sérstaklega með vinum.
Unnsteinn: Karamellukeimur, léttur
og sætur, mjúkur, ljós á litinn.
Stefán: Sæt lykt með kanil og
karamellu. Bragðgott og ferskt en
stutt eftirbragð.
Umbúðir: Svolítið döll – sjoppu-
legt.
6–7 Steðji
Meðaleinkunn: 5,5 Lýsing: Rafbrúnn. Meðalfylling,
sætuvottur, lítil beiskja. Malt, karamella, lakkrís.
Styrkleiki: 5,3% Verð: 379 krónur.
Hinrik: Lykt og bragð minnir á
hunang. Lifir stutt.
Auður: Fallega gylltur. Sætur en
ekki mjög jólalegur. Pínulítið flatur
og lítið sem ekkert eftirbragð.
Rakel: Sætur en pínulítið flatur.
Minnir á hunangskex. Án eftir-
bragðs. Lítil sérstaða. Fátt sem
minnir á jólin en bjór sem flestir
gætu fílað.
Unnsteinn: Sætur en stoppar
ekki lengi við. Finnst ekki mjög
afgerandi bragð af honum.
Get alveg eins fengið mér lager
bara.
Stefán: Kanil- og appelsínu-
lykt með kex og ristaðbrauð.
Gott en stutt eftirbragð.
Umbúðir: Krúttlegt –
heimagert sem er skemmti-
legt.
6–7 Víking Jólabjór
Meðaleinkunn: 5,5 Lýsing: Ljósrafgullinn. Ósætur,
létt meðalfylling, lítil beiskja. Malt, korn, baunir.
Styrkleiki: 5% Verð: 309 krónur.
Steinn: „LéttHinrik: Voðalega
öruggur og alls ekkert jólalegt við
hann. Gæti þambað hann heilt
kvöld en ekkert skyldur jólunum.
Auður: Frekar sætur og með
karamellukeim. Gott eftirbragð.
Góður bjór á barinn en ekki með
jólamatnum.
Rakel: Það eru engin jól í þessum.
Smá keimur af tískufyrirbærinu
karamellu. Fínasti venjulegur
bjór en er ábyggilega í vitlausri
árstíð.
Unnsteinn: Ljós fínn bjór.
Þetta er djammbjórinn. Ekki
mjög jólalegur en góður.
Stefán: Freyðir vel, gott
bragð. Frekar létt og ferskt en
ekki alveg jólafílingur.
Umbúðir: Þetta er mjög
flatt – Alveg eins og hinir
rauðu miðarnir – Það vantar
jólatréð.
8–9 Thule Jólabjór
Meðaleinkunn: 5,2 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, létt fyll-
ing, miðlungsbeiskja. Ristað malt, humlar, karamella.
Styrkleiki: 5,4% Verð: 379 krónur.
Hinrik: Lykt af karamellu. Fer lítið fyrir humlum og
eftirbragðið er dauft. Lifir stutt.
Auður: Ljósgylltur, léttur, sætur og karamellukenndur.
Gott bragð en það lifir allt of
stutt.
Rakel: Dökkgylltur. Sætur
karamellubjór sem er greini-
lega tískan í bjórnum í ár.
Frískandi og góður en vantar
að bragðið endist.
Unnsteinn: Karamella.
Gott boddí þó hann sé ljós.
Staldrar ekki við en góður.
Stefán: Freyðir vel. Kara-
mella og piparkökur. Smá
beiskja en ferskt. Mjög stutt
eftirbragð.
Umbúðir: Lélegur stuldur
– Tuborg eftirlíking – Ljótu
hreindýri skipt út fyrir ljóta
Grýlu – Fyrir þá sem fara
hífaðir í ríkið og ætla að
kaupa Tuborg.
8–9 Víking Jóla Bock
Meðaleinkunn: 5,2 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, þétt
meðalfylling, meðalbeiskja. Ristað malt, humlar.
Styrkleiki: 6,2% Verð: 409 krónur.
Hinrik: Lítið varið í þennan bjór,
langar ekkert í annan.
Auður: Ljósgylltur. Bragðlítill,
sætur og léttur. Frekar döll, öruggur
en vantar x-faktorinn.
Rakel: Enn og aftur vantar
jólahjól í þennan. Engin sérstaða.
Unnsteinn: Sætur og karmella.
Bara fínn og gott jafnvægi.
Stefán: Mjög létt og þægilegt.
Appelsínubragð. Mjög „safe“
bjór.
Umbúðir: Alveg eins og í
fyrra.
10–12 Giljagaur nr. 14.1
Meðaleinkunn: 5 Lýsing: Rafgullinn, skýjaður. Mjúk
fylling, sætur, beiskur, höfugur. Krydd, ávöxtur, ristað
malt, humlar. Styrkleiki: 10% Verð: 636 krónur.
Hinrik: Anganin er yndisleg og mikið
og langt eftirbragð. Myndi taka góðan
tíma í að njóta lengi.
Auður: Mjög ljós, frekar súr. Afgerandi
appelsínubragð og beiskt eftirbragð.
Rakel: Þessi er rosalega ljótur og lítur
út fyrir að vera ókláraður. Bragðið er
yfirgnæfandi og minnir á ilmvatn sem
er runnið út. Hef ekki þroska í svona
lagað.
Unnsteinn: Ósíaður. Malt og
appelsínpæling í gangi. Er þungur
til að byrja með en breytist í
léttari áferð.
Stefán: Appelsínulykt. Áfengt
með mikla beiskju. Ekki mjög
góður. Mjög biturt eftirbragð.
Umbúðir: Þetta er leiðinlegt útlit
– Skrítið að svona líka miða milli
ára, bara smá litablær – Þetta er
sama fjölskyldan.
10–12 Einstök
Meðaleinkunn: 5 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, þétt
meðal fylling, meðalbeiskja. Malt, karamella, ávaxta-
tónar, humlar. Styrkleiki: 6,7% Verð: 429 krónur.
Hinrik: Lítill og leiðinlegur bjór. Ekkert
sem situr eftir. Mjög þurr.
Auður: Fallega gylltur með ríkjandi
karamellubragði. Ekki sérstaklega
bragðmikill, ekkert sem grípur sem
sérstaklega spennandi.
Rakel: Ágætis miðlungsbjór með
hinni sívinsælu karamellu. Rammt
og þurrt bragð. Ekkert spes. Ekki
svalandi
Unnsteinn: Karmella. Sætur. Meiri
jól en ekki grípandi kryddaður.
Stefán: Lítil lykt. Greni og
appelsínubörkur. Mjög þurrt,
ekki svalandi.
Umbúðir: Allir að reyna að vera
lágstemmdir – mér finnst þetta
kúl – víkingurinn með rautt nef
– það vantar grípandi flösku.
10–12 Carls Jul
Meðaleinkunn: 5 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, með-
alfylling, meðalbeiskja. Malt, grösugir humlatónar.
Styrkleiki: 5,6% Verð: 315 krónur.
Hinrik: Mér líkar ekki við hann. Lítið sem tengist
jólum í þessu.
Auður: Miðlungsdökkur, beiskur, bragðmikill. Ríkj-
andi beiskt eftirbragð.
Rakel: Fallega rauðbrúnn. Svolítið þungur og
beiskur, ekki gott eftirbragð. Rammur. Einn og einn
kannski ágætur en vantar allt hátíðarskap í hann.
Unnsteinn: Afgerandi eftirbragð en ekki alveg minn
stíll.
Stefán: Þurr og beiskur.
Gott en þungt, rammt
eftirbragð með kexi.
Umbúðir: Ekki gott útlit.
13 Tuborg Christmas Brew
Meðaleinkunn: 4,5 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur, meðal-
fylling, lítil beiskja. Malt, korn, lakkrís. Styrkleiki: 5,6%
Verð: 359 krónur.
Hinrik: Lykt og bragð heillar ekki. Smá
humlar. Myndi ekki standa í biðröð eftir
þessum.
Auður: Frekar ljós, bragðlítill. Frekar
hlutlaus en ágætur. Vantar samt
hátíðarbragðið.
Rakel: Rauðgylltur. Dósabragð er
svona það sem situr eftir. Engin
sérstaða.
Unnsteinn: Ágæt sýrni. Ekki mikið
jólabragð. Flatur og stamur en
fínn bjór.
Stefán: Karamellu og appelsínu-
bragð. Létt og ferskt en vantar
herslumun.
Umbúðir: Segjum bara Tuborg.
14 Jólabjór Ölvisholt
Meðaleinkunn: 4,2 Lýsing: Rafbrúnn. Ósætur,
meðalfylling, lítil beiskja. Malt, humlar, engifer,
barkarkrydd, appelsína. Styrkleiki: 5% Verð 439
krónur.
Hinrik: Lykt með miklum humlum
og smá greni og smá hunangi. Ekki
uppáhald.
Auður: Afgerandi lykt af
honum sem mér finnst pínu
gervileg. Frekar bragðlítið og lítið
spennandi.
Rakel: Hræðileg og yfirgnæfandi
lykt. Setur mann ekki í stellingar
fyrir að vilja njóta vörunnar.
Stamur. Því miður finnst mér
þessi bara ferlega vondur á
bragðið. Vonbrigði.
Unnsteinn: Mjög afgerandi
lykt. Humlar. Eftirbragðið
stendur eftir.
Stefán: Kanil- og grenilykt.
Beiskja, greni og þurrt bragð.
Umbúðir: Fallegar umbúðir.
Laufabrauð og svona. Fal-
legt. Stílhreint og fínt.