Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2013, Síða 52
52 Fólk 15.–17. nóvember 2013 Helgarblað
Dularfull kona segist
dóttir Andys Kaufman
D
ularfull kona sem segist vera
dóttir Andys Kaufman blæs
lífi í þann orðróm að uppi
standarinn hafi mögulega
sett á svið eigið andlát.
Síðasta mánudag var haldin ár
leg verðlaunahátið í nafni Andys
Kaufman í Gotham Comedy Club.
Dularfulla konan var kynnt á svið
á hátíðinni af Michael Kaufman,
bróður Andys, sem útskýrði að hann
hefði fyrir mörgum árum síðan fund
ið áætlun Andys þar sem hann setur
á svið eigið andlát í smáatriðum og
í kjölfarið hafi dóttir hans sett sig í
samband við hann. Hvort sem þetta
er síðasti ósvífni hrekkur Andys eða
raunveruleiki, er atburðarásin hin
lygilegasta.
Sannfærður vinur
Opinber gögn gefa til kynna að
Andy hafi látist árið 1984, 35 ára, úr
lungnakrabbameini. Ef hann væri á
lífi í dag væri hann 64 ára.
„Ég varð vitni að þessu öllu
saman og get sagt án efa að þetta var
ekki hrekkur,“ segir Al Parinello, góð
vinur gamanleikarans sem hefur haft
veg og vanda að verðlaunahátíðinni
síðustu ár.
Hann segir að Michael, bróðir
Andys, hafi fylgt leiðbeiningum í
áætlun hans um að hitta hann á
veitingastað á jóladag árið 1999.
Á veitingastaðnum gekk upp að
honum maður sem hann þekkti ekki
og rétti honum vélritað bréf. Það var
þetta bréf sem Michael las upp úr fyr
ir fjöldann sem var mættur í Gotham
Comedy Club á mánudag og á að
vera frá sprelllifandi Andy.
Lesið úr bréfinu
Í bréfinu segir hann að allt hafi verið
með besta móti í lífinu en hann hafi
viljað komast frá því að vera Andy
Kaufman. Í því greinir hann einnig
að hann sé ástfanginn af konu og þau
eigi dóttur.
Michael útskýrði fyrir gestum
Gotham Comedy Club að dóttir
Andys, nú 24 ára, hefði haft samband
við hann fyrir stuttu og samþykkt
að mæta með honum á verðlauna
afhendinguna.
Og vissulega mætti dularfull ung
kona á verðlaunaafhendinga í svört
um kjól alsettum litríkum slaufum.
Enginn vissi deili á henni en Al
Parinello segir hana kalla sig McCoy,
nafni sem Andy sjálfur notaði þegar
hann skráði sig inn á sjúkrahús og
hótel og annað.
Konan dularfulla sagði við gesti
staðarins að faðir hennar væri ennþá
á lífi og að fráfall föður hans, Stanleys
Kaufman, í júlímánuði, hafi gert það
að verkum að hann vilji tengjast fjöl
skyldu sinni.
Gat hægt á andardrættinum
Al Parinello, sem hitti Kaufman í
menntaskóla í Boston, segist sann
færður, jafnvel þótt hann hafi sjálfur
mætt í jarðarförina og séð lík vinar
síns með eigin augum.
Kistan var lokuð, rifjar hann
upp. Aðeins ég og fjölskylda hans
sáum líkið.
„Hvað heldur hann þá að hafi
gerst. Eitt af því sem Andy lærði var
að hægja á andardrættinum þar
til hver sem er trúir því að þú sért
dauður, þótt þú sért sprelllifandi.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
orðrómur fer á kreik um að Andy
sé á lífi en í sumar birti aðdáandi
hans myndband af manni í Nýju
Mexíkó sem hann trúði að væri Andy
Kaufman. Myndbandið var í lélegum
gæðum og þótti ekki trúverðugt. n
n Segir föður sinn á lífi n Síðasti hrekkur Andys? n Agndofa áhorfendur
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Meint dóttir Andy með Michael Hér
standa þau á sviði saman, meint dóttir
Andy Kaufman og Michael Kaufman.
Hvort sem þetta var hrekkur eða ekki,
fylgdust áhorfendur með agndofa.
Sagður búa í Nýju Mexíkó Í sumar birti aðdáandi myndband sem hann taldi af Andy
Kaufman sprelllifandi í Nýju-Mexíkó. Hér er stilla úr myndbandinu og gömul mynd af Andy.
„Ég var vitni að
þessu öllu saman
og get sagt án efa að
þetta var ekki hrekkur.
Lúxusheimili
stjarnanna
1 Oprah Winfrey Oprah Win-frey er risi í amerísku sjónvarpi og
auður hennar er gríðarlegur. Hún keypti
sér risahúseign í Kaliforníu á yfir 50 millj-
ónir dollara. Síðan hún keypti húsið hefur
hún gert á því töluverðar endurbætur.
Í húsinu er til að mynda kvikmyndahús
og fyrir utan það er stöðuvatn með fram-
andi fiskum.
2 Brad og Angelina
Ofurparið Brad Pitt
og Angelina Jolie á
risastóra fasteign
á Long Island í New
York sem er metin á 40
milljónir dollara. Í húsinu eru 18 glæsileg
baðherbergi svo börnin þurfa aldrei að
bíða eftir að komast á klóið. Á lóðinni er
sundlaug og tennisvellir.
3 David og Victoria
Beckham Endur-
gerður lítill kastali
sem kostaði hjónin 10
milljónir dollara. Stað-
settur í fallegum skrautgarði. Þetta er
að sjálfsögðu ekki eina heimili hjónanna
sem eiga fasteignir víða í Bandaríkjun-
um og Evrópu. Stærst er heimili þeirra í
Beverly Hills.
4 JLo Hin dáða söngkona
Hollywood Jennifer
Lopez á fallega litla
höll í úthverfi Los
Angeles og innviðirnir
minna fremur á safn
en heimili. Fágað og í hvítum tónum. Í
húsinu eru 14 baðherbergi og sjö rúmgóð
svefnherbergi.
5 Sandra Bullock
Sandra Bullock
er afar vinsæl
leikkona í Banda-
ríkjunum. Heimili
hennar í New Or-
leans er afskaplega
skemmtilegt, það lætur fremur lítið
yfir sér en innréttingarnar eru glæstar.
Húsið er allt í gömlum stíl og endurupp-
gert. Á lóðareigninni er stór sundlaug
og skemmtilegt grillsvæði til þess að
skemmta gestum.
topp 5
David Beckham
með nýja fatalínu
n Heldur áfram farsælu samstarfi við H&M
N
ýjasta fatalína
knattspyrnu kappans fyrr
verandi, Davids Beck
ham, fyrir verslunar
keðjuna H&M er komin
í búðir. Í auglýsingaherferðinni
situr Beckham fyrir í nærföt
um einum klæða og fær húðflúr
kappans því að njóta sín. H&M er
ein stærsta verslunarkeðja heims,
en tveir Svíar, Hennes og Mauritz,
stofnuðu hana árið 1947.
„Ég er mjög spenntur,“ segir
Beckham í myndskeiði sem birt
var á vef H&M. „Það liggur mik
il vinna að baki og hugsað er út í
hvert einasta smáatriði.“
Beckham segir í myndskeiðinu
sem er hluti af auglýsinga
herferðinni að hann fá innblástur
þegar hann horfir á mannhafið á
götum borga þar sem hver og ein
manneskja hefur skapað sinn eig
in stíl.
„Ég elska gamaldags gallabux
ur, vel sniðnar gallabuxur og stutt
ermaboli. Ég á mjög marga stutt
ermaboli. Mér finnst þægilegt að
vera í gallabuxum,“ segir Beckham
enn fremur.
David Beckham hefur áður sent
frá sér fatalínu með sænsku versl
uninni sem lukkaðist vel. Í henni
var megináherslan lögð á nærföt,
en í nýrri línu kappans verða ýms
ar aðrar flíkur í boði. n
Hylur ekkert
David Beckham sér
enga ástæðu til að
hylja líkama sinn.