Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Page 26
24*
Búnaðarskýrslur 1958—60
2. yfirlit. Tala nautgripa í árslok 1951, 1954, og 1956—60 eftir landshlutura.
Number of catlle at the end of 1951, 1954 and 1956—60, by regions.
ocf vO VO J, 1 irs
1951 1954 1956 1957 1958 1959 1960 C « &,! «t ta.EcsS
Suðvesturland South-West 10 762 10 328 10 183 10 634 10 557 10 496 10 981 2,0
Vestfirðir Western Peninsula ... 2 549 2 693 2 618 2 626 2 449 2 549 2 713 6,4
Norðurland North 13 173 14 141 14 874 15 421 15 203 16 443 18 018 36,8
Austurland East 3 526 3 839 3 611 3 636 3 458 3 761 4 083 15,8
Suðurland South 13 832 16 327 16 222 16 719 16 355 16 616 17 582 27,1
Allt landið Iceland 43 842 47 328 47 508 49 036 48 022 49 865 53 377 21,7
Þessar breytingar á tölu nautgripa hafa verið talsvert mismunandi
miklar eftir landshlutum og sýslum, svo sem yfirlit 2—4 sýna. Mest
hefur fjölgun nautgripa orðið á Norðurlandi síðustu þrjú árin, og svo
hefur einnig verið áratuginn 1961—60 allan i heild. Næstmest hefur
fjölgun nautgripa orðið á Suðurlandi, en í öllum landshlutum hefur
þeim fjölgað nokkuð.
Tala og skipting sauðfjár i árslok 1958—60 var sem hér segir:
1958 1959 1960 Fjfilgun 1960, %
Ær ..................................... 659 382 662 655 683 989 3,2
Hrútar .................................. 13 830 13 819 14 194 2,7
Sauðir.................................... 1 676 1 490 1 328 -r 10,9
Gemlingar ............................... 99 683 116 969 134 330 14,8
Sauðfé alls 774 571 794 933 833 841 4,9
Miklar breytingar á tölu sauðfjárins hafa orðið þessi ár og enn meiri,
ef litið er yfir allra síðasta áratug. Þessar breytingar hafa orðið mis-
jafnlega miklar eftir landshlutum og sýslum. 5. yfirlit sýnir breyting-
arnar eftir landshlutum 1951 til 1960. Við athugun á tölurn þessa j'fir-
lits verður að hafa í huga, að haustið 1951 fór fram niðurskurður á
öllu sauðfé milli Ytri-Rangár og Hvalfjarðar. Var því á Suðurlandi
sauðlaust í 4 hreppum Rangárvallasýslu og allri Árnessýslu og á Suð-
vesturlandi i Gullbringusýslu og Ivjósarsýslu (nema 71 kind í Engey).
Einnig var enn fátt sauðfé í Borgarfjarðarsýslu, þar sem ekki var lokið
innflutningi lamba þar eftir niðurskurðinn 1950. Hins vegar hafði
fjárskiptum lokið á Norðurlandi 1950, og á Vestfjörðum höfðu fjár-
skipti aðeins verið á takmörkuðu svæði. Þetta á sinn mikla þátt í því,
að yfirlitið sýnir hlutfallslega mesta fjárfjölgun frá 1951 til 1960 á
Suðurlandi og Suðvesturlandi.
í yfirlitum 3 og 4 eru sýndar breytingar sauðfjártölu í einstökum
sýslum síðustu þrjú ár. Yfirleitt hafa þær breytingar verið til fjölgunar