Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Síða 46
44*
Búnaðarskýrslur 1958—60
gærum, hefur mikið fallizt til af haustull, sem að mestu leyti hefur
verið flutt út. Mestur útflutningur haustullar á einu ári var 1935, 138
tonn, en nokkur ár önnur hafa verið flutt út yfir 100 tonn af haustull.
Jafnframt rotuninni hefur talsvert verið sútað af gærum. Framan af
árum voru sútaðar gærur aðallega seldar úr landi, en á síðari árum
hafa þær mikið verið notaðar innan lands sem fóður í „kulda-úlpur“.
Til er talning á gærum frá 1934 til 1960, og hefur hún aðallega
verið notuð til þess að gera sér grein fyrir heimaslátrun sauðfjár. Taln-
ing þessi árin 1934—46 var gerð í sambandi við undirbúning land-
búnaðarsýningarinnar 1947. Er augljóst, að tölurnar fyrir fyrstu árin
eru of lágar, því að þær sýna ekki meiri heimaslátrun en augljóst er
af öðrum heimildum, að verið hefur á fullorðnu fé einu. Þetta verður
nú ekki leiðrétt. Síðan 1947 hefur Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Landsbankinn, Hagstofan og Framkvæmdabankinn skipzt um að sjá um
þessa talningu. Til hafa viljað mistök við þá talningu, en þau hefur
þá síðar verið unnt að leiðrétta, svo að ekki mun verulega hafa skeikað
við endanlega talningu. Hér fer á eftir talning gæranna eins og hún
getur nú réttust orðið:
Gœrutala Af sláturfé í slátur- Af sláturfé utan slátur.
alls húsum húsa
1934 436 193 395 431 40 762
1935 429 222 373 925 55 297
1936 456 331 385 139 71 192
1937 551 228 454 071 97 157
1938 474 172 374 024 100 148
1939 477 066 355 457 121 609
1940 552 387 392 933 159 454
1941 543 698 393 663 150 035
1942 594 963 429 402 165 561
1943 620 293 483 743 136 550
1944 478 111 374 155 103 956
1945 490 360 385 410 104 950
1946 473 891 353 219 120 672
1947 509 303 372 558 136 745
1948 411 646 300 669 110 977
1949 427 497 321 211 106 286
1950 362 303 264 021 98 277
1951 388 106 281 301 106 805
1952 335 570 246 700 88 870
1953 296 164 231 548 64 616
1954 403 239 321 086 82 153
1955 581 609 482 472 99 137
1956 603 012 499 082 103 930
1957 624 433 538 143 86 290
1958 759 754 683 852 75 902
1959 755 822 691 280 64 542
1960 770 744 713 909 56 835
Fram til 1951 var nokkuð af gærunum af fé, er drepizt hafði úr
mæðiveiki og garnaveiki, en af því fé var gæran ein hirt.
Mör þótti á 17. og 18. öld og framan af 19. öld góð útflutningsvara.
Jafnvel á fyrsta áratug 20. aldar þótti mörinn nokkurs verður. En eftir