Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1962, Síða 55
Búnaðarskýrslur 1958—60
53*
Samkvæmt skýrslum þessum ætti dagkaupið við landbúnaðarstörf
að hafa verið að meðaltali, talið í kr.:
Börn og foreldrar 1951 1954 1957 1960
Karlar á vinnualdri 27,58 39,03 54,20 60,47
Konur á vinnualdri 19,61 26,17 37,10 41,93
Unglingar og gamalmenni 14,80 21,34 32,24 35,77
Aðrir Karlar á vinnualdri 40,70 58,22 82,02 107,68
Konur á vinnualdri 26 49 33,37 45,31 54,69
Unglingar og gamalmenni 18,38 22,98 32,24 35,11
Tölur þessar eru varhugaverðar að ýmsu leyti. Margt það, sem
talið er í kaupgjaldi, er reiknað langt fyrir neðan raunverulegt verð-
mæti. Fæði karla er þannig enn, 1960, reiknað aðeins 21 kr. á dag,
fæði kvenna og unglinga kr. 17,50. Er þó með fæðinu bæði þjónusta að
nokkru leyti og húsnæði. Einnig er algengt að greiða nokkuð af kaupi
í kindafóðrum, sem reiknað eru aðeins á 200 kr„ sem víða er ekki meira
en helmingur verðmætis afurða kindarinnar. Einnig er oft á einn eða
annan veg komizt hjá því að telja kindafóðrin fram (sama getur gilt
um fóður á hrossum), þar sem þau eru hluti kaupgreiðslunnar. Enn
gætir þess nokkuð víða, að þeir, sem vinna að búi, hafa jafnframt að-
stöðu til tekjuöflunar utan þess. Njóta þeir þá hlunninda frá búinu,
svo sem húsnæðis, þjónustu og fæðis, án þess að reiknað sé, og er þá
vinna þeirra við búið heldur ekki talin. Greiðsla fyrir vinnu barna er
oft innt af hendi sem framlag foreldris eða annars aðstandanda vegna
námskostnaðar barns eða unglings í skóla og þá ekki talið sem greiðsla
fyrir vinnu. — En þó að allt þetta sé tekið með i reikninginn, er kaup-
gjald við landbúnaðarstörf raunverulega óeðlilega lágt.
Á 9 árum 1951—60 hefur, samkvæmt búnaðarskýrslum, keypt land-
búnaðarvinna minnkað um nál. 33%, úr 2 155 þús. vinnudögum í 1 441
þús. vinnudaga. Keypt vinna karla á vinnualdri hefur minnkað úr 985
þús. vinnudögum í 568 vinnudaga eða um 42,3%, keypt vinna kvenna
á vinnualdri úr 830 þús. vinnudögum i 480 vinnudaga, eða um 42%.
En vinna barna og gamalmenna hefur aukizt úr 341 þús. vinnudögum
í 393 þús. vinnudaga eða um 15%.
14. Heildartekjur og -gjöld framleiðenda 1960.
Gross income and expenditure of agricultural producers 1960.
Töflur XVI A og B (bls. 62—65) sýna heildartekjur og -gjöld fram-
leiðenda Iandbúnaðarafurða og fjárfestingu í landbúnaði. Tafla A heild-
artekjur og gjöld allra framleiðenda landbúnaðarafurða, en tafla B
heildarlekjur og -gjöld bænda sérstaklega.
Tveir dálkar taflanna, 1. telcjudálkur og 1. gjaldadálkur, eru með