Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Page 12
föstudagur 17. október 200812 Helgarblað Hælisleitandi af lettneskum upp- runa svipti sig lífi á Hostel FIT í síð- ustu viku en hann hafði beðið eftir svari frá íslenskum yfirvöldum um hvort hann fengi hæli hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suðurnesjum eru sjálfsvíg hælisleitanda mjög sjaldgæf. Maður- inn, sem hét Raymond að fornafni og var á fimmtugsaldri, bjó tímabundið á gistiheimilinu þegar hann svipti sig lífi. Aðrir hælisleitendur eru ugg- andi vegna fráfallsins en pari, sem blaðamaður ræddi við, var verulega brugðið. Óljóst er hvað verður um lík Ray- monds en lögreglan leggur kapp á að finna aðstandendur hans í Lettlandi. Þegar spurt var hvernig yrði brugðist við ef þeir fyndust ekki, var fátt um svör. Hvað verður um líkamsleifarnar? „Það er verið að reyna ná sam- bandi við ættingja í gegnum sendi- ráðið,“ segir Gunnar Schram, rannsóknarlögreglumaður hjá lög- reglunni á Suðurnesjum, en emb- ættið kappkostar að finna ættingja Raymonds í heimalandi hans sem hann flúði. Raymond hafði dvalið á Íslandi í nokkra mánuði en hann var tímabundið búsettur á gistiheim- ili hælisleitenda í Njarðvík. Að sögn Gunnars eru sjálfsmorð hælisleit- enda mjög fátíð. Spurður hvað verði um lík Ray- monds segir Gunnar að hann von- ist til þess að ættingjar finnist. Þeir verði látnir vita og svo verður að sjá hvað tekur þar við. Þegar Gunnar var spurður hvernig brugðist yrði við ef engir ættingjar fyndust, sagði hann sýslumann betur í stakk búinn til þess að svara þeirri spurningu. Sýslumaður Reykjanesbæjar, Þórólfur Halldórsson, svaraði sömu spurningu á þá leið að það væri fremst í ferlinu að finna ættingja Ray- monds. Innri átök erfið „Maður hugsar rosalega mikið á meðan maður bíður eftir hæli,“ seg- ir Paul Ramses sem varð þekktur fyr- ir baráttu sína fyrir því að fá hæli hér á landi ásamt konu og barni. Hann segir það taka svakalega mikið á að flýja heimaslóðir sínar. Það bætir ekki úr skák þegar hælisleitandinn óttast einnig um líf sitt. Að sögn Ramses er biðstaðan, sem hælisleitendur lenda í hér á landi, hræðileg. Þeir vita ekki hvað næsti dagur ber í skauti sér og yfir vofir sífelld ógn heimalandsins. „Maður þarf aðstoð við að takast á við þau innri átök sem myndast þeg- ar maður er strandaglópur á þennan hátt,“ segir Ramses sem sjálfur var tekinn frá konu sinni, Rosemary, og barni þeirra. Þá var hann sendur til Ítalíu vegna Dublin-reglugerðar- innar. Dauði eða kvalafullur dauði „Í mínu tilfelli hugsaði ég um þá kosti sem ég hafði í stöðunni. Annars vegar var það að vera sendur heim og þá var spurningin ekki hvort ég yrði drepinn, heldur hvernig. Mað- ur gerði ráð fyrir að dauðdaginn yrði kvalafullur. Þess vegna íhugaði mað- ur sjálfur að það væri þá fyrir bestu að svipta sig lífi í stað þess að enda líf sitt á hrottalegan hátt,“ segir Ramses sem raunverulega íhugaði að svipta sig lífi þegar engin von virtist vera í hans stöðu. Hann ákvað að berjast fyrir lífi sínu sem varð til þess að mál hans var endurskoðað. Hann komst aftur í faðm fjölskyldunnar og sér nú framtíðina í fyrsta skipti. Rauði krossinn til bjargar Að sögn Ramses var það Rauði krossinn og hans aðstoð sem fleytti honum í gegnum erfiðan tíma hér á landi. Hann segir einangrunina hafa verið hrikalega. Allt tímaskyn hvarf og tilgangsleysi dagsins varð algjört. „Maður vaknaði, fékk sér að borða og fór svo aftur að sofa,“ segir Ramses um undarlegt tóm sem myndaðist í lífi hans. Hann segist hafa upplifað sig eins og hann væri einskis virði. Eins og líf hans væri ekki krónu virði. Hann þakkar Rauða krossinum fyrir að hafa sótt sig heim vikulega. Bara spurningin, hvernig hefur þú það? kom honum í gegnum vikurnar. Enginn annar spurði um líðan hans. Svo virðist sem öllum stæði á sama á meðan hann beið í óvissunni. Óbærileg óvissa Aðspurður hvort það komi hon- um á óvart að Raymond hafi svipt sig lífi, svarar hann því að það sé auð- velt að missa tengslin á þann hátt að menn bindi enda á eigið líf. Sjálfs- morð er örvæntingarfullt úrræði manns sem hefur engu að tapa. „Maður þarf að hafa mikið and- legt þrek til þess að koma sér í gegn- um þessar aðstæður,“ segir Ramses um upplifun sína sem hælisleit- andi hér á landi. Hann seg- ir að hann hafi valuR gRettIsson blaðamaður skrifar: valur@dv.is Hælisleitandi svipti sig lífi Hælisleitandi á fimmtugsaldri svipti sig lífi í síðustu viku á gistiheim- ili fyrir flóttamenn. Maðurinn, sem hét Raymond að fornafni, fannst látinn í herbergi sínu. Hann hafði beðið á Íslandi í nokkra mánuði eftir svörum frá Útlendingastofnun varðandi hæli hér á landi. Reynt er að fá upplýsingar um aðstandendur Raymonds í heimalandi hans, Lettlandi. Engin svör fást þegar spurt er hvað verði gert við líkamsleifarnar finnist enginn ættingi. Paul Ramses og Rosemary ramses þurfti að berjast hatrammlega fyrir leyfi til þess að búa á Íslandi. Hann segir biðina hafa verið helvíti og er ekki undrandi á að flóttamenn fyrirfari sér við þessar aðstæður. „Stundum varð maður hreinlega hrærður yfir því að einhverjum væri ekki sama um hvað yrði um mig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.