Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Blaðsíða 10
„Við skulum orða þetta þannig: Verk-
smiðjan sem fannst í Kópavogi var
sjoppa, þetta er stórmarkaður,“ sagði
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, spurður hvert
umfang amfetamínverksmiðjunnar
hefði verið sem fannst í Hafnarfirði í
gærmorgun.
Fjórir menn hafa verið hand-
teknir vegna málsins og hnepptir í
gæsluvarðhald en tveir þeirra eru
vel þekktir. Annar er Tindur Jóns-
son sem var dæmdur fyrir að verða
manni nánast að bana með sveðju í
Garðabæ árið 2005. Hinn er athafna-
maðurinn Jónas Ingi Ragnarsson
sem var dæmdur í líkfundarmálinu
svokallaða en þá fannst Lithái látinn
í höfninni í Neskaupstað. Í líki hans
voru fíkniefni en Jónas var dæmd-
ur fyrir að smygla 230 grömmum af
amfetamíni til landsins.
Tuttugu kíló af hassi
Það var á fimmtudagsmorgun-
inn sem lögreglan lét til skarar skríða
á iðnaðarsvæðinu við Rauðhellu í
Hafnarfirði. Þar leigðu mennirnir
húsnæði sem telur á annað hundrað
fermetra. Í húsinu fannst hátækni-
legur búnaður til þess að framleiða
mikið magn af amfetamíni. Að auki
fundust tuttugu kíló af hassi. Nokkr-
um mánuðum fyrr höfðu fram-
leiðendurnir flutt inn heilt tonn
af mjólkursykri sem er notað sem
íblöndunarefni. Talið er að þeir hafi
ætlað að framleiða met-amfetamín
sem er talsvert sterkara og hættu-
legra en amfetamínið.
Verksmiðjan er ekki sú fyrsta sinn-
ar tegundar. Fyrir nokkrum árum var
maður dæmdur fyrir framleiðslu á
amfetamíni, en eins og Stefán segir,
það var sjoppa miðað við það um-
fang sem verksmiðjan við Rauðhellu
hafði.
Amfetamínuppskriftir á netinu
Þó svo lögreglan hafi ekki viljað
gefa upp hugsanlega framleiðslu-
getu verksmiðjunnar er ljóst að hún
gat framleitt ógrynni fíkniefna sé tek-
ið mið af íblöndunarefninu sem flutt
var inn. Magnið verður ekki talið í
kílóum, heldur tonnum.
Lögreglan hafði fylgst með fjór-
menningunum í nokkra mánuði. Þá
er ljóst að Tindur Jónsson hafi ver-
ið að læra efnafræði. Þegar lögregl-
an var spurð hvernig maður lærir að
búa til amfetamín var svarið einfalt:
Það er hægt að fletta því upp á net-
inu.
Einstein-aðgerðin
„Við köllum aðgerðina Operation
Einstein,“ sagði Karl Steinar Valsson,
yfirlögregluþjónn og umsjónarmað-
ur fíkniefnadeildar lögreglunnar.
Hann segir heitið notað til þess að
auðvelda samstarf við erlendar lög-
gæslustofnanir en í þessu máli nýtur
lögreglan liðsinnis tveggja sérfræð-
inga frá Europol. Þeir eru sérfræð-
ingar í að rífa niður verksmiðjur eins
og þessa og hafa þegar rifið niður um
þrjú hundruð slíkar.
Lögreglan var með nokkurn við-
búnað vegna sprengihættu en verk-
smiðja sem þessi veldur stórhættu í
öllu umhverfi sínu.
Alls eru fjórir menn í gæsluvarð-
haldi vegna málsins en lögreglan
gefur lítið upp rannsóknina. Þrír
menn voru handteknir á heimil-
um sínum strax í gærmorgun, síðan
var sá fjórði handtekinn þegar hann
kom til landsins síðdegis í gær.
valur@dv.is
föstudagur 17. október 200810 Helgarblað
Fjórir menn voru handteknir vegna aðildar að starfsemi amfetamínverksmiðju sem fannst á iðnaðarsvæði í
Hafnarfirði í gær. Tveir þeirra eru þekktir glæpamenn, annar heitir Jónas Ingi Ragnarsson og varð frægur
þegar hann var dæmdur fyrir þátt sinn í líkfundarmálinu árið 2003. Hinn er Tindur Jónsson en hann var
dæmdur fyrir stórhættulega sveðjuárás árið 2005.
vAluR gRETTIsson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
STÓRMARKAÐUR
MEÐ AMFETAMÍN
Blaðamannafundur
Lögreglustjórinn eiríkur
stefánsson, fyrir miðju, sagði
aðra eins verksmiðju aldrei
hafa fundist hér á landi.
Amfetamínverksmiðja
Lögreglan afmarkaði verksmiðj-
una í gær á meðan sérfræðingar
fjarlægðu tæki og efni.
„Við köllum aðgerðina
Operation Einstein.“