Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Blaðsíða 56
föstudagur 17. OKtÓBEr 200856 Helgarblað DV
Tónlist
SíðaSta Sýning
Heimildarmyndin from Oakland to
Iceland verður sýnd í síðasta skiptið á
Íslandi í regnboganum í dag klukkan
17.00. Þetta er partur af airwaves-
dagskránni og eru allir með armband
velkomnir á sýninguna. Hún er gerð af
ragnhildi Magnúsdóttur og fjallar um
heimkomu íslensks-amerísks plötu-
snúðs eða dJ Platurn.uMsJÓn: KrIsta Hall krista@dv.is
Hljómsveitin Hjaltalín spilaði á
Tunglinu á miðvikudagskvöldið
og var gjörsamlega stappað inni
á staðnum þegar sveitin steig á
svið. Efitrvæntingin leyndi sér ekki
hjá tónleikagestum enda sveitin
búin að eiga vinsælasta lag lands-
ins í sumar og þori ég að fullyrða
að mikið af tónleikagestum hafði
beðið lengi inni á sveittu Tunglinu
til þess eins að heyra Þú komst við
hjartað í mér.
Tunglið er einkar óþægilegur
tónleikastaður, hvort sem þetta
hefur heitið Gaukurinn, Gaukur á
Stöng eða hvað sem er þá er í raun-
inni ótrúlegt að þetta lifi sem tón-
leikastaður. Þegar Hjaltalín hóf leik
sinn barst hljóðið illa í aftari hluta
staðarins en staðurinn skiptist eig-
inlega í tvö rými með óþægilegum
stórum súlum sem alltaf eru fyr-
ir þér. Með tímanum var þó eins
og hljóðið lagaðist og sveitin var
kraftmikil og skilaði sínu vel. Eins
og við var að búast trylltist salur-
inn úr gleði þegar sveitin spilaði
Þú komst við hjartað í mér. Ást-
in og gleðin svifu yfir salnum og
var dansað uppi á stólum og sóf-
um og um stund gleymdi ég því að
ég væri stödd á óþægilega Tungl-
inu, stemningin var það góð. Út-
lendingur sem stóð mér við hlið
gat ekki annað en spurt mig hvað í
ósköpunum sveitin væri að syngja
um því hann hafði sjaldan lent í
öðru eins. Þegar ég svaraði að lag-
ið fjallaði um ástina brosti hann
út í annað og virtist skilja fagnað-
arlæti áhorfenda. Í heildina voru
þetta heldur stuttir en góðir tón-
leikar og flott byrjun á spennandi
Airwaves-hátíð.
Krista Hall
tónleikar
Hjaltalín
á tunglinu
airwaves
Of stutt en gott
Kannski voru allir að bíða eftir
að sveitin Hjaltalín kæmi fram
á Kimi-kvöldinu á Airwaves-há-
tíðinni sem haldið var á Tungl-
inu, en tónlistarmaðurinn Benni
Hemm Hemm náði aldrei flugi á
tónleikunum.
Benni spilaði lög af nýju plötu
sinni, Murta St. Calunga, í bland
við eldri tónlist. Þegar Benni
steig á svið ásamt stórsveit sinn
var nokkuð ljóst að Tunglið er alls
ekki hæfur tónleikastaður fyrir
svona stóra sveit. Áhorfendur sáu
hann með gítarinn ásamt nokkr-
um í lúðrasveitinni. Þegar bet-
ur var að gáð sást í nokkra fiðlu-
leikara og aðra hljóðfæraleikara
falda á bak við hátalara og magn-
ara. Maður hálfvorkenndi þeim
að sjást ekki á sviðinu en aðstað-
an bauð ekki upp á neitt betra.
Hljóðið var ekki nógu gott.
Fyrst hélt ég að það væri staður-
inn, en það heyrðist mun betur í
Hjaltalín sem steig á svið á eftir
Benna. Blástursleikararnir stóðu
sig með prýði. Ég hafði virkilega
gaman af því að horfa á þá. Bene-
dikt Hermann Hermannsson fær
stig í minni bók fyrir útsetningar
á lúðrasveitinni. Hann gerir það
vel.
Hanna Eiríksdóttir
Náði aldrei flugi
tónleikar
Benni Hemm
Hemm á tunglinu
airwaves