Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Síða 56
föstudagur 17. OKtÓBEr 200856 Helgarblað DV Tónlist SíðaSta Sýning Heimildarmyndin from Oakland to Iceland verður sýnd í síðasta skiptið á Íslandi í regnboganum í dag klukkan 17.00. Þetta er partur af airwaves- dagskránni og eru allir með armband velkomnir á sýninguna. Hún er gerð af ragnhildi Magnúsdóttur og fjallar um heimkomu íslensks-amerísks plötu- snúðs eða dJ Platurn.uMsJÓn: KrIsta Hall krista@dv.is Hljómsveitin Hjaltalín spilaði á Tunglinu á miðvikudagskvöldið og var gjörsamlega stappað inni á staðnum þegar sveitin steig á svið. Efitrvæntingin leyndi sér ekki hjá tónleikagestum enda sveitin búin að eiga vinsælasta lag lands- ins í sumar og þori ég að fullyrða að mikið af tónleikagestum hafði beðið lengi inni á sveittu Tunglinu til þess eins að heyra Þú komst við hjartað í mér. Tunglið er einkar óþægilegur tónleikastaður, hvort sem þetta hefur heitið Gaukurinn, Gaukur á Stöng eða hvað sem er þá er í raun- inni ótrúlegt að þetta lifi sem tón- leikastaður. Þegar Hjaltalín hóf leik sinn barst hljóðið illa í aftari hluta staðarins en staðurinn skiptist eig- inlega í tvö rými með óþægilegum stórum súlum sem alltaf eru fyr- ir þér. Með tímanum var þó eins og hljóðið lagaðist og sveitin var kraftmikil og skilaði sínu vel. Eins og við var að búast trylltist salur- inn úr gleði þegar sveitin spilaði Þú komst við hjartað í mér. Ást- in og gleðin svifu yfir salnum og var dansað uppi á stólum og sóf- um og um stund gleymdi ég því að ég væri stödd á óþægilega Tungl- inu, stemningin var það góð. Út- lendingur sem stóð mér við hlið gat ekki annað en spurt mig hvað í ósköpunum sveitin væri að syngja um því hann hafði sjaldan lent í öðru eins. Þegar ég svaraði að lag- ið fjallaði um ástina brosti hann út í annað og virtist skilja fagnað- arlæti áhorfenda. Í heildina voru þetta heldur stuttir en góðir tón- leikar og flott byrjun á spennandi Airwaves-hátíð. Krista Hall tónleikar Hjaltalín á tunglinu airwaves Of stutt en gott Kannski voru allir að bíða eftir að sveitin Hjaltalín kæmi fram á Kimi-kvöldinu á Airwaves-há- tíðinni sem haldið var á Tungl- inu, en tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm náði aldrei flugi á tónleikunum. Benni spilaði lög af nýju plötu sinni, Murta St. Calunga, í bland við eldri tónlist. Þegar Benni steig á svið ásamt stórsveit sinn var nokkuð ljóst að Tunglið er alls ekki hæfur tónleikastaður fyrir svona stóra sveit. Áhorfendur sáu hann með gítarinn ásamt nokkr- um í lúðrasveitinni. Þegar bet- ur var að gáð sást í nokkra fiðlu- leikara og aðra hljóðfæraleikara falda á bak við hátalara og magn- ara. Maður hálfvorkenndi þeim að sjást ekki á sviðinu en aðstað- an bauð ekki upp á neitt betra. Hljóðið var ekki nógu gott. Fyrst hélt ég að það væri staður- inn, en það heyrðist mun betur í Hjaltalín sem steig á svið á eftir Benna. Blástursleikararnir stóðu sig með prýði. Ég hafði virkilega gaman af því að horfa á þá. Bene- dikt Hermann Hermannsson fær stig í minni bók fyrir útsetningar á lúðrasveitinni. Hann gerir það vel. Hanna Eiríksdóttir Náði aldrei flugi tónleikar Benni Hemm Hemm á tunglinu airwaves

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.