Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Page 13
föstudagur 17. október 2008 13Helgarblað
verið spurður hvort hann væri með
aðra áætlun um hvert hann færi ef
honum yrði vísað úr landi. Það hafi
hann ekki haft. Hefði honum verið
vísað endanlega úr landi hefði það
verið óbærilegt.
Hrærður yfir umhyggju
Ramses segir að það eina sem
hafi bjargað honum frá andlegri
glötun hér á landi hafi verið gott fólk,
annars vegar hjá Rauða krossinum,
og hins vegar þeir sem stóðu með
honum þegar hann var fluttur til Ít-
alíu á grundvelli Dublin-reglugerð-
arinnar. Rauða krossinum þakkar
hann fyrir að hafa rofið þá félags-
legu einangrun sem hann lifði í. Að-
spurður hvort hann hafi ekki fengið
neinn félagsskap frá öðrum hælis-
leitendum, segir Ramses að oft hafi
verið erfitt að tengjast
þeim
og þá aðallega vegna tungumála-
örðugleika.
„Stundum varð maður hreinlega
hrærður yfir því að einhverjum væri
ekki sama um hvað yrði um mig,“
segir Ramses þegar hann rifjar upp
tímann og þá helst með hryllingi.
Lettinn Raymond var ekki jafn-
heppinn. Svo virðist sem hann hafi
ekki þolað óvissuna sem beið hans.
Kunningi sem þekkti til hans á gisti-
heimilinu sagði blaðamanni frá því
að svo virtist sem Raymond hafi ótt-
ast um líf sitt og hafi upplifað þá ógn
mjög sterkt.
Lögreglan reynir enn að hafa
upp á ættingjum Raymonds í Lett-
landi með aðstoð þarlendra yfir-
valda.
Hælisleitandi svipti sig lífi
Gistiheimili hælisleitanda
Lettinn raymond fannst látinn í herbergi sínu
á gistiheimilinu fIt í síðustu viku. Hann hafði
svipt sig lífi. Hann hafði lifað á Íslandi sem
hælisleitandi í nokkra mánuði.
Hvað verður um líkamsleifarnar?
Lögreglan kappkostar að finna ættingja
raymonds í Lettlandi. Þegar yfirvöld voru
spurð hvað gert yrði við líkamsleifarnar
fyndust ættingjar ekki, var fátt um svör.
Aurora, skip samtakanna „Konur á
öldum“, var væntanlegt til Valencia
á Spáni á fimmtudaginn. Ætlunin er
að Aurora, sem er hollenskt, haldi til
á alþjóðlegu hafsvæði, utan lögsögu
spænskra yfirvalda, og að um borð
verði framkvæmdar fóstureyðingar.
Andstæðingar fóstureyðinga á Spáni
hafa af fremsta megni reynt að koma í
veg fyrir að skipið legðist að bryggju.
Samtökin Konur á öldum eiga
skipið og bjóða ókeypis fóstureyðingu
um borð og er það „táknræn viðleitni“
til að þrýsta á spænsku ríkisstjórnina
með það fyrir augum að hún breyti
núgildandi lögum sem lúta að fóstur-
eyðingum.
Fóstureyðingarnar verða fram-
kvæmdar utan spænsks hafsvæð-
is undir hollenskum lögum sem eru
að öllu leyti frjálslegri. Aurora hefur
komið víða við, til dæmis á Írlandi og
í Póllandi.
Engin lög brotin
Það er spænskur kvensjúkdóma-
læknir, Josep Luis Carbonell, sem
mun sjá um aðgerðirnar og sagði
hann að með komu skipsins væri
hægt að „framkvæma fóstureyðing-
ar utan ramma laga Spánar, í fyrsta
skipti í nútímasögu Spánar, en án
þess að brjóta þau.“
Rebecca Gomperts, hjá Konum á
öldum, sagði að koma Auroru væri „...
nauðsynleg leið til að svara frekju af
hálfu krafta íhaldssemi, sem er leidd
af kaþólsku kirkjunni, sem væri and-
víg valfrelsi.“
Á meðal stuðningsmanna samtak-
anna er Pilar Bardem, móðir leikar-
ans víðfræga og óskarsverðlaunahaf-
ans Javiers Bardem.
„Fjármagnað af fóstureyðinga-
iðnaðinum“
Floti minni skipa, á vegum and-
stæðinga fóstureyðinga, hugðist
koma í veg fyrir að Aurora kæm-
ist inn í höfnina í Valencia. Á meðal
þeirra sem eru á móti komu skipsins
er borgarstjóri Valencia, íhaldsmað-
urinn Rita Barbera. Einnig hafa kaþ-
ólskir læknar og samtök „hlynnt lífi“
mótmælt komu þess.
Rita Barbera sagði að uppátæki
Kvenna á öldum væri hneykslanlegt
og annar stjórnmálamaður, Javier
Perez, sagði að þetta væri tækifæri til
að sýna stuðning við líf.
Samtök kaþólskra lækna á Spáni
og önnur samtök reyndu að fá borg-
arráð til að banna skipinu að leggja
að. Jose Maria Simon, forseti lækna-
samtakanna, sagði: „Þessi herferð er
fjármögnuð af „fóstureyðingaiðnað-
inum“. Þau framkvæma á milli eitt
hundrað og tvö hundruð þúsund
fóstureyðingar á ári hverju.“
Fóstureyðingar af
heilsufarsástæðum
Árið 1985 var löglegt að fram-
kvæma fóstureyðingu innan tólf vikna,
ef getnaður var afleiðing nauðgunar.
Innan tuttugu og tveggja vikna má
framkvæma fóstureyðingu ef fóstrið
er verulega afmyndað. Ef heilsa móð-
ur, líkamleg eða andleg, er í hættu má
framkvæma fóstureyðingu, og engin
tímamörk þar á.
Síðastliðinn áratug hafa verið
framkvæmdar um eitt hundrað þús-
und fóstureyðingar á Spáni. Flest-
ar voru þær gerðar vegna þess að
móðirin óttaðist um geðheilsu sína.
Fjöldi spænskra kvenna hefur leitað
á einkastofur því vegna andstöðu við
fóstureyðingar er aðeins brot þeirra
framkvæmt á ríkissjúkrahúsum. And-
stæðingar halda því fram að margar
konur misnoti núgildandi lög til að fá
fóstureyðingu og standi í raun og veru
ekki frammi fyrir nokkurri áhættu
hvað varðar geðheilsu sína þó þær
eignuðust barnið.
Nokkrar einkastofur hafa verið
sakaðar um að framkvæma ólöglegar
fóstureyðingar á síðari stigum með-
göngu.
Á skjön við mörg Evrópulönd
Kvenréttindasamtök hafa lagt
hart að spænskum stjórnvöldum að
innleiða frjálslegri fóstureyðingalög,
og með því nálgast það sem tíðkast
í öðrum Evrópulöndum. Ríkisstjórn
Spánar tilkynnti í síðasta mánuði að
hún hygðist kanna leiðir til að inn-
leiða endurbætur á lögunum á næsta
ári og að ríkisstjórninni hugnaðist að
lögin drægju dám af breskum fóstur-
eyðingalögum, en samkvæmt þeim
er frjálst að fá fóstureyðingu innan
tuttugu og fjögurra vikna af með-
göngu.
Búið er að skipa ráð lögfræðinga,
lækna og annarra lögfróðra manna
og er því ætlað að koma með tillögur
um hvernig eigi að breyta lögunum.
„Þessi herferð er fjár-
mögnuð af „fóstureyð-
ingaiðnaðinum“. Þau
framkvæma á milli eitt
hundrað og tvö hundr-
uð þúsund fóstureyð-
ingar á ári hverju.
Spænsk lög um fóstureyðingar stangast á við lög flestra Evrópu-
ríkja. Til að þrýsta á stjórnvöld að breyta lögunum hyggjast sam-
tökin „Konur á öldum“ bjóða upp á ókeypis fóstureyðingar um
borð í skipi sínu, Auroru, fyrir utan spænska lögsögu. Aðgerðirn-
ar verða framkvæmdar samkvæmt hollenskum lögum.
fóstureyðingar
á Hafi úti
KolbEinn þorstEinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Aurora boðið verður upp á ókeypis
fóstureyðingar um borð í skipinu.
Valencia á spáni
borgaryfirvöld í Valencia
eru ekki par ánægð með
áform „kvenna á öldum“.