Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Side 18
föstudagur 17. október 200818 Umræða DV
Séra Gunnþór Ingason hefur undanfarið fært Svani Elíassyni, Sverri Ólafssyni og Helga Jakobssyni mat en
þeir búa í húsbílum sínum. Þremenningarnir segja ástandið sífellt fara versnandi en þrátt fyrir alkóhólisma
fá þeir ekki inni á Vogi. Ögmundur Jónasson þingmaður heimsótti félagana um daginn en leist ekki vel á að-
stöðuna, að þeirra sögn. Svanur segir félagslega kerfið hafi brugðist þeim 150 prósent.
KLÖKKNA YFIR
GJÖFUM GUNNÞÓRS
„Skátarnir hafa verið rosalega
almennilegir og þeir hafa hleypt
okkur í salernisaðstöðu þegar er
opið hjá þeim, annars höfum við
þurft að fara út í trén og runnana.“
„Við erum hérna algjörlega vegalaus-
ir og nánast útskúfaðir úr þjóðfélag-
inu. Hér er samt gott fólk sem hefur
sýnt okkur svo mikla velvild að við
verðum bara klökkir,“ segir Svan-
ur Elí Elíasson við DV. Svanur hefur
búið í húsbíl sínum á tjaldsvæði á
höfuðborgarsvæðinu frá því í sumar
en félagar hans, þeir Sverrir Ólafs-
son listamaður og Helgi Jakobsson,
búa í öðrum húsbíl við hliðina. Þeir
segja ástandið fara sífellt versnandi
og að úrræðaleysið sé algjört, enginn
þeirra fær inni í íbúð.
Fá ekki inni á Vogi
„Félagslega kerfið hefur brugð-
ist okkur 150 prósent,“ segir Svan-
ur sem tekur fram að um leið og
þeir hafi byrjað að drekka á nýjan
leik hafi farið að halla undan fæti.
Þeir hafa allir haft samband við Vog
síðustu vikur en enginn þeirra hef-
ur fengið pláss. Svanur segist skilja
það vel að SÁÁ eigi í erfiðleikum nú
þegar stærsti bakhjarlinn sé fallinn
en Landsbankinn hefur lengi styrkt
dyggilega við starf meðferðarstöðv-
arinnar. Honum þykir þó sárt að
sitja úti í kuldanum og fá hvergi að-
stoð. Einn þremenninganna datt úr
efri koju húsbílsins og slasaði sig illa
fyrir nokkru og hann var fluttur með
sjúkrabíl á Landspítalann en skilað
aftur í húsbílinn daginn eftir. Svanur
segir það slæma meðferð að senda
manninn allan lemstraðan beint aft-
ur í húsbílinn.
Sérann ætti að fá fálkaorðuna
„Við erum að hugsa um að opna
okkar eigin afvötnunarstöð, þegar
við erum búnir að ná okkur á strik.
Við ætlum að fá þangað fólk sem er
virkilega veikt og þarf virkilega um-
önnun til að fá lausn sinna mála,“
segir Svanur og tekur fram að honum
sé full alvara. Hann ber Georg Við-
ari Björnssyni góða söguna en hann
stofnaði Samhjálp á sínum tíma.
„Georg hefur reynt eins og hann get-
ur að koma okkur á Hlaðgerðarkot,“
segir Svanur. Hann segir einnig að
séra Gunnþór Ingason hafi staðið
eins og klettur við bakið á þeim und-
anfarið en Gunnþór hefur fært þeim
mat sem hann greiðir fyrir úr eigin
vasa. Svanur tekur fram að ef einhver
ætti að fá fálkaorðuna, þá væri það
séra Gunnþór.
Góðir gestir
„Skátarnir hafa verið rosalega al-
mennilegir og þeir hafa hleypt okk-
ur í salernisaðstöðu þegar er opið
hjá þeim, annars höfum við þurft að
fara út í trén og runnana,“ segir Svan-
ur. Ögmundur Jónasson þingmaður
kíkti á þá um daginn og færði þeim
mat. Svanur segir Ögmund hafa
sagt að hann skildi ekki hversu langt
þetta hefði fengið að ganga. Jurg Alt-
herr, gamall félagi Sverris og þekkt-
ur myndhöggvari í Evrópu, heim-
sótti hann á miðvikudag en honum
brá við að sjá aðstöðu gamla kollega
síns.
„Við erum orðnir svo samrýmd-
ir og góðir vinir í þessum hörmung-
um okkar og við styðjum hver ann-
an eins og við getum fram í rauðan
dauðann, ef út í það fer,“ segir Svanur
að lokum.
JÓn BJarkI maGnúSSon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Séra Gunnþór
Svanur segir séra Gunnþór
hafa bjargað lífi þeirra
undanfarið en hann hefur
fært þeim mat sem hann
hefur borgað úr eigin vasa.
MYND: HEIÐA
Séra Gunnþór
svanur segir séra gunnþór hafa
bjargað lífi þeirra undanfarið en
hann hefur fært þeim mat sem
hann hefur borgað úr eigin vasa.