Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Qupperneq 23
föstudagur 17. október 2008 23Umræða
Lífið heldur áfram að ganga sinn
vanagang þrátt fyrir dauða ný-
frjálshyggjunnar sem lofaði gulli og
grænum skógum með sykursætu
brosi og kembdum vanga. Og enda
þótt hin glennulega maddama hafi
reynst rækallans lygamörður sem
ætlaði sér aldrei neitt annað en að
mala gull handa þeim sem áttu nóg
af því fyrir – heldur lífið áfram að
ganga sinn vanagang og það mun
rigna og snjóa jafnt á réttláta sem
rangláta.
Raunar er það ekkert leyndar-
mál að hið liðna góðæri með öll-
um sínum glamúr bankaði alls ekki
upp á hjá öllum þótt það væri sjald-
an nefnt. Það er létt að fullyrða að
á góðærisballinu hafi kjör hinna
verst settu alls ekki verið góð, þeir
hafi alltaf þurft að velta
fyrir sér hverri einustu
krónu, þeir hafi aldrei
átt afgang til að kaupa
hlutabréf hvað þá að
þeir
hafi
getað
lagt
pen-
inga
í
áhættusjóði; þeirra mál hafi alla
daga snúist um það að skrimta. Af-
komu- og bjargráð öryrkja og ann-
ars láglaunafólks munu því örugg-
lega koma mörgum manninum að
notum næstu misserin þegar fjölg-
ar í hópi þeirra sem ekkert eiga.
Nema hvað, staðreyndin er
sú að þrátt fyrir dauðsföll banka,
niðurlægingu stóreignamanna
og stjórnleysi stjórnmálamanna
breytast náttúrulögmálin ekkert;
við verðum bara að muna hver þau
eru. Grunnurinn verður alltaf sá
sami og hringrásin heldur áfram
einsog ekkert hafi gerst og hún spyr
ekki um kreppu. Fólk heldur áfram
að fæðast og deyja, dagur og nótt
skiptast á vöktum, náttúran litverp-
ist, allt rennur sitt skeið og í öllum
vanaganginum heldur fólk áfram
að reyna að skilja veröldina.
Og núna – akkúrat núna – vilja
menn skilja hvernig þeir eiga að
halda áfram
sínu venju-
bundna lífi
í öllum
tvöföldu
skilaboðunum. Fólk á nefnilega erf-
itt með að skilja þegar ráðamenn
halda því fram að það hafi ekki verið
mistök að selja bankana til einkaað-
ila því með einkavæðingunni hefðu
komið svo mikil verðmæti, nýsköp-
un og úsandi kraftur. En svo hafi það
gerst mitt í öllum látunum að menn
bara steingleymdu að frelsinu fylgdi
ábyrgð og því hafi allir verið ábyrgð-
arlausir, stjórnmálamenn, stjórn-
endur fyrirtækja, fjölmiðlar og eftir-
litsstofnanir. Þetta segja ráðamenn
fullum fetum og því verður maður
að krefjast þess að það verði ekki
eina ferðina enn þeir sömu og fóru
með hið misnotaða vald og gleymdu
ábyrgð sinni sem dæma í eigin sök.
Því fari svo getum við sannarlega átt
von á að upp rísi aftur sú lokkandi
nýfrjálsa skepna sem telur fátækt-
ina náttúrulögmál rétt einsog flóðið
og fjöruna og birtuna og myrkrið og
daginn og nóttina.
Það má ekki gerast; stöndum
saman um það þegar við velj-
um fólk til að stokka spilin upp
á nýtt með það í huga
að hér verði réttlátt
samfélag í framtíð-
inni.
Hver er maðurinn? „Þorsteinn
stephensen, framkvæmdastjóri og
eigandi Hr. örlygs.“
Hvað drífur þig áfram? „einhver
innri orka. Ég hef alltaf nægan
drifkraft.“
Hvar ertu uppalinn? „Í reykjavík, á
Þórsgötu.“
‘70, ‘80 eða ‘90? „Ég hef mestan
áhuga á nútíðinni.“
Hvernig er lífið í Madríd? „Það er
yndislegt þegar maður getur verið
þar.“
Hvernig er að búa á tveimur
stöðum? „Það hefur ýmsa kosti. Það
er skemmtilegt en getur verið erfitt.“
Af hverju tónleikahald? „Það er
nú eiginlega tilviljun. Þetta er
spennandi og krefjandi starf sem
hentar mér vel. Þetta er skorpu-
vinna.“
Hvernig kviknaði hugmyndin að
fyrstu Airwaves-hátíðinni? „upp
úr þeirri augljósu staðreynd að það
vantaði tónlistarhátíð á Íslandi og
þeirri sannfæringu að þetta gæti
gengið.“
Kom þróun hátíðarinnar þér á
óvart? „Ég hugsa að fyrir tíu árum
hefði mér ekki órað fyrir því að hún
myndi dafna svona hratt og stækka.
en á svona þriðja ári áttaði ég mig á
að hún yrði stór.“
Er erfitt að halda hátíðina í
núverandi efnahagsástandi? „Í
grunninn er þetta eins þótt eitthvað
sé erfiðara en áður.“
Hvaða band hlakkar þú mest til
að sjá að þessu sinni? „Ég hlakka
mikið til að sjá Pnau frá Ástralíu.“
Einhver draumasveit sem þú
vildir sjá á hátíðinni? „Ég er bara
með hugann við það sem er í gangi.
Það eru engin markmið komin fyrir
næsta ár.“
Hver er besta hátíðin af þeim níu
sem á undan komu? „Það er erfitt
að gera upp á milli barnanna sinna.“
Eitthvað að lokum? „gleðilega
hátíð!“
Góðæri og náttúrulögmál
EndAstöðin Hringrás tekur við efni til förgunar eða endurvinnslu og eru bílar þar á meðal. Málmurinn er ýmist fluttur beint á erlendan markað eða á athafnasvæði
félagsins við sundahöfn þar sem hann er fullunninn og pressaður fyrir útflutning. MYnd dV / RAKEl ÓsK siguRðARdÓttiR
Hefur þú áHyggjur af að útlendingar kaupi upp íslensk fyrirtæki?
„Já, við ráðum ekki við neitt og erum
búin að missa meydóminn og því
miður, þótt ég sé nú bjartsýnn, óttast
ég það versta.“
ÁsgEiR HAnnEs EiRíKsson
61 Árs eigandi blÁsteins
„nei, þeir vita ekkert hvað þeir myndu
sitja uppi með.“
sigRíðuR PoulsEn
49 Ára starfsMaður Á kelduM
„nei, þau eru einskis virði.“
KRistjAnA BiRgisdÓttiR
30 Ára starfsMaður HJÁ Ístak
„Já, ég hef nú áhyggjur af því, íslenska
ríkið er skuldsettasta land í heimi.“
jÓn ÞÓRARinsson
27 Ára starfsMaður bónuss
Dómstóll götunnar
ÞoRstEinn stEPHEnsEn
eigandi og framkvæmdastjóri Hr.
örlygs, heldur nú tíundu airwaves-
tónlistarhátíðina. Hann segist drifinn
áfram af innri orku og hefur áhuga á
nútíðinni. Hann lætur efnahags-
ástandið ekki buga sig.
Í tónleikahaldi
fyrir tilviljun
„Það væri bara hið besta mál, það hlaut
að koma að þessari sprengingu.“
gísli KRistjÁn jÓnsson
43 Ára öryrki
kjallari
mynDin
Vigdís
gRíMsdÓttiR
rithöfundur skrifar
„Afkomu- og bjargráð
öryrkja og annars lág-
launafólks munu því ör-
ugglega koma mörgum
manninum að notum
næstu misserin. “
maður Dagsins