Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2008, Side 28
föstudagur 17. október 200828 Helgarblað DV
Konan
Ný versluN
glæsileg ný verslun hefur nú tekið til
starfa á neðri hæð smáralindarinnar.
Verslunin heitir selected - femme/
homme og býður upp á glæsilegan
og stílhreinan fatnað fyrir bæði kynin.
Merkið hefur hingað til fengist í Vero
Moda en mun nú njóta sín í í þessari
flottu verslun.
uMsjón: koLbrÚn pÁLÍna heLgadóttIr kolbrun@dv.is
Hvað borðar
þú í morgunmat?
„Ég elda hafragraut fyrir mig og
þennan eins árs. Ótrúlega ljúf-
fengur og, að mér skilst, mein-
hollur. Annars er ég alltaf hrifin
af Kellog´s Special K.“
Hvar líður þér best?
„Alveg sama hvar ég er stödd,
ef ég er vel nærð líður mér vel.
En heimilið er auðvitað mikill
griðastaður og þar eru batteríin
hlaðin að mestu.“
Hvernig heldur
þú þér í formi?
„Fyrir utan daglegar ungbarna-
lyftingar er ég í dansi einu sinni
í viku með skemmtilegum stelp-
um. Ég fór þess á leit við Sport-
húsið, hvort þeir gætu sett upp
námskeið sem væri einu sinni
í viku og eftir háttatíma flestra
barna. Þeir brugðust vægast
sagt mjög vel við þeirri beiðni
og námskeiðið hófst tveimur
vikum síðar. Þarna fáum við
gamlar djassbellettdrottningar
útrás og erum í miklu nostalgíu-
kasti um leið.“
Hvaða snyrtivörur
notar þú dagsdaglega?
„Smá meik, maskari og gloss
er skothelt og fljótlegt. Ef ég hef
meiri tíma dreg ég fram MAC-
safnið mitt og geri eitthvað
meira.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„Ég er hrifin af íslenskri hönnun
og finnst skemmtilegast að vera
í því. Það nýjasta í fataskápnum
er EMAMI-kjóllinn sem mér
finnst algjör snilldarhönnun og
svo eru þau Gunni og Kolla að
gera æðislega hluti í Anderson
& Lauth. Ákveðin merki höfða
svo meira til mín en önnur og
nokkur þeirra fást í Evu.“
Hvað gerir þú þegar þú
vilt dekra við sjálfa þig?
„Les skemmtilega bók eða
kaupi mér tímarit og leggst upp
í sófa með teppi. Dekur felst líka
í hlátri og umgengni við gott
fólk.“
Hvert er þitt helsta
fegurðarráð?
„Að finna sér eitthvað til að
hlakka til. Það kemur skemmti-
legt og sniðugt blik í augun á
fólki sem hefur gaman af lífinu.“
Hver er þín fyrirmynd?
„Mína fyrirmynd sæki ég frá
fjölda fólks og spái mikið í þessa
hluti. Ég reyni að tileinka mér
það sem mér finnst eftirsóknar-
vert í fari annarra og ég held að
það sé breytilegt eftir því hvað
maður er að takast á við sjálfur.“
KatríN BryNja Her-
maNNsdóttir, dagsKrár-
KyNNir á rúv
Dekur felst
líka í hlátri
K
on
a v
iku
nn
ar
„Ég hef selt hönnun mína á Akureyri í fjögur ár
en stefndi alltaf að því að opna verslun í Reykja-
vík eftir að ég lyki námi,“ segir Kristín Kristjáns-
dóttir, nýútskrifaður kjólaklæðskeri og verslunar-
eigandi.
Kristín var ekki lengi að láta draum sinn rætast
og hefur nú opnað glæsilega verslun á Klappar-
stíg 35. Spurð um móttökurnar segir Kristín þær
framar öllum vonum.
„Ég átti nú alveg von á að þetta færi rólega af
stað miðað við ástandið í þjóðfélaginu en það er
búið að vera mjög mikið að gera síðan ég opnaði
10. október. Meira en ég þorði að vona.“ Kristín
segir að Reykjavíkursnótirnar virðist ætla að vera
snemma í því þetta árið að kaupa jóla- og út-
skriftarkjólana því að pöntunum sé farið að rigna
inn. Kristín mun þó ekki hætta að selja hönnun
sína á Akureyri þar sem ferill hennar byrjaði eft-
ir að hafa leigt sér húsnæði í viku fyrir jólin 2004
og selt flíkur sínar. „Ég mun halda áfram að selja
flíkurnar mína í Valrós eins og ég hef gert fram að
þessu.“
Kristín segist vera með margt á teikniborðinu
og búast megi við glænýrri hönnun í verslunina
fljótlega. Einnig er í vinnslu ný og betri heima-
síða, ryk.is. „Ég býst við að hún verði tilbúin eft-
ir rúman mánuð, þá getur fólk fylgst betur með
því sem ég er að gera. Ég vildi ekki opna almenni-
lega síðu fyrr en ég væri almennilega undirbúin
að mæta kröfum fólks,“ segir kjólaklæðskerinn að
lokum. kolbrun@dv.is
Ryk í Reykjavík
Kjólaklæðskerinn nýútskrif-
aði Kristín Kristjánsdóttir
hefur nú opnað verslunina
Ryk á Klapparstíg 35.
La Mer-kreMið varð til eftir slys
the radiant infusion radiant
Infusion endurlífgar húðina. Ásýnd
hennar verður samstundis bjartari
og líflegri. radiant Infusion vinnur
kraftaverk á húðinni og á sinn þátt í
að fullkomna heilbrigði hennar.
dregur úr hrukkum
augnkremið frá La Mer
dregur úr sýnilegri hrukku-
myndun, hrukkum og
dökkum baugum um leið og
það kælir, verndar og gefur
augnsvæðinu raka.
endurvekur útgeislun serumið
einstaka frá sérfræðingum La Mer
veitir húðinni augljósan frískleika
og veldur því að hún endurheimtir
útgeislun og ljóma.
mýkir, stinnir og sléttir Með
notkun kraftaverkakremsins verður
húðin á skömmum tíma mýkri,
stinnari og ótrúlega slétt og falleg.
öldrunarlínur og grófgerð húð
verður minna áberandi.
60 ml af kreminu kosta 32.361 kr.
góð kaup 250 ml krukka kemur
aðeins nokkrum sinnum á ári og er
setið um hverja. hver 250 ml
kremkrukka kostar 95.173 krónur,
sem er mjög hagstætt sé miðað við
verð á hverjum millilítra í 60 ml
krukkum, en reiknað þannig
myndu 250 ml kosta 130.000 kr.
Frá árinu 1965 hefur La Mer verið eitt
vinsælasta krem ríka og fræga fólksins.
Kremið á sér einstaka sögu en það var
eðlisfræðingurinn Max Huber sem bjó
kremið til eftir að hann lenti í hræði-
legu slysi og brenndist illa í andliti.
Fyrir mörgum árum varð
Max Huber, eðlisfræðingur hjá
bandarísku geimvísindastofnun-
inni, NASA, fyrir hræðilegu slysi.
Hversdagsleg efnafræðitilraun
fór úr böndunum og olli öflugri
sprengingu með þeim afleiðing-
um að Max brenndist hræðilega
í andliti.
Hvorki vísindin né læknis-
fræðin gátu veitt honum vonir um
bata þannig að Max Huber ákvað
að hjálpa sér sjálfur. Tólf árum og
sex þúsund tilraunum síðar hafði
hann komið saman kreminu sem
átti eftir að gefa húð hans stór-
kostlega slétta áferð. La Mer.
Kremið er unnið úr sjávarþör-
ungum, kalki, magnesíum, kalí-
um, járni, lesítíni, C-, D-, E- og
B12-vítamínum, kjarnaolíum,
eukalyptus, hveitikími, refasmára
og sólblómum, sem eru eng-
in kraftaverkaefni heldur er það
hvernig þau eru unnin sem gerir
kremið að því kraftaverkakremi
sem það er.
Huber komst að því að eitt-
hvað alveg sérstakt gerist þegar
stökum efnum er blandað sam-
an í einstaklega næringarríka
blöndu þeirra allra – ferli sem tók
þrjá til fjóra mánuði. Við samein-
ingu efnanna varð til heild sem
var miklu kraftmeiri en summan
af kröftum hvers og eins.
Kremið hefur verið selt frá því
árið 1965 og hefur tryggur hópur
fræga fólksins keypt þetta krafta-
verkakrem sem dregur úr fín-
um hrukkum, sefar, bætir áferð
húðarinnar og veitir henni raka
allt frá fyrsta degi. La Mer-krem-
ið er þeirra æskubrunnur og það
þurfti eldflaugasérfræðing til að
finna það upp.
Kraftaverkakremið má nálg-
ast í verslunum Lyfja & heilsu
Kringlunni og á snyrtistofunni
Grand Spa.
tilboðssett Þetta glæsilega tilboðssett
inniheldur: 30 ml krukku af La Mer kremi
og 30 ml af Moisturising Lotion. 7 ml af
the eye Consentrate fylgir frítt með.
kremið er gott að nota á kvöldin og
Moisturising Lotion á morgnana því það
er þynnra og léttara í sér.
Verðið á tilboðssettinu er 31.898 kr. og
því hagstæðari kaup en ein 60 ml krukka.