Húnavaka - 01.05.2015, Page 241
239H Ú N A V A K A
Veiði í einstökum ám í Húnaþingi
var sem hér segir samkvæmt skrám
Veiðimálastofnunar. Sífellt færist í
vöxt að laxi sé sleppt aftur og er fjöldi
þeirra laxa sem sleppt er í hverri á
tilgreindur hér. Þegar þessar tölur
voru fengnar frá Veiðimálastofnun
höfðu ekki borist tölur um silungsveiði
í Miðfjarðará og engar veiðitölur
höfðu borist úr Fremri-Laxá og Laxá
á Refasveit.
Magnús Ólafsson.
SÝSLUMAÐURINN
Á BLÖNDUÓSI.
Almennt.
Þrátt fyrir að miklar sparnaðar ráð-
stafanir hafi verið gerðar í ríkisrekstri
í framhaldi af efnahagshruninu haust-
ið 2008 hefur embættinu tekist að
halda sig innan fjárheimilda með
góðu samstarfi starfsfólks þess.
Regluleg starfsemi.
Starfsmenn sýsluskrifstofunnar
voru 19 og fastráðnir lögreglumenn
voru 7 en til taks eru jafnframt 5
héraðslögreglumenn í tilfallandi verk-
efni.
Innheimtumiðstöð / IMST.
Embættið hefur frá árinu 2006
annast rekstur innheimtumiðstöðvar
/ IMST, sem fæst við innheimtu
eftirtalinna krafna á landsvísu:
Sektir og sakarkostnað, endurkröfur
bóta sem ríkissjóður hefur greitt
þolendum afbrota, endurkröfur vegna
gjafsóknarmála, stjórnvaldssektir,
févíti, dagsektir, sáttir og eftirlitsgjald
Fjármálaeftirlitsins, kröfur sem Trygg-
ingastofnun ríkisins hefur innt af
hendi umfram rétt, endurkröfur vegna
ofgreiðslna hjá Vinnumálastofnun og
dagsektir Vinnueftirlitsins.
Innheimtuárangur IMST:
2011 nam innheimtuárangurinn kr. 2.1 milljarði
2012 nam innheimtuárangurinn kr. 2.6 milljörðum
2013 nam innheimtuárangurinn kr. 2.7 milljörðum
2014 nam innheimtuárangurinn kr. 2.7 milljörðum
Sýslumaðurinn er jafnframt inn-
heimtumaður ríkissjóðs en undir það
verkefni falla ýmsir skattar og skyldur
til ríkissjóðs sem heyra ekki beint
undir IMST.
Aðskilnaður embætttis sýslumanns
og lögreglunnar á Blönduósi.
Um nokkurra ára skeið hefur legið
í loftinu að sameina sýslumannaem-
bætti landsins sem síðar breyttist á þá
leið að aðskilja jafnframt starfsemi
lögreglu- og sýslumannsembætta og
fækka umdæmum.
Í framhaldi af starfslokum Ríkarðs
Mássonar, sýslumanns á Sauðárkróki
og fyrirhuguðum breytingum við sam-
einingu og aðskilnað sýslumanna- og
lögreglustjóraembættanna á Blöndu-
ósi og Sauðárkróki í tvö aðskilin
embætti var undirritaður, af innan-
ríkisráðuneytinu, settur til að gegna
einnig embætti sýslumannsins og
lögreglustjórans á Sauðárkróki frá 1.
febrúar 2013 og gegndi því undir-
ritaður báðum embættunum allt til
31. desember 2014.
Árið 2014 reyndist síðasta starfsár
embættisins þar sem lögreglan heyrir
undir sýslumannsembættið á Blöndu-
ósi og er þar með lokið áratugalöngu
og farsælu samstarfi. Sömu sögu er að
segja frá embættinu á Sauðárkróki. Á
árinu fór fram umfangsmikil og tíma-
frek undirbúningsvinna vegna aðskiln-
aðarins og endurskipulagningar em-