Húnavaka - 01.05.2015, Síða 250
H Ú N A V A K A 248
staklinga eða hefur helgistund, sem er
með fjölbreyttu sniði. Notaður er
myndvarpi þar sem töluðu máli er
varpað upp, sungið, farið í spurninga-
leiki og sitt hvað fleira.
Helga Gunnarsdóttir, kennari og
Kristín Árnadóttir, djákni hafa komið
að kirkjustarfinu, er þeirra þjónusta
dýrmæt fyrir kirkjuna.
Um páska voru hátíðarguðs þjón-
ustur í Hólaneskirkju, Hofskirkju og
Bólstaðarhlíðakirkju. Lágstemmd
stund var í Hólaneskirkju á föstu-
daginn langa með lestri Passíusálma
og hljóðfæraleik.
Sjómannaguðsþjónusta er laugar-
daginn fyrir sjómannadag. Að venju
er gengið frá höfninni til kirkju, fyrir
marga er guðsþjónustan hápunktur
helgihalds kirkjunnar. Sjómanna-
kórinn er rómaður fyrir kraftmikinn
söng og lætur engan ósnortinn. Ræðu-
kona var Guðrún Guðbjörnsdóttir,
fyrrverandi sjómannskona, flutti hún
myndræna og fallega hugleiðingu sem
viðstöddum þótti gaman að.
Jólahátíðin hófst með aðventu-
kvöldi í Hólaneskirkju, þar var ræðu-
kona Dagný Rósa Úlfarsdóttir og
aðventustund í Húnaveri. Stórkostlegir
jólatónleikar kórs Hólaneskirkju og
hljómsveitar færðu gestum jóla stemn-
ingu um miðjan desember. Kórinn
hyggur á ferð til Kanada og er að
safna í ferðasjóð. Minningarsjóðurinn
um hjónin frá Garði og Vinhæli styrkti
tónleikana svo og Sorphreinsun Vil-
helms Harðarsonar. Hátíðarguðs-
þjón ustur um jól voru í Hólanes-
kirkju, Höskuldsstaðakirkju og
Bergs staðakirkju. Kaþólsk messa er
tvisvar á ári, um páska og jól.
Aðalheiður Steindórsdóttir hefur
haldið utan um verkefnið „Jól í skó-
kassa“ sem er alþjóðlegt verkefni á
vegum KFUM/KFUK. Margar gjafir
bárust í Hólaneskirkju, eru þær sendar
til Úkraínu til að gleðja börn sem búa
við erfiðleika.
Fermingarbörn voru að þessu sinni
12. Fermt var í Hofskirkju, Höskulds-
staðakirkju, Hólaneskirkju og Bergs-
staðakirkju. Í prestakallinu voru sjö
börn skírð, tvenn hjón gefin saman og
þrír einstaklingar jarðaðir.
Ýmsir tónlistarviðburðir voru í
Hóla neskirkju á árinu, má þar nefna
Karlakórinn Heimi, vortónleika Skag-
firska kammerkórsins, Kór eldri borg-
ara Skagafjarðar, vortónleika Tón-
listar skóla A-Húnavatnssýslu, tónleika
Brass Con Brio, sænskrar blásarasveit-
ar nemenda í Menningarskóla Växjö-
bæjar sem er vinabær Skagastrandar,
Jónsmessutónleika Drew Krasner,
jasspíanista og saxófónleikara frá Nes
listamiðstöð, „A New Music Concert
for Young Musicians“, ungt tónlistar-
fólk frá Skagaströnd lék verk eftir
Jahan R. Nolley frá Nes. Þá heimsótti
Ósk ar Einarsson Skagaströnd með
kór Linda kirkju.
Ég er þakklát fyrir að fá að starfa í
Úr Bólstaðarhlíðarkirkju á páskum 2014.