Húnavaka - 01.05.2015, Blaðsíða 267
265H Ú N A V A K A
fulltrúar skólans í Fram sagn arkeppni
grunnskólanna í Húna vatnsþingi sem
fór fram 11. mars á Skagaströnd. Þar
komu fram þrír nemendur úr hverjum
skóla, alls 12 nemendur. Sigurvegari
keppninnar var Laufey Lind Ingi-
bergs dóttir úr Höfðaskóla, í 2. og 3.
sæti voru nemendur úr Húnavallaskóla.
Stærðfræðikeppni FNV og Mennta-
skólans á Tröllaskaga fór fram er leið
á vorið. Fulltrúi Höfðaskóla, Páll
Halldórsson, lenti þar í 2. sæti. Skóla-
mót var haldið 10. apríl á Laugar-
bakka. Þá kepptu nemendur 7.-10.
bekkjar í Húnavatnsþingi í ýmsum
íþróttagreinum.
Skólafélagið Rán stóð reglulega
fyrir margs konar samverustundum
fyrir nemendur 1.-6. bekkja eftir
áramót. Hæst bar þó uppsetning
skóla félagsins á leikritinu Karde-
mommu bænum sem nemendur í 8.
-10. bekk settu upp í leikstjórn Maríu
Markovic og Trostans Agnarssonar.
Á vorönninni unnu nemendur í 7.
bekk líffræðiverkefni undir handleiðslu
starfsmanna BioPol. Þetta var kær-
komin tilbreyting frá hefð-
bundinni skólavinnu og afar
lærdómsrík.
Á lokadögum skólaársins
voru hefðbundnir útivistar-
dag ar, þ.e. hinn sívinsæli
,,flipp íþróttadagur“ og hefð-
bundinn ,,útivistardagur“. Á
,,flippíþróttadegi“, sem var
16. maí að þessu sinni, kepptu
nemendur skólans við hvert
annað í óhefðbundnum
keppn is greinum á borð við
stígvélakast og kappát. Á
,,útivistardegi“ 19. maí, var
dagurinn haldinn að mestu
inni þar sem veðrið bauð ekki
beint upp á útivist með 2°C og
slyddu. Þó tókst að grilla
pylsur í lok dags úti á skólalóð.
Þann 20. maí var Höfðaskóla slitið
við hátíðlega athöfn í Fellsborg. Nem-
endur tóku þátt í athöfninni með upp-
lestri, söng og tónlistar flutningi.
Haustönn 2014 hófst með nám-
skeiði kennara og stuðningsfulltrúa á
Hvammstanga undir yfirskriftinni
,,Orð af orði“. Þetta er sameiginlegt
endurmenntunarnámskeið með öðr-
um grunnskólum Húnavatnsþings þar
sem áherslan er á eflingu orðaforða
nemenda sem og málskilning. Þetta
endurmenntunarnámskeið er allan
veturinn sem og skólaárið 2015-2016.
Þann 22. ágúst setti nýr skólastjóri,
Vera Ósk Valgarðsdóttir, skólann, í
námsleyfi Hildar Ingólfsdóttur.
Skráðir nemendur við skólann voru
í upphafi skólaársins 96 talsins, kenn-
arar voru 13 talsins auk aðstoðar-
skólastjóra og skólastjóra, almennir
starfsmenn voru níu auk tveggja
starfsmanna í íþróttahúsi. Nemenda-
dagar eru 175.
Eins og undanfarin ár er sundið
Samstarfsverkefni BioPol og Höfðaskóla. Halldór
Ólafsson hjá BioPol sýnir nemendum leyndardóma
líffræðinnar. Ljósm.: María Ösp Ómarsdóttir.