Fréttablaðið - 06.12.2014, Side 126
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 86
BÆKUR ★★★★ ★
Vonarlandið
Kristín Steinsdóttir
VAKA-HELGAFELL
Líf alþýðukvenna á Íslandi fyrr á
öldum virðist vera Kristínu Steins-
dóttur hugleikið. Síðustu bækur
hennar hafa allar fjallað um að-
stæður og örlög kvenna í heimi sem
er þeim í flestu andsnúinn. Í nýj-
ustu bók sinni, Vonarlandinu, bein-
ir Kristín athyglinni frá aðstæð-
um kvenna í sveit yfir í líf þeirra
í hinum ört stækkandi þéttbýlis-
kjarna sem Reykjavík var á seinni
hluta nítjándu aldar.
Vonarlandið er saga um vonina
um betra líf en líka um vonbrigðin
þegar raunveruleikinn stendur ekki
undir væntingum eða vonir bresta.
Vinkonurnar Guðfinna og Stefanía
taka sig upp, yfirgefa sveitina og
flytjast til Reykjavíkur í von um
betra líf. Möguleikar þeirra reyn-
ast takmarkaðir en þó veitir lífið í
bænum þeim meira frelsi og sjálf-
stæði en það sem þær
flúðu. Bók Kristínar
dregur upp raunsæja
mynd af stritinu, órétt-
lætinu og hjartasár-
unum sem fátækar
konur þurftu að takast á
við í lífinu en líka fallega
mynd af vináttu og sam-
takamætti, gleði og
frelsisþrá. Sagan bygg-
ir augljóslega á mikilli
rannsóknarvinnu um líf
og aðstæður almúgafólks
í Reykjavík um 1870-80.
Heimildavinnan ber sög-
una ofurliði á köflum, en
það er að vissu leyti skiljanlegt þar
sem þær sögulegu upplýsingar sem
Kristín hefur safnað að sér eru oft
og tíðum einstaklega áhugaverðar.
Þetta er samt fyrst og fremst saga
um fólk. Það er augljóst að mark-
mið Kristínar er að beina sjónum að
fólki sem hefur yfirleitt ekki verið
í sviðsljósinu í sögulegum skáld-
sögum. Samúð hennar
með persónunum skín
alltaf í gegn og litar
söguna og framsetningu
hennar á þeim. Kristín
bregður upp myndum af
íslenskum alþýðukonum
sem verða í meðförum
hennar meira heldur en
hlutverk þeirra. Vinnu-
konurnar sem flýja úr
striti sveitanna eru
líka ekki bara týpur
heldur einstaklingar
sem hafa ólík pers-
ónueinkenni og örlög.
Vatnsberarnir í Reykja-
vík eru dæmi um skrítnar auka-
persónur sem oft koma fyrir í frá-
sögnum frá þessum tíma, og svo er
einnig hér, en Kristín beinir athygli
að einni þeirra og gerir hana að
einstaklingi. Þessi samúð höfundar
gerir persónurnar kannski aðeins of
fullkomnar, en Kristín nær að skapa
persónur sem manni er ekki sama
um. Þrátt fyrir erfiðleika sýna þær
viljastyrk, hugrekki, samtakamátt
og húmor þannig að það er auðvelt
fyrir lesendur að halda með þeim í
lífsbaráttunni.
Aðrar persónur, sérstaklega karl-
mennirnir í sögunni, eru hins vegar
upp til hópa afskaplega einhliða
persónur. Illgjarna en hlægilega
yfirvaldið, pasturslitla undir tyllan,
drykkfelldi eiginmaðurinn og
sjarmerandi útlendingurinn þjóna
sögu kvennanna en verða eigin-
lega aldrei að alvöru persónum. Að
einhverju leyti stafar það kannski
af því að lesandinn fær ekki að sjá
atburði frá sjónarhorni þeirra, á
meðan sjónarhornið færist á milli
allra helstu kvenpersónanna. Í síð-
ustu bók Kristínar, Bjarna-Dísu,
þar sem hún beitti svipaðri aðferð,
fengu aðrar persónur en titilpersón-
an ekki nægilegt rými til að verða
raunverulegar persónur í huga les-
enda en hér nær Kristín að gera
mun betur þegar kemur að konun-
um fimm sem mest koma við sögu.
Vonarlandið er sem sagt falleg
lýsing á konum sem þurftu að tak-
ast á við erfitt líf en gátu líka sýnt
hver annarri vináttu og umhyggju
og tendrað vonarneista í brjóstum
hver annarrar. Ásdís Sigmundsdóttir
NIÐURSTAÐA: Falleg saga um vináttu
og von.
Vonin um betra líf
KRISTÍN STEINSDÓTTIR
TÓNLIST ★★ ★★★
VAR
Anna Jónsdóttir
ÚTG. ANNA JÓNSDÓTTIR
Anna Jónsdóttir sópran er glæsileg
söngkona. Hún hefur þétta, kraft-
mikla rödd og syngur af innlifun.
Það er auðheyrt á nýjum geisla-
diski hennar sem inni heldur íslensk
þjóðlög. Diskurinn er djarfur, Anna
syngur nánast öll lögin án undir-
leiks. Það er rétt að glitti hér og þar
í harmonium, þ.e. stofu orgel sem
Svavar Knútur leikur á. Lögin eru
tekin upp í Djúpavík og í Akranes-
vita. Umhverfið, þ.e. mikið berg-
mál, leikur stórt hlutverk. Á viss-
an hátt má segja að endurómunin
sé undirspilið, hún er hugsuð til að
skapa stemninguna á diskinum.
Lögin eru dauðhreinsuð af nútíma-
legri umgjörð, þeim er ætlað að
virka forneskjuleg og hrá.
Þetta er góð hugmynd en hún
heppnast þó ekki alveg. Ef þjóð-
lög eiga að hljóma ekta verða þau
líka að vera sungin þannig. Anna er
skólaður sópran, hún er hreinlega
of góð söngkona til að þjóðlög, sem
langoftast eru illa sungin, komi út
á sannfærandi hátt. Það er of mikill
óperubragur á lögunum.
Auðvitað er ekkert að því að
syngja þjóðlög vel. En þá verður
umgjörðin að vera í stíl. Söngur-
inn þarfnast fallegs meðleiks og
þægilegrar endurómunar. Það má
ekki bara drekkja lögunum í berg-
máli. Bergmálið hér verður mjög
fljótt leiðigjarnt, söngurinn hljóm-
ar eins og sírenuvæl. Heildaryfir-
bragðið skortir smekkvísi. Anna
hefði þurft að hugsa þetta dæmi
aðeins betur. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Vel sungið en hljómburð-
urinn fer lögunum illa.
Draugalegur söngur VAR „Auðvitað er ekkert
að því að
syngja
þjóðlög
vel.“
Við erum með barokkverk á
jólatónleikunum að vanda,“
segir Rut Ingólfsdóttir, fiðlu-
leikari í Kammersveit Reykja-
víkur, og nefnir konserta
eftir Wassenaer, Wagenseil og
Vivaldi. „Tónlist Wassenaer er
bæði áferðarfalleg og ljúf og
minnir um margt á ýmis verka
Händels,“ segir hún og heldur
áfram að lýsa dagskránni.
„Konsertinn eftir Wagenseil
er einungis í tveimur köflum
en ekki í hefðbundnum þremur.
Fyrri kaflinn er hægur og
syngjandi en seinni kaflinn
hraður og fjörugur. Svo eru þrír
konsertar eftir Vivaldi. Einn
þeirra er flautukonsertinn La
tempesta di mare eða Sjóstorm-
urinn.“
Kammersveitin er að hefja
sitt 41. starfsár. „Við höfum alla
tíð lagt áherslu á að bjóða ungu
og framúrskarandi tónlistar-
fólki, sem nýlega er komið heim
frá námi, að leika einleik á tón-
leikum sveitarinnar. Á því er
engin breyting nú,“ segir Rut.
Í þetta sinn eru það flautu-
leikarinn Hafdís Vigfúsdóttir,
básúnuleikarinn Carlos Caro
Aguilera og fiðluleikararnir
Joaquin Páll Palomares, Una
Sveinbjarnardóttir, Helga Þóra
Björgvinsdóttir og Gunnhildur
Daðadóttir sem sjá um einleik-
inn.
Tónleikarnir eru í Norður-
ljósasal Hörpu 7. desember og
hefjast klukkan 17.
- gun
Háklassíkin við völd
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur hljóma
í Hörpu á morgun. Sex einleikarar koma þar fram.
Á ÆFINGU Kammersveit Reykjavíkur kemur fagurri músík til skila á faglegan hátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Tónlist Wassenaer
er bæði áferðarfalleg og
ljúf og minnir um margt
á ýmis verka Händels.