Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 25
25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
til þess að framandi tegundir verða
ríkjandi eða líkur á landnámi mikil-
vægra staðartegunda minnka.40–42
Ennfremur er hætta á að framandi
tegundir sem notaðar eru til upp-
græðslu dreifist út í náttúruleg bú-
svæði og breyti plöntusamfélögum
og vistferlum langt út fyrir svæðin
þar sem þau voru upphaflega not-
uð.29,40,43,44 Notkun framandi teg-
unda getur leitt til „hnattrænnar
einsleitni“, sem í þúsaldarskýrslum
Sameinuðu þjóðanna1 er talin ein
helsta ógnun við líffræðilega fjöl-
kjarrtegundir byrjuðu að nema land
í sumum uppgræðslumeðferðunum
innan fárra ára, einkum þar sem
lífræn jarðvegsskán hefur náð að
mynda þekju (7. mynd). Rannsóknir
á langtímaáhrifum uppgræðsluað-
gerða á svipuðum slóðum18 benda
til þess að sáning grasa og áburð-
argjöf greiði fyrir framvindu í átt að
náttúrulegu kjarrlendi eða mólendi á
meðan óuppgrædd aðliggjandi við-
miðunarsvæði haldast gróðursnauð
áratugum saman. Þá hafa rannsóknir
leitt í ljós að uppgræðsluaðgerðir á
rofnu landi geta stuðlað að fjölgun
smádýra og aukið virkni jarðvegs-
lífs32,33 auk þess að leiða til uppsöfn-
unar kolefnis í jarðvegi og gróðri,34,37
en það síðastnefnda bendir til auk-
innar frumframleiðni. Í heild bæta
þessar aðgerðir hina fjölbreyttu þjón-
ustu vistkerfa og landið verður meira
aðlaðandi til útivistar.38 Ofangreind
dæmi sýna að endurheimt vistkerfa
getur verið samvirk lausn á þeim
stóru umhverfismálum nútímans
sem fjallað er um í sáttmálum Sam-
einuðu þjóðanna (UNFCCC, CBD
og UNCCD) (8. mynd).
Áhrif landgræðslu á samfélög
plantna og smádýra og þjónustu
vistkerfa er mjög háð þeim að-
ferðum sem beitt er.18,34,39 Þannig
kunna landgræðsluaðgerðir að hafa
neikvæð áhrif á suma þætti líf-
fræðilegrar fjölbreytni ef þær leiða
breytni á heimsvísu. Einnig getur
notkun framandi tegunda leitt til
myndunar vistkerfa sem eru ólík
öllum þekktum vistgerðum og
mjög kostnaðarsamt getur orðið
að færa aftur til fyrri vegar.45 Því
er afar mikilvægt að tegundir sem
eru notaðar í landgræðsluverkefni
séu ekki eingöngu valdar út frá
því hve fljótar þær eru að mynda
gróðurhulu eða endurreisa virkni
vistkerfisins, heldur einnig út frá
langtímaáhrifum þeirra á aðliggjandi
vistkerfi og samfélög.
7. mynd. Landnám staðartegunda í sjö ára tilraunareitum á Geitasandi á Rangárvöllum, sem græddir voru upp með grasfræi og áburði.
A. Krækilyng (Empetrum nigrum L.). B. Gulvíðir (Salix phylicifolia L.). C. Loðvíðir (Salix lanata L.). Ljósm.: Landgræðsla ríkisins, 2006.
8. mynd. Endurheimt vistkerfa dregur úr jarðvegseyðingu, eykur frumframleiðni og
umsetningu næringarefna og stuðlar að aukinni líffræðilegri fjölbreytni. Einnig stuðlar
vistheimt að uppsöfnun lífræns kolefnis í jarðvegi og gróðri og dregur úr gróðurhúsa-
áhrifum. Þannig getur vistheimt verið samvirk lausn fyrir stóru umhverfismálin sem
fjallað er um í umhverfissamningum Sameinuðu þjóðanna.
A CB