Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 35

Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 35
35 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags til að fanga hvítabjörn og flytja hann aftur til heimkynna sinna hefur gef- ið okkur mikla og dýrmæta reynslu sem við búum að í dag og á eftir að nýtast vel þegar næsti hvítabjörn gengur á land á Íslandi. Í raun má segja að verkefnið hafi gengið vel en lokamarkmið þess náðist því miður ekki að þessu sinni – að fanga hvítabjörn og koma honum til náttúrlegra heimkynna. Allir sem tóku þátt í þessari aðgerð vissu að brugðið gat til beggja vona. Ráðstafanir höfðu verið gerð- ar fyrir sýnatöku ef svo færi að fella þyrfti dýrið. Hluti þessarar sýnatöku þarf að fara fram innan við 30 mínútum eftir að dýr er fellt og er sýnum komið fyrir í fljótandi köfnunarefni. Eins og gefur að skilja er slík sýnataka erfið viðfangs úti í náttúrunni og gafst því einstakt tækifæri á Skaga. Sýni sem tekin eru með þessum hætti geta gefið mjög mikilvægar upplýsingar um ástand dýrsins og ýmsa umhverfisþætti í náttúrlegum heimkynnum þess. Sýnin frá dýrinu við Hraun verða rannsökuð við Árósaháskóla undir umsjón Christian Sonne, en hann og samstarfsmenn hans hafa unnið mikið að rannsóknum á hvítabjörn- um við austurströnd Grænlands. Voru þeir 2, 3, 4 eða jafnvel 5? Í kjölfar þessara atburða komu nokkrar tilkynningar um að sést hefðu spor eftir hvítabirni og jafnvel að fólk hefði séð til hvítabjarna, með- al annars frá Hveravöllum, Langa- vatni, Langadal, Bjarnarvötnum á Skaga og Hornströndum. Mikil leit var gerð í nokkrum tilfellum en hún bar ekki árangur og meint spor sem fundust voru ekki talin hafa verið eftir hvítabirni, en þau eru nokkuð auðgreinanleg (7. mynd). Útilokað er að fullyrða hvort um bjarndýr hafi verið að ræða í sumum tilfell- anna enda var ekki hægt að segja til um hvort dýrin hefðu farið í sjóinn aftur, þótt ólíklegt geti það talist. Ástand hvítabjarnanna Fjölmörg sýni voru tekin úr báðum hvítabjörnunum, þó svo að sýna- taka úr þeim seinni hafi verið mun umfangsmeiri. Margir dýralæknar komu að þessari sýnatöku á mis- munandi stigum málsins, en Karl Skírnisson líffræðingur á Tilrauna- stöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hefur séð um meginhluta rannsókna sem unnar hafa verið hér á landi og hefur hann birt hluta nið- urstaðna sinna í fréttatilkynningum og einnig í grein í þessu hefti.4 Hluti sýnanna var sendur til Danmerkur til frekari greininga, eins og áður hefur komið fram. Við rannsóknir á hvítabjörnunum kom það helst á óvart hversu slæmt ástand þeirra var. Bæði dýrin voru greinilega undir meðalþyngd en birnan þó öllu verr á sig komin en björninn. Hvítabjörninn sem var felldur við Þverárfjallsveg vó um 220 kg, sem er töluvert undir með- alþunga karldýra úr Austur-Græn- landsstofninum en þeir geta náð 350–450 kg þyngd. Í ljós kom að dýrið var sýkt af þráðormi, svoköll- uðum tríkínum (Trichinella nativa). Talið er að björninn hafi verið allt að 22 ára gamall og því með elstu dýrum sem aldursgreind hafa verið úr Austur-Grænlandsstofnunum.4 Birnan sem felld var á Hrauni var mun verr á sig komin. Hún vó tæp 150 kg, sem er langt undir meðalþyngd. Hún var greinilega aðframkomin af næringarskorti og vöðvarýr. Aldur hennar er talinn hafa verið 12–13 ár.4 Birnan var hins vegar ekki sýkt af þráðormi en sýni sem tekin voru úr henni rétt eftir að hún var felld voru einnig send til rannsókna í Danmörku. 7. mynd. Spor eftir hvítabirni við Hraun II á Skaga. Hvert spor er um 25–30 cm langt. Ljósm.: Helgi Páll Jónsson 2008.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.