Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 47
47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ungum upp á hverju ári.7,8 Sjófuglar
verða kynþroska 2–3 ára eða síðar,
ná háum aldri og eiga fá afkvæmi
ár hvert1,9,10 og hið sama gildir um
sjóendur (andaætt (Anatidae): deild
Mergini). Sjóendur eru fjölskrúð-
ugur hópur anda sem margar eru
á sjó mestan hluta ársins.9 Sjóendur
nýta fjölbreytt búsvæði utan varp-
tíma, bæði við strendur og á hafi úti.1
Þær halda gjarnan tryggð við varps-
væði, vetrarsvæði og fellisvæði.11,12
Sjóendur treysta talsvert á næringar-
forða til að lifa af veturinn, jafnframt
því sem þær éta bæði á daginn og í
myrkri þegar dagurinn er stystur.13
Auk æðarfugls (Somateria mollissima)
(1. mynd) eru íslenskar tegundir
sem flokkast til sjóanda straumönd
(Histrionicus histrionicus), hrafnsönd
(Melanitta nigra), hávella (Clangula
hyemalis), toppönd (Mergus serrator),
húsönd (Bucephala islandica) og gul-
önd (M. merganser). Hér á landi
eru tvær síðastnefndu tegundirnar
reyndar langmest á fersku vatni.
Æðarendur (Somatereae; þ.e.
samheiti yfir ættkvíslirnar Soma-
teria og Polysticta) mynda einstofna
hóp (þ.e. hópur sem inniheldur
ákveðinn forvera og alla afkom-
endur hans) innan sjóanda.14 Utan
varptíma eru búsvæðin gjarnan
á grunnsævi og vetrarstöðvar
meginvakir í hafísnum á köld-
ustu svæðunum.15,16 Æðarendur
eru keimlíkar öðrum sjófuglum og
svipar t.d. í hátterni til svartfugla
(Alcidae) að því leyti að þær nota
2. mynd. Útbreiðslukort æðaranda; a) æðarfugls, b) æðarkóngs, c) gleraugnaæðurs og d) blikandar. Endurbirt með góðfúslegu
leyfi CBIRD-hópsins. – Distribution maps of the four eider duck species: a) Common Eider; b) King Eider; c) Spectacled
Eider; d) Steller’s Eider. Reproduced from the CBIRD group of CAFF with their kind permission.
a)
c) d)
b)