Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 9
9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin
(IUCN) áherslu og benda á að við
skipulagningu landnýtingar á nátt-
úruverndarsvæðum beri sérstaklega
að taka tillit til náttúruverndaryfir-
valda, heimamanna, ferðaþjónust-
unnar, ferðamanna, samfélagsins
almennt og stjórnvalda (1. tafla).17
En hverjir eru þessir hagsmuna-
aðilar? Freeman, upphafsmaður
kenningarinnar um hagsmunaaðila
(e. stakeholder theory)18, skilgreinir þá
sem hvern þann hóp eða einstakling
sem getur haft áhrif á markmið
skipulagsins eða sem skipulag hefur
áhrif á. Innan ferðamálafræða hafa
þessar kenningar verið nýttar í rann-
sóknum á því hvernig skipuleggj-
endur geta náð betri árangri í að
greina, stýra og samhæfa tengsl
hagsmunaaðila við stefnumótun í
sjálfbærri ferðamennsku.19,20
Margir eiga hagsmuna að gæta
á hálendi Íslands. Ferðamennska á
hálendinu hefur orðið fjölbreytilegri
með tímanum og ferðaþjónusta sem
byggist að einhverju eða verulegu
leyti á hálendinu teygir sig um mest-
allt land. Auk hinna hefðbundnu
hópferða eru margir mismunandi
hópar þar á ferð, t.d. göngumenn,
hestamenn og fólk í jeppaferðum, á
fjórhjólum eða öðrum vélknúnum
farartækjum. Allir þessir hópar
teljast hagsmunaaðilar. En að fleiru
þarf að hyggja. Markaðurinn hefur
orðið margbreytilegri í áranna rás
og ýmsar ólíkar þarfir orðið til
sem þarf að uppfylla. Nauðsynlegt
er að hugleiða hvar sé æskilegt
að byggja upp ferðamennsku á
hálendinu, hvers eðlis hún eigi að
vera og hversu mikil. Hvaða áhrif
hefur fjölgun ferðamanna á um-
hverfið, hvar þarf að byggja upp
aðstöðu fyrir gesti og hvers konar
uppbygging er æskileg? Einnig er
brýnt að kanna hvort vöxtur ferða-
mennsku á víðernunum sé ein-
hverjum takmörkunum háður og
hvenær fjöldi ferðamanna sé orðinn
slíkur að umhverfið verði fyrir óvið-
unandi breytingum eða ferðamenn
njóti ekki lengur heimsóknarinnar
vegna þess að þolmörkum þeirra
sé náð – jafnvel svo að þeir hætti
að koma og fari annað. Með öðrum
orðum: Hvenær hætta ferðamenn
sjálfir að njóta samvista við nátt-
úruna vegna þeirrar ferðamennsku
sem þar hefur byggst upp og vegna
fjölda annarra ferðamanna?
Fræðilegur bakgrunnur
Þolmörk ferðamennsku
Koma ferðamanna hefur óhjákvæmi-
lega áhrif á umhverfi ferðamanna-
staða. Eftir því sem umhverfið er
viðkvæmara og einstæðara því meiri
hætta er á að ferðamennska hafi
áhrif á það. Nauðsynlegt er að hafa
í huga að ýmislegt annað en ferða-
mennska hefur áhrif á umhverfið
og ekki má einblína á áhrif ferða-
mennsku án þess að hafa í huga öll
önnur ytri áhrif. Hugtakið þolmörk
ferðamennsku (e. tourism carrying
capacity) hefur verið skilgreint sem
„sá fjöldi gesta sem svæði getur tekið
á móti áður en neikvæðra áhrifa fer
að gæta, hvort heldur er á náttúrlegt
umhverfi, upplifun ferðamanna
eða viðhorf heimamanna“.21 Þegar
þolmörk ferðamanna eru rannsökuð
er lagt mat á þá upplifun sem þeir
verða fyrir og skynjun þeirra á því
umhverfi sem þeir ferðast um.22,23,24
Þessi hluti þolmarka hefur verið
skilgreindur sem „mesta mögulega
notkun svæðis áður en notkunin leiðir
af sér óviðunandi skerðingu á upplifun
gesta umfram tiltekin viðmiðunar-
mörk“.23
Samfélagið og heimamenn Stjórnendur friðlýstra svæða Ferðamenn Ferðaþjónusta
- Skapa atvinnu og tekjur
- Auka tekjujöfnuð
- Gefa fyrirtækjum á staðnum
tækifæri til að hagnast á
staðbundnum auðlindum
- Stuðla að auknum lífsgæðum
- Skapa gjaldeyristekjur
- Styðja samfélagslega
uppbyggingu
- Stuðla að varðveislu á náttúru
og menningararfleið
- Veita heimamönnum
möguleika til menntunar
- Stuðla að bættri heilsu
- Auka hnattrænan skilning,
meðvitund og viðurkenningu
- Veita aðgang að betri
þjónustu
- Styrkja sjálfsmynd
- Stuðla að verndun
- Auka virðingu fyrir
arfleið
- Skila hagnaði/
lágmarka kostnað
- Skapa atvinnu
- Læra af öðrum
- Mynda tengsl við
nærliggjandi samfélag
- Byggja upp
sjálfbæran efnahag
- Stýra nýtingu
auðlinda
- Hvetja til rannsókna
- Stuðla að jákvæðri
upplifun og
endurkomu gesta
- Fullnægja vitrænum,
andlegum og
líkamlegum þörfum
- Ná persónulegum
markmiðum
- Bæta heilsu
- Vera í góðra vina hópi
- Hitta fólk með svipuð
áhugamál
- Verða hluti af hópi
- Styrkja fjölskyldubönd
- Stuðla að verndun
- Tryggja arðsemi
- Svara eftirspurn á markaði
- Greina markhópa
- Nýta sér markaðsforskot
- Hanna vöru fyrir
markhópa
- Þjónusta markaði
- Þjónusta gesti og veita
upplýsingar
1. tafla. Þjóðgarðar: Markmið og væntingar hagsmunaaðila.17 – National parks: The stakeholders’ aims and expectations.