Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 74

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 74
Náttúrufræðingurinn 74 svo rækilega. Í þriðja lagi verður að horfa framhjá hinu mikla mislægi sem er í berglagastafla Austurlands og því upphleðsluhléi sem það ber vitni um. Í fjórða lagi er öll jarðsaga og myndun Vesturlands og Vest- fjarða skilin eftir í uppnámi ef gert er ráð fyrir að gliðnunin hafi alfarið átt sér stað á Norðurlandsbeltinu. Ósamhverf gliðnun með miklu reki til austurs (og litlu reki til vesturs) gæti verið lausn á þessum vandamálum. Það myndi hins vegar þýða að á Vestfjörðum ættu að koma fram ummerki um lítið vesturrek. Hrafnseyrareldstöðin Lítum nú til Vestfjarða og skoðum forna megineldstöð þar til saman- burðar. Bergmyndanir vestra eru að hluta til jafnaldra myndunum Austfjarða og annaðhvort orðnar til í sama rekbelti og þær eða í öðru rekbelti sem var virkt á sama tíma á Norðurlandi. Elstu myndanirnar er að finna á annesjum sitthvorumegin við Ísafjarðardjúp. Þar er ekki vitað um neina megineldstöð en nokkrar slíkar eru grafnar í jarðlagastaflann skammt inn til landsins. Hrafnseyrar- eldstöðin (Tjaldaneseldstöðin) við Arnarfjörð er líklega þeirra elst. Þetta hefur verið mikil eldstöð með öskju. Margar aldursgreiningar eru til af bergi í nánd við hana, bæði K/Ar- og Ar/Ar-greiningar, jafnt gamlar sem nýjar,4,15 og auk þess hefur verið gerð umfangsmikil staflakort- lagning og bergsegulsviðsathugun á þessum slóðum ásamt aldursgrein- ingum á tugum sýna.19 Samkvæmt þeim er aldur eldstöðvarinnar um 14 milljón ár. Í hvaða gosbelti skyldi hún vera upprunnin? Á því hafa jarðvís- indamenn haft ákveðnari skoð- anir en hvað varðar Gerpi. Flestir sem um málið hafa fjallað telja að jarðlagastafli Vestfjarða, og þar með Hrafnseyrareldstöðin, sé upp- runninn í Húnaflóabeltinu.4,19,20,21,22 Stefna reksins er til vestnorðvesturs, eldstöðin hefur því orðið til þar sem Vatnsnes er nú. Sem fyrr er sagt kulnaði rekbeltið út fyrir um 6 milljón árum. Eldstöðina rak því frá ásnum í 8 milljón ár. Reiknum nú hvað hún ætti að komast langt á þessum tíma: 9 km/m.ár x 8 m.ár = 72 km Hér gerist það sama og í dæm- unum um Gerpi, vegalengdin er of stutt. Eldstöðin ætti einungis að hafa komist 72 km en í raun er hún 135 km vestan við rekásinn. Það vantar mikið upp á að rek- ið komi jarðmynduninni tilskilda vegalengd, eða hvorki meira né minna en rúma 60 km. Til að dæmið gangi upp þarf gliðnunin í Húnaflóabeltinu að vera verulega ósamhverf og rekið nánast allt til vesturs. Þetta verður að teljast afar mótsagnakennt, einkum í ljósi þess að í dæmunum um Gerpi þyrfti nánast allt rekið að eiga sér stað í Norðurlandsgosbeltinu og vera ósamhverft til austurs. Dæmið um Hrafnseyrareldstöð- ina virðist m.ö.o. ekki ganga upp. Samkvæmt því getur hún ekki hafa myndast í Húnaflóabeltinu og þaðan af síður í Norðurlandsgosbeltinu. Ef aldur og rekhraði bergs austanlands og vestan er rétt metinn hlýtur jarðlagastaflinn eystra og vestra að hafa myndast í sitthvoru rekbeltinu og þar á milli ættu að vera stórir flekar eða fleygar af eldra bergi. Fornir flekar Gillian R. Foulger og samstarfsfólk hennar hafa raunar varpað fram þeirri kenningu að í jarðlagastafla Íslands leynist fleki eða flísar af eldra bergi, eldfornri meginlands- skurn eða gamalli úthafsskorpu.23,24 Það gæti skýrt umframbreidd lands- ins og mikla en falska gliðnun, sýnd- argliðnun. Í ritgerðum mínum frá 2003 og 2009 eru vangaveltur um hvort skýra megi ósamræmið í aldri og rekhraða með þessum hætti.7,25 Þar er hugmyndinni hafnað af ýms- um ástæðum. Þessir flekar þyrftu að vera yfir 200 km breiðir og um 50.000 km2 að flatarmáli samtals. Það er erfitt að sjá hvernig víðáttu- mikil landsvæði á borð við þetta geti kaffærst í aðrunnum hraunum og sokkið djúpt í skorpuna. Ef fornir og yfirflotnir skorpuflekar væru undir stórum svæðum landsins ætti þess að verða vart með ýmsum hætti. Yfir þeim ættu t.d. ekki að finnast megin- eldstöðvar, berggangar og aðrar staðbundnar gosmyndanir. Þessar vísbendingar hafa ekki fundist. Nú má velta því fyrir sér hvort nýjar hugmyndir Ármanns Höskulds- sonar o.fl.8 og Hauks Jóhannessonar,9 um fleiri og tíðari rekbeltaflutninga en áður var talið, geti leyst þau 5. mynd. Steingerður trjástofn í súrri gjósku (lahar) hjá Mónesi innan Barðsneseldstöðvar. – Fossile wooden trunks in an acid lahar layer at Mónes Peninsula near Gerpir. 80 1-2#loka.indd 74 7/19/10 9:53:21 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.