Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 28
Náttúrufræðingurinn
108
árfarvegi (t.d. mörk Kverkfjalla og
Arnardals), ferðaleiðir eða vegi (t.d.
Skálafell og Reykjanestá).
Val á einkunnakvarða
Við val á einkunnakvarða var eink-
um tekið tillit til tveggja atriða.
Kvarðinn varð að vera hæfilega
grófur til að endurspegla nákvæmni
matsins. Hann átti líka að vera
ólínulegur þannig að atriði sem
skipta miklu máli, þ.e. fá háar ein-
kunnir, vegi hærra í meðaltölum
en hin sem minna máli skipta og
fá lágar einkunnir. Því var notaður
einkunnaskalinn 0, 1, 3, 6, 10 þar
sem 10 vísar til mestu verðmætanna.
Þessi skali er í samræmi við vinnu
faghóps 1 í 1. áfanga rammaáætl-
unar.48,49
Val og vægi viðfanga og reikni-
aðferð einkunnar
Við val á eiginleikum, viðföngum,
sem lýsa virði ferðasvæða voru
fimm flokkar viðfanga notaðir:
Upplifun, afþreyingarmöguleikar, inn-
viðir, notkun og framtíðarvirði og fékk
hver þeirra vogtölu (1. tafla).
Alls voru notuð 43 viðföng (1.
tafla). Viðföng voru valin með það
að markmiði að þau greindu á milli
svæða með því að draga fram þá
þætti sem mestu máli skipta. Eins
og fyrr var nefnt eru svæðin sem
um ræðir mjög mismunandi hvað
varðar eðliseiginleika og notkun og
því var ekki hægt að velja viðföng
sem eiga við á öllum svæðum. Það
sem skiptir miklu máli á einni teg-
und svæða er oft ekki fyrir hendi á
annarri tegund svæða. Þetta á jafnt
við um hughrif gesta og möguleika
á afþreyingu. Nauðsynlegt var talið
að nota sama matið og sama kvarð-
ann á öllum svæðum þannig að
hægt væri að meta vatnsafls- og
jarðvarmavirkjanir á sama kvarða
og raða þeim í eina röð. Því var
valið að meta alls staðar sem flest
þau viðföng sem koma til greina
á báðum gerðum svæða. Af þessu
leiðir að á hverju svæði voru metin
viðföng sem eiga við á svæðinu
og fengu háa einkunn og jafn-
framt önnur viðföng sem ekki eiga
við á því svæði og fengu lága
einkunn. Sem dæmi má taka að á
jarðhitasvæðum skipta viðföngin
hverasvæði, jarðhiti, laugar og litir
mestu máli fyrir virði svæðanna
og fengu þau að jafnaði hæstu
einkunnirnar. Þau reiknuðust því
inn í einkunnina á þeim svæðum.
Svæði þar sem fyrirhugað er að
reisa vatnsaflsvirkjanir fengu hins
vegar almennt hæst fyrir viðföngin
vatn, ár, fossar, gil, gljúfur og gjár og
komu þau þá inn í einkunnina, en
sjaldnast hverasvæði, jarðhiti, laug-
ar. Ef aðeins hæstu einkunnir eru
teknar inn í lokaeinkunn dregst
ekki niður virði jarðhitasvæðis þótt
þar séu ekki fossar, né heldur virði
vatnsaflsvirkjanasvæðis þótt þar
3. mynd. Skipting landsins í ferðasvæði með hliðsjón af virkjunarhugmyndum í 2. áfanga rammaáætlunar. – The division of the country
into tourist destinations. Kort/Map: Guðmundur Ingvarsson.
80 3-4#Loka_061210.indd 108 12/6/10 7:22:13 AM