Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 37
117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
reist á óröskuðu svæði er betra að
fá fleiri virkjanir á það svæði en að
reisa næstu virkjun á öðru óröskuðu
svæði. Hins vegar eykst virði órask-
aðra svæða eftir því sem meira er
virkjað á nálægum svæðum. Sem
dæmi má nefna að ef búið væri að
virkja á flestum mögulegum virkj-
unarsvæðum í nágrenni höfuðborg-
arinnar og einungis Brennisteinsfjöll
væru eftir, myndi virði þeirra aukast
til mikilla muna.
Framkvæmdum fylgja vegir og
þar með geta ný svæði opnast sem
áður voru lokuð flestu ferðafólki.
Þegar slíkt gerist og svæði sem hefur
mikið aðdráttarafl opnast, má búast
við að ferðamönnum fjölgi þar. Við
það getur svæðið farið yfir þolmörk
sín, þ.e. ferðamönnum fjölgað meira
en umhverfið þolir og skerðist þá
upplifun þeirra sem þangað sækja
vegna mikils fjölda ferðamanna.
Mikilvægt er fyrir ferðaþjónustuna
og náttúruvernd að slíkt gerist ekki
handahófskennt heldur sé hugað
að afleiðingum framkvæmda áður
en í þær er ráðist. Á undanförnum
áratugum hefur aðgengi að hálend-
inu aukist mjög með bættum sam-
göngum. Nú má segja að hægt sé að
komast hvert sem er á jeppum, bæði
vetur og sumar, upp á jökla og jafn-
vel nýrunnin hraun eins og vel hefur
komið í ljós í sambandi við gosin í
Eyjafjallajökli. Sú tíð er því liðin að
rök fyrir virkjunum séu að þeim
fylgi betri vegir og bætt aðgengi. Nú
er víða orðið miklu mikilvægara að
takmarka aðgengi farartækja fremur
en að auka það og tryggja þar með
að ekki verði skemmdir á landi
vegna utanvegaaksturs og átroðn-
ings og að ró og friði öræfanna sé
ekki spillt um of með hávaða og
öðru sem fylgir vélvæddri umferð.
Oft heyrist að ferðamennska og
virkjanir fari vel saman og er þá
gjarnan bent á Bláa lónið og gesta-
stofur sem komið hefur verið upp
í virkjunum. Án efa finnst mörgum
áhugavert að skoða jarðvarmavirkj-
anir og fræðast um hvernig hægt er
að nýta orku jarðar til upphitunar og
framleiðslu á raforku. Slík afþreying
hefur þó sín takmörk, m.a. vegna
þess að ein virkjun er annarri lík og
því vart þörf fyrir slíkar gestastofur
í öllum virkjunum. Umgengni og all-
ur frágangur kringum virkjanir hér
á landi hefur oftast verið til mikillar
fyrirmyndar og þessir staðir verið
eigendum til sóma. Það breytir því
ekki að þeir hafa ekki og munu lík-
lega seint hafa jafnmikið aðdráttarafl
og sérstök náttúra landsins.
Summary
The effect of proposed power
plants on Icelandic nature tourism
The Icelandic Government is currently
carrying out a project called Master Plan
for geothermal and hydropower develop-
ment. All major potential hydropower
and geothermal power plant projects in
Iceland are being evaluated and ranked.
The objective is to reduce unnecessary
environmental, social and economic
costs and improve the planning process
by identifying weaknesses and deficien-
cies at an early stage in the planning
process. Four workgroups evaluate and
rank the potential projects from various
viewpoints, including one focusing on
their effects on tourism and recreation.
In this paper the methodology devel-
oped by this group is presented as well
as the results of the evaluation.
The country was divided into 57
tourism regions and their value for tour-
ism and recreation found by evaluating
43 attributes that are considered impor-
tant for the value of tourism regions.
The regions have very different proper-
ties making it difficult to select attributes
that are relevant in all regions. By using
a large common set of attributes and
evaluating them in all regions, but only
taking into the total score in each region
the score for the attributes that get the
highest scores. In this way, the attributes
important in each region are identified
and compose the score for the present
value of each tourism region. The im-
pact region of each proposed power
plant is then defined and the affected
tourism regions evaluated again, now
as if the power plant had already been
built. The impact of a power plant is
greater when a valuable region is af-
fected than when a less valuable region
is affected. Therefore the impact de-
pends both on the value of a region and
the effect on the region. To get a single
score for the impact that takes into ac-
count both these factors a so-called im-
pact coefficient is defined. It is obtained
by multiplying the present value of the
tourism region with the impact the
power plant has on the region. The im-
pact coefficient for a particular power
plant is then computed as the sum of the
impact coefficients for all regions affect-
ed by the plant. The impact coefficient is
highest in valuable tourist areas where
the impact is great, and the affected area
covers many tourism regions.
Finally, the potential power plants
are ranked according to their effect on
tourism and recreation. The results
show that many of the proposed power
plants are in areas that are highly im-
portant for tourism and recreation such
as Fjallabak, the region around Skaftá,
and Markarfljót in the southern part of
the Highlands, and Askja in the north-
ern part of the Highlands.
Þakkir
Meðlimir faghóps 2 í rammaáætlun fá innilegar þakkir fyrir skemmtilegt og
gefandi samstarf. Auk þess fær Anna G. Sverrisdóttir formaður faghópsins
sérstakar þakkir fyrir þolinmæðina sem hún sýndi við þróun aðferðafræð-
innar. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, líffræðingur og formaður faghóps 1 um
náttúru og menningarminjar, fær einnig bestu þakkir fyrir góð ráð og fyrir
að kynna fyrir okkur og útskýra aðferðafræði faghóps 1.
Heim ild ir
Rammaáætlun, á.á. 2010. http//www.rammaaaetlun.is/ (skoðað 16.06.2010).1.
Hagstofa Íslands, Hagtölur, iðnaður og orkumál. Raforkuframleiðsla á
Íslandi, hlutur stóriðju 2008. http://hagstofa.is/ ?PageID=672&src=/
temp/Dialog/varval.asp?ma=IDN02103%26ti=St%F3ri%F0ja+og+almenn
+notkun+raforku+1960%2D2008+%26path=../Database/idnadur/orku-
mal/%26lang=3%26units=Gígavattstundir/hlutfall (skoðað 16.06.2010).
Landsvirkjun 2010. Ársskýrsla 2009.2.
Ferðamálastofa 2010. Ferðaþjónustan á Íslandi í tölum. 17 bls.3.
Seðlabanki Íslands 2010. Hagtölur – Ferðalög milli landa. Tekjur og gjöld. 4.
http://www.sedlabanki.is (skoðað 30.01.2010).
Hagstofa Íslands 2008. Hagtíðindi – Ferðamál og samgöngur. Ferðaþjón-5.
ustureikningar 2000–2006. Reykjavík: Hagstofa Íslands.
Samtök ferðaþjónustunnar 2009. Ferðaþjónusta Hagtölur. http://www.6.
saf.is (skoðað 09.08.2009).
Pickering, C. & Weaver, D.B. 2003. Nature-based tourism and sustainability: 7.
80 3-4#Loka_061210.indd 117 12/6/10 7:22:16 AM