Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 54
Náttúrufræðingurinn
134
Penicillus penis og Penicillius vag-
iniferous. Ormur í sjó, akarnormur,
kallast Priapulus, sem þýðir víst
„smáreður“.
Hér má nefna bjöllur sem gefa
frá sér eitur er forðum var talið
auka kyngetu karla. Fyrir vikið fékk
ættkvíslin heitið Hornia, eftir enska
orðinu „horny“, graður.
Eftirhreytur
Poeskop er næturgagn á hollensku
(bókstafleg merking orðsins er
„hlandkoppur“). Hvernig sem á
því stendur tengdu Hollendingar
(trúlega hvalfangarar) þetta ílát við
hnúfubak, og í gömlum ritum má
stundum sjá ættkvísl hans nefnda
Poeskopia. (Annars er skepnan venju-
lega kölluð Megaptera novaeangliae.)
Frægur skemmtibransamaður,
Hugh Hefner, ritstjóri tímaritsins
Playboy, gerði út dömur í kanínu-
búningum, Bunnies, og þótti því
við hæfi að tengja nafn hans við
fágæta deilitegund af amerískri
skógarkanínu, Sylvilagus palustris
hefneri.
Grannvaxin risaeðla sem lifði
í Ástralíu kallast Atlascopcosaurus,
kennd við fyrirtæki sem framleiðir
loftpressur, Atlas Copco. Yfirleitt er
fíngerðari tólum en loftborum beitt
við að losa steingervinga úr berglög-
um, svo trúleg skýring á nafninu
er að loftpressusmiðjan hafi fjár-
magnað leitina að dýrinu. Benda má
á að þekkt skyndibitakeðja styrkti
könnunarferð náttúrufræðinga til
Madagaskar og síðan heitir pálmi á
eynni McDonaldia.
Í Dashanpu í Sichuanhéraði í
Kína komu leifar áður óþekktrar
risaeðlu upp við borun eftir jarðgasi,
og skepnan var nefnd Gasosaurus til
heiðurs gasfyrirtækinu.
Heim ild ir
Skurrile Wissenschaftliche Namen aus Biolo-1.
gie und Medizin. http://de.wikipedia.org/
wiki/Skurrile_wissenschaftliche_Namen
(skoðað 01.11.2010).
Curiosities of Biological Nomenclature: Ety-2.
mologies. http://www.curioustaxonomy.net/
index.html (skoðað 01.11.2010).
Póst- og netfang höfundar
Örnólfur Thorlacius
Hringbraut 50
107 Reykjavík
oth@internet.is
Um höfundinn
Örnólfur Thorlacius (f. 1931)
lauk fil.kand.-prófi í líffræði
og efnafræði frá Háskóla-
num í Lundi í Svíþjóð 1958.
Hann var kennari við
Menntaskólann í Reykjavík
1960–1967, Menntaskólann
við Hamrahlíð 1967–1980 og
rektor þess skóla 1980–1995.
Samhliða kennslustörfum
hefur Örnólfur samið kennslubækur og hann
hafði um árabil umsjón með fræðsluþáttum um
náttúrufræði í útvarpi og sjónvarpi. Hann var
um skeið ritstjóri Náttúrufræðingsins.
80 3-4#Loka_061210.indd 134 12/6/10 7:22:26 AM