Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 56
Náttúrufræðingurinn
136
villtri náttúru til þessa (N63°58,68‘,
V21°10,70‘).
Upprunaleg heimkynni kransarfa
eru í Minas Gerais og Espirito Santo
héruðunum í Suðaustur-Brasilíu og
suður um strandsvæði Uruguay
að Buenos Aires og nágrenni, auk
m.a. Cordoba-héraðsins í Argent-
ínu9 og hugsanlega yfir í Paraguay10
en á þessum slóðum er loftslagið
heittemprað (e. subtropical).11
Kransarfinn hefur verið mikið
notaður í vatnsbúr og garðtjarnir12,13
og talið er líklegt að þannig hafi
hann dreifst víða um heim.10,13,14,15,16
Í Norður-Ameríku er kransarfa að
finna í öllum suðurríkjum Bandaríkj-
anna, við austurströndina norður
til Vermont og New Hampshire en
við vesturströndina allt til British
Columbia í Kanada.17 Plöntunnar
hefur orðið vart í mörgum lönd-
um Evrópu,18 m.a. Belgíu, Frakk-
landi, Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi,
Rússlandi, Sviss og Bretlandi.19
Nyrsti fundarstaður tegundarinnar
utan Íslands er sennilega í Svíþjóð
(N63°18,51‘, A14°41,64‘).20
Kransarfi er talinn mjög ágeng-
ur í sumum vötnum tempraðra
loftslagssvæða, t.d. í Evrópu19,21,22
en útbreiðsla villts kransarfa er þó
að mestu bundin við heittempruð
svæði.9,10 Í Bandaríkjunum hefur
kransarfi aðeins myndað ágeng
samfélög á milli 33. og 35. breiddar-
gráðu.9 Árið 1984 var hann ekki
talinn geta náð varanlegri fótfestu í
náttúrunni í Mið- og Norður-Evrópu9,
en hlýnun loftslags undanfarna ára-
tugi kann þó að hafa breytt því
eitthvað því hún stækkar útbreiðslu-
svæði ýmissa plöntutegunda.23
Fundarstaðir plöntunnar eru
stundum vötn undir hitaáhrifum
frá jarðhita eða öðrum útrásum
heits vatns.9,23,24,25,26 Þannig skapast
hagstæð skilyrði utan hefðbund-
inna búsvæða sem við áframhald-
andi loftslagshlýnun auka dreifing-
armöguleika hennar.
Mikill vaxtarhraði auðveldar
kransarfa að mynda þéttar breiður
sem útrýma öðrum plöntum með
skuggamyndun18 og verður hann
sums staðar ráðandi á fáum árum.9
Jafnframt getur hann hindrað eðli-
legt vatnsrennsli í ám og skurðum
og blettir og breiður hans safnað
í sig framburðarefnum.27 Breiður
plöntunnar hindra oft bátaumferð,
veiðar og aðra útivist á vötnum og
hafa jafnvel truflað rekstur vatns-
orkuvera (Brasilía).28
Haramoto og Ikusima29 hafa
ályktað að árangur kransarfa sem
ágengrar plöntu og hæfni hans til að
leggja undir sig ný svæði í tempraða
hluta Japans skýrist af getu hans til
að lifa veturna af, kuldaþoli hans
og sérstaklega því að hann getur
vaxið hratt snemma á vorin áður
en annar gróður hefur tekið við sér.
Vísbendingar eru um að sígrænar
vatnaplöntur hafi talsvert forskot
á aðrar plöntur ef þær ná að vaxa
áður en hefðbundinn vaxtartími
hefst.30 Á stöðum þar sem krans-
arfinn þrífst vel er hann í breiðum
á botni vatna á veturna og fram
á vor og hindrar þannig spírun
og frumvöxt annarra vatnaplantna
sem legið hafa í vetrardvala.25
Áhugi vísindamanna hefur aðal-
lega beinst að aðstæðum þar sem
kransarfinn er til vandræða, en síður
að jaðaraðstæðum þar sem tvísýnt er
um viðgang hans. Óvíst er því hvort
núverandi þekking dugar fyllilega
til að varpa ljósi á vöxt hans og
tilvistarmöguleika við lágt hitastig
eins og víðast er á Íslandi.
Rannsóknin sem hér er kynnt
beindist að því að safna grunn-
upplýsingum um lífsferil, vaxt-
arhætti og dreifingu kransarfa í
Opnutjörninni og afrennsli hennar
við mismunandi hitastig, leita að
hugsanlegum vísbendingum um
samkeppni hans við hjartanykru
og varpa nokkru ljósi á möguleika
tegundarinnar til frekari dreifingar
hér á landi.
Rannsóknasvæði
Opnur í Ölfusi eru heitar, næringar-
ríkar uppsprettur í mýrlendi um
2 km suðsuðaustan við Hveragerði,
norðan Ölfusfora (3. mynd). Til
þeirra heyrir 471 m2 laug sem kall-
ast Sundlaug31 en hluti hennar mun
hafa verið stunginn út í upphafi síð-
ustu aldar og stíflaður til að kenna
börnum sund (Ögmundur Jónsson,
Vorsabæ, 1979. Munnl. uppl.). Vatn-
ið frá Sundlaug rennur í 9.800 m2
óreglulega lagaða tjörn aðeins sunn-
ar. Ekki er vitað til að sú tjörn hafi
sérstakt heiti og er hún hér kölluð
Opnutjörnin eða tjörnin í Opnum
(4. mynd). Hún er að mestu 0,5–1,0
m djúp og á botni hennar eru heitar
uppsprettur, aðallega í norðaust-
urhelmingnum. Auk þess streymir
og seytlar kalt vatn í hana eftir
skurðum og með mörgum smáum
mýrarsprænum. Heit jörð og nokkr-
ar litlar, heldur kaldari uppsprettur
eru í mýrinni norðvestan við miðbik
tjarnarinnar. Afrennsli hennar er í
suðvesturendanum og rennur í suð-
austur eftir miklu skurðakerfi. Vatn-
ið endar í safnskurði sem liggur í
beinni línu suðvestur um forirnar og
út í ósa Ölfusár, alls um 6,2 km leið.
Á tveimur stöðum rennur vatn frá
Varmá inn í safnskurðinn um gamlan
farveg og þverskurð.
Í Opnum eru nú þrjár tegundir
vatnasnigla, tjarnabobbi, Radix per-
egra, tjarnasnúður, Gyrlaulus laevis
og búrasnigill, Physella acuta. Síðast-
nefnda tegundin er nýr landnemi í
Opnunum en á sama hátt og krans-
arfi er hún algeng vatnsbúrateg-
und.32 Búrasnigill er flokkaður sem
ágeng tegund á Íslandi.33
Vistfræði tjarnabobba og tjarna-
snúðs í Opnum var könnuð á árun-
um 1978–1979.31 Þéttleiki sniglanna
2. mynd. Blóm kransarfa í Opnum í Ölfusi.
Aðeins karlplöntur eru til staðar. – The
flowers of the Brazilian waterweed. Only
male plants are present. Ljósm./Photo:
Tryggvi Þórðarson, 01.09.2009.
80 3-4#Loka_061210.indd 136 12/6/10 7:22:27 AM