Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn
142
Hitastig
Meðalhitastig vatnsins á 12 mánaða
athugunartímabilinu var hæst í
norðurvíkinni en lægst í afrennslinu.
Á öllum stöðunum var meðalhitastig
hvers mánaðar lægst í desember og
hæst í júlí (2. tafla).
Í norðurvíkinni var meðalhita-
stigið (klukkutímagildi, N = 8.760)
á meira dýpinu (0,4 m) marktækt
lægra en á minna dýpinu (0,2 m)
(parað t-próf tveggja hópa, p < 0,001)
en einungis munaði 0,36°C.
Á 13. mynd er dreifing hitastigs-
mælinga sýnd fyrir hvern mælistað.
Í nyrðri víkinni var hitastigið jafnast
og yfirleitt í hærri kantinum. Meiri
dreifing var á hinum mælistöðunum
og var hitastigið í suðvesturhluta
tjarnarinnar að jafnaði hærra en í
skurðinum en lægra en hitastigið í
norðurvíkinni.
Yfirleitt var frekar lítill munur
á hitastigi á milli árstíða (14.–16.
mynd). Sumarið skar sig þó greini-
lega úr á öllum mælistöðunum með
hærra hitastig. Í skurðinum var
hitastig um haustið, veturinn og
vorið nokkuð svipað en í suðvest-
anverðri tjörninni var vatnið áber-
andi kaldara að vetrarlagi. Mesti árs-
tíðamunur á dreifingu hitastigsgilda
var í skurðinum.
Umræður
Vegna jarðhitaáhrifanna eru aðstæð-
ur í Opnunum einstæðar til rann-
sókna á hitastigsháðum eiginleikum
vatnalífvera, m.a. rannsókna sem
annars yrðu aðeins gerðar á rann-
sóknastofu. Þar er hægt að fylgjast
með viðgangi kransarfa við mjög
mismunandi hitafar.
Þótt kalt vatn seytli inn í tjörnina
í norðurvíkinni bentu mælingar á
hitastigi á mismunandi dýpi ekki
til að lagskipting myndaðist í efstu
0,4 metrunum. Er það líklega bæði
vegna áhrifa vinds og hreyfingar
sem uppspretturnar koma af stað í
vatninu. Nálægðin við uppsprettur-
nar og lítið yfirborð í víkinni skýrir
einnig litla dreifingu hitastigsgild-
anna yfir allt árið (13. mynd) og svip-
aða dreifingu hitastigs eftir árstíðum
það myndaði hún sums staðar stað-
bundna, þétta, nokkuð stóra flekki
en aldrei samfelldar breiður (7.
mynd) nema í efri hluta afrennslis-
ins og í Sundlaug. Hún blómstraði
frá júnílokum og fram í lok ágúst.
Síðustu leifar hjartanykru í yfirborði
sáust í lok október.
hjartanykruplönturnar náðu yfir-
borðinu um miðjan apríl og í lok
apríl mátti sjá um metralangar
hjartanykruplöntur allvíða, sérstak-
lega í hægum straumnum næst
útrásinni. Fram í júní voru stakar
plöntur vanalegar innan um annan
gróður um nær alla tjörn. Eftir
Norðurvíkin
– The north cove
Suðvesturhlutinn
– The SW part of the pond
870 m neðan útfalls
– The outlet 870 m
downstream
Mælingar á klst. fresti í 365 daga – Hourly measurements for 365 days (°C)
Meðaltal – Average 23,6 18,3 14,8
Miðgildi – Median 23,9 18,9 14,7
Staðalfrávik – SD 2,1 3,8 4,0
Lágmark – Min. 8,4 2,8 0,0
Hámark – Max. 27,8 26,1 22,8
90percentile 25,8 22,7 20,2
10percentile 21,2 13,0 10,0
Dreifingarmörk mánaðarmeðaltala – Range of daily means (°C)
Lágmark – Min 14,1 7,4 1,9
Hámark – Max. 26,4 24,0 22,0
Dreifingarmörk mánaðarmeðaltala – Range of monthly means (°C)
Lágmark – Min. 22,3 14,2 11,5
Hámark – Max. 25,8 22,8 20,3
2. tafla. Hitastig í tjörninni í Opnum 22.9. 2008–21.9. 2009 á 0,2 m dýpi. – Temperature
data for the Opnur pond from Sept. 22, 2008 to Sept. 21, 2009 at a depth of 0.2 m.
12. mynd. Kransarfatorfa í afrennslinu um 1,8 km neðan við tjörnina í Opnunum. Gul-
brúni liturinn stafar af járnútfellingum vegna járnríks vatns frá framræsluskurðum. – A
patch of Brazilian waterweed about 1.8 km downstream from the Opnur pond. The orangeish
color is caused by iron depositing on the plants due to imput of iron-rich water from
drainage ditches. Ljósm./Photo: Tryggvi Þórðarson, 22.09.2009.
80 3-4#Loka_061210.indd 142 12/6/10 7:22:34 AM